Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
Haukur Helgi Pálsson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, leikur lík-
lega ekki næstu fimm vikurnar eft-
ir að hafa meiðst í leik með
Andorra á sunnudaginn.
Haukur mun hafa rifið vöðva í
læri, samkvæmt því sem félagið
hefur sagt á samfélagsmiðlum. Er
talið að hann verði fimm vikur að
jafna sig.
Haukur hafði byrjað vel á Spáni
en deildakeppnin er nýhafin. Skor-
aði til að mynda 13 stig og gaf 5
stoðsendingar gegn Unicaja
Málaga á sunnudag.
Reif vöðva
á sunnudag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meiddur Haukur Helgi Pálsson
leikur ekki á næstunni.
Handknattleiksmaðurinn Kristján
Örn Kristjánsson, sem gekk til liðs
við franska félagið Aix frá ÍBV í
sumar, fékk óskabyrjun þegar lið
hans mætti Frakklandsmeisturum
París SG á útivelli í fyrstu umferð
1. deildarinnar um helgina.
Kristján Örn gerði sér lítið fyrir
og skoraði sjö mörk úr níu skotum
fyrir Aix og var markahæsti maður
liðsins gegn Nikola Karabatic,
Mikkel Hansen og félögum sem
unnu að lokum sigur á Aix, 34:31.
Kristján er eini íslenski leikmað-
urinn í frönsku 1. deildinni í vetur.
Stórliðið réð
illa við Kristján
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
7 mörk Kristján Örn byrjaði með
látum í Frakklandi.
18. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Akureyringurinn Hallgrímur Mar
B. Steingrímsson átti sinn besta leik
í sumar þegar lið hans KA heimsótti
Gróttu í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Vi-
valdi-völlinn á Seltjarnarnesi í 18.
umferð deildarinnar á sunnudaginn
síðasta.
Hallgrímur, sem verður þrítugur
á föstudaginn kemur, skoraði
þrennu í 4:2-sigri KA en liðið fór
með sigrinum upp í áttunda sæti
deildarinnar í 19 stig og er nú 11
stigum frá fallsæti þegar sex um-
ferðir eru eftir af tímabilinu.
Hallgrímur er uppalinn hjá Völs-
ungi en hann hefur skorað 4 mörk í
sextán deildarleikjum í sumar.
„Þetta var gríðarlega mikilvægur
leikur fyrir bæði lið og það var þess
vegna afar kærkomið að ná í sigur,“
sagði Hallgrímur Mar í samtali við
Morgunblaðið. „Við erum búnir að
gera ansi mörg jafntefli í deildinni í
sumar og eins höfum við ekki verið
að skora mörg mörk heldur.
Að sama skapi höfum við ekki ver-
ið að fá neitt allt of mörg mörk á okk-
ur sem er auðvitað jákvætt en sókn-
arþunginn hefur verið að aukast í
undanförnum leikjum og það má al-
veg segja sem svo að flóðgáttirnar
hafi aðeins opnast gegn Gróttu,“
sagði Hallgrímur sem á að baki 96
leiki í efstu deild þar sem hann hefur
skorað 30 mörk en samtals 250 leiki
og 68 mörk í öllum deildum.
Ætluðu sér stærri hluti
KA-menn höfnuðu í fimmta sæti
úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
„Við settum ákveðna pressu á
okkur fyrir tímabilið og það er ekk-
ert leyndarmál að við ætluðum okk-
ur klárlega stærri hluti í sumar.
Vissulega höfum við misst mikil-
væga leikmenn eins og nafna minn
Hadda [Hallgrím Jónasson] og
Nökkva [Þey Þórisson] og það setur
sitt strik í reikninginn en á sama
tíma er það engin afsökun og ég
hefði viljað vera ofar í töflunni.
Það má því alveg segja að tímabil-
ið hafi verið vonbrigði en eins og
málin hafa þróast þá er þokkalegt að
vera kominn í þá stöðu sem við erum
í núna, hafandi verið við botninn, og
svo var auðvitað skipt um þjálfara á
miðju tímabili.“
Hallgrímur hefur fengið talsverða
gagnrýni fyrir sína frammistöðu í
sumar en hann hefur verið besti leik-
maður KA undanfarin ár.
„Ég geri mikla kröfur til sjálfs
mín og ég hef einfaldlega ekki verið
nægilega góður í sumar, sérstaklega
í fyrri umferðinni. Eftir að maður
var settur út í kuldann þá er maður
aðeins farinn að nálgast sitt gamla
form og vonandi heldur það áfram í
lokaleikjum tímabilsins.
Það er erfitt að leggja mat á það
sjálfur hvort manni hafi verið farið
að líða of vel með sæti sitt í liðinu en
ef til vill var þetta komið í ákveðna
rútínu hjá manni. Þegar allt kemur
til alls er alltaf gott að fá spark í
rassgatið öðru hverju til þess að
koma sér aftur af stað.
Ég er ekki að einblína á eigin töl-
fræði núna. Í dag snýst þetta um lið-
ið og markmiðið er fyrst og fremst
að gera sitt besta til að hjálpa KA að
enda eins ofarlega og kostur er.“
Kitlar að spila með bræðrunum
Hallgrímur á fimm bræður,
Hrannar Björn er liðsfélagi hans hjá
KA og þá spila þeir Guðmundur Óli
og Ólafur Jóhann með Völsungi.
„Það hefur oft kitlað að taka eitt
tímabil saman bræðurnir en það
þyrfti þá að vera á Húsavík sem er
auðvitað alls ekkert verra. Þessi um-
ræða hefur komið upp við fjölskyldu-
borðið, þótt það hafi ekki gerst oft,
en það er líka spurning hvernig
þetta myndi fara í okkur þar sem við
erum skapmiklir bræður. Ef okkur
mislíkar eitthvað þá látum við vita af
því en það væri virkilega gaman ef
þetta yrði að veruleika.
Annars er Völsungur mitt lið og
ég fylgist alltaf vel með því sem er að
gerast á Húsavík. Ég reyni eftir
fremsta megni að fara á heimaleiki
liðsins þótt það hafi verið erfitt í
sumar út af kórónuveirufaraldr-
inum. Hvort maður taki síðustu ár
ferilsins heima á Húsavík þarf svo
bara að koma betur í ljós síðar.“
Gott að fá smá spark í
rassgatið öðru hverju
Hallgrímur Mar B. Steingrímsson skoraði þrennu á Seltjarnarnesi um helgina
Morgunblaðið/Íris
Þrenna Hallgrímur Mar B. Steingrímsson fagnar einu markanna gegn Gróttu með samherjum sínum.
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var sá eini af efstu mönnum í M-
einkunnagjöf Morgunblaðsins sem fékk M fyrir frammistöðu sína í 18. um-
ferð Pepsi Max-deildar karla. Stefán Teitur hefur þar með tekið forystuna
í einkunnagjöfinni en hann hefur fengið samtals 14 M á tímabilinu.
Valdimar Þór Ingimundarson úr Fylki, Atli Sigurjónsson úr KR, Steven
Lennon úr FH, Patrick Pedersen úr Val og Ágúst Eðvald Hlynsson úr Vík-
ingi eru allir komnir með 13 M en Atli og Ágúst bættu báðir við sig í um-
ferðinni. Næstir eru síðan Aron Bjarnason úr Val og Tryggvi Hrafn Har-
aldsson úr ÍA með 12 M en með 11 eru Kennie Chopart úr KR og Þórir
Jóhann Helgason úr FH. vs@mbl.is
18. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Aron Snær Friðriksson
Fylki
Stefán Árni
Geirsson
KR
Hallgrímur Mar B. Steingrímsson
KA
Guðjón Pétur
Lýðsson
Stjörnunni
Orri Hrafn
Kjartansson
Fylki
Ísak Snær
Þorvaldsson
ÍA
Brynjólfur
Willumsson
Breiðabliki
Logi Hrafn Róbertsson
FH
Eiður Aron
Sigurbjörnsson
Val
Hilmar Árni Halldórsson
Stjörnunni
Halldór Smári Sigurðsson
Víkingi
2
3
2
2
2
3
Stefán Teitur tekur forystuna
Eftir að hafa fylgst með
Gylfa Þór Sigurðssyni í fyrstu
leikjum Everton á nýbyrjuðu
tímabili í enska fótboltanum hef
ég ekki minnstu áhyggjur af
framgangi hans í vetur.
Gylfi er sem stendur í þeirri
stöðu að hefja leik á vara-
mannabekknum en Everton fjár-
festi í þremur öflugum miðju-
mönnum í sumar og mætir til
leiks með mun öflugra lið en
undanfarin ár.
Hann hefur komið inná fyrst-
ur varamanna liðsins í leikjunum
til þessa og undantekningarlaust
staðið sig prýðilega þann tíma
sem hann hefur spilað.
Inn á milli hefur hann síðan
spilað leikina í deildabikarnum
og verið þar fyrirliði liðsins.
Gylfi er augljóslega í mun
betra formi en á síðasta tímabili,
hann virkar helmingi léttari og
minnir núna á sjálfan sig á bestu
tímabilunum með Swansea og
íslenska landsliðinu.
Það mun skila honum á ný inn
í byrjunarliðið fyrr en varir. Þar
hefja James Rodríguez, Allan,
André Gomes og Abdoulaye Dou-
couré leik á miðjunni sem stend-
ur, og væntanlega áfram í næstu
leikjum, enda hefur Everton spil-
að vel og er með fullt hús stiga.
Fyrir stjórann Carlo Ance-
lotti er mikill lúxus að vera með
þennan fimm manna hóp miðju-
manna þar sem í raun skiptir
litlu máli hvaða þrír eða fjórir
spila hverju sinni.
Meiðsli og leikbönn munu
alltaf setja strik í reikning hjá
einstaka leikmönnum og þá
skiptir breiddin öllu máli. Það
verður afar áhugavert að fylgjast
með Everton í vetur og sjá hvort
liðinu takist það ætlunarverk sitt
að komast í alvöru baráttu í
deildinni. Með Gylfa í stóru hlut-
verki.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ágúst Elí Björg-
vinsson átti stór-
an þátt í örugg-
um sigri Kolding
á Frederica,
31:22, í danska
handboltanum í
gær. Ágúst Elí
varði 17 skot í
leiknum og þar
af eitt vítakast.
Var hann með
46% markvörslu í leiknum og varði
því nánast annað hvert skot sem
kom á markið.
Annar markvörður, Daníel Freyr
Ágústsson, lék í Svíþjóð í gær.
Daníel varði fimm skot í marki Guif
sem tapaði 21:30 fyrir Hallby. Daní-
el var með 25% markvörslu þann
tíma sem hann var inná.
Ágúst Elí
Björgvinsson
Ágúst öflugur
hjá Kolding
ÍA sendi Fjölni og Völsung niður í
2. deild kvenna í knattspyrnu í gær-
kvöld. ÍA vann Fjölni 2:0 á Skag-
anum í Lengjudeildinni. Fyrir vikið
geta Fjölnir og Völsungur ekki
lengur náð ÍA að stigum. ÍA er með
15 stig í 8. og þriðja neðsta sæti.
Fjölnir er með sjö stig en Völsung-
ur er með fjögur stig.
Ljóst hvaða
lið falla