Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
á von á að mörgum tónleikum verði aflýst næstu
misserin,“ segir Oddur, sem hefur verið í lausa-
mennsku frá því hann útskrifaðist frá Mozarteum-
tónlistarháskólanum í Salzburg fyrir sjö árum.
„Ég söng í fyrsta skipti í Óperunni hér heima
2014, í Don Carlo eftir Verdi, og ég hef sungið átta
hlutverk hjá Íslensku óperunni síðan þá. Ég hef
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við ætlum að byrja tónleikana á því að flytja
Wanderer-lagasyrpu og syngja níu Mayrhofer-
ljóð eftir Schubert. Þar er þessi söknuður eftir
heimalandinu, af því viðkomandi getur ekki farið
heim af einhverjum ástæðum. Það eru svo margir
í dag sem hafa þurft að flýja sitt heimili eða
heimaland til að finna betra líf annars staðar. Ég
ætla líka að syngja ljóðaflokkinn Songs of Travel,
eftir Ralph Vaughan Williams, en hann samdi lög-
in við ljóð í samnefndri ljóðabók eftir skoska rit-
höfundinn Robert Louis Stevenson,“ segir Oddur
Arnþór Jónsson barítónsöngvari, en hann og
Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari verða með
Tíbrártónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld,
þriðjudagskvöldið 29. september, kl. 19.30. Þar
ætla þau að flytja söngva förumanna.
„Stevenson var nítjándu aldar rithöfundur sem
gaf út ljóðabókina Songs of Travel árið 1896, en
hún er full af fallegum förumannsljóðum. Hann
ferðaðist um víða veröld vegna heilsu sinnar því
hann var brjóstveikur og þurfti að búa í hlýju
loftslagi. Ljóðin hans fjalla um að við eigum að
gefa fegurðinni gaum þegar við vöknum að
morgni, sem og fegurðinni að kvöldi þegar dimm-
an dettur á. Hann segir að það eina sem hann fari
fram á í lífinu sé að njóta fegurðar náttúrunnar og
fá brauð til að seðja hungur sitt. Þetta tónar við
það sem við köllum núvitund; að njóta augnabliks-
ins og vera ekki blind á fegurðina í kringum okk-
ur,“ segir Oddur og bætir við að Stevenson hafi
ekki orðið langlífur.
„Hann dó rétt fyrir aldamótin, aðeins 44 ára, og
skömmu síðar samdi Vaughan Williams tónlist við
þessi ljóð hans sem urðu fyrir vikið mjög vinsæl.“
Gott að vera heima með fólkinu mínu
Oddur segir að hann og Hrönn séu einnig með
þessum tónleikum að minnast förufólks á Íslandi
sem gekk á milli bæja í sveitum landsins allt fram
á tuttugustu öld.
„Þetta var oft kvæðafólk og góðir upplesarar
sem unnu fyrir húsaskjóli og mat meðal annars
með því að kveða, syngja eða lesa,“ segir Oddur
og bætir við að sjálfur sé hann hálfgerður föru-
maður.
„Vegna söngstarfsins þarf ég að ferðast mikið
og vera að heiman langdvölum. Ég bý í Salzburg í
Austurríki en hef á sama tíma verið að syngja
mikið á Íslandi. Fyrir vikið er mitt heima víða.
Þegar ég er á Íslandi sakna ég míns heima í
Austurríki þar sem ég á tvö börn, en þegar ég er
þar þá sakna ég Íslands, þar sem allt fólkið mitt
býr. Þegar ég er á hvorugum þessara staða sakna
ég beggja staðanna. Þetta er hlutskipti margra
listamanna, að vera förufólk sem er alltaf á ferð og
flugi til að sinna listinni. Fyrir vikið hefur covid-
ástandið að sumu leyti verið gott, ég held ég hafi
aldrei ferðast eins lítið á mínum söngferli og þetta
ár. Mér finnst gott að fá að vera heima með fólk-
inu mínu,“ segir Oddur sem skrapp til Íslands til
að syngja á Tíbrártónleikunum, með tilheyrandi
fimm daga sóttkví og tveimur skimunum.
„Verkefnum hefur fækkað verulega hjá mér í
heimsfaraldri líkt og hjá öðrum listamönnum. Ég
því mikið verið að hoppa á milli landa. Ég held að
það sé mikilvægt að sjá fegurðina í þessu covid-
ástandi, ekki einblína á það sem miður er, eins og
færri verkefni í mínu tilviki, heldur fagna kost-
unum. Ég fæ loksins tækifæri til að verja tíma
með börnunum mínum, og gera ýmislegt annað
sem ég hafði aldrei tíma til að gera.“
Barítón Oddur einblínir ekki á það sem miður er í covid, heldur fagnar hann kostunum, samverunni.
Hlutskipti margra lista-
manna að vera förufólk
Oddur og Hrönn flytja lög förumanna á Tíbrártónleikum í kvöld í Salnum
Víkingur Heiðar Ólafsson píanó-
leikari fékk afhenta gullplötu fyrir
sölu á plötunni Johann Sebastian
Bach. Platan hefur selst í yfir 2.500
eintökum á Íslandi frá því hún kom
út árið 2018. Platan er gefin út af
hinu virta alþjóðlega hljómplötu-
fyrirtæki Deutsche Grammophon
en Alda Music dreifir henni hér.
Fyrr á þessu ári kom út plata
með túlkun Víkings á verkum eftir
Rameau og Debussy. Hann mun
flytja verk af þeirri plötu á þrenn-
um tónleikum í Eldborgarsal
Hörpu. Uppselt er á tónleika 9. og
10. október, þar sem 800 gestir
geta verið á hverjum vegna fjölda-
takmarkana, en nokkur sæti eru
enn laus á tónleikana 11. október.
Víkingur fékk gull-
plötu fyrir Bach
Lukkulegur Víkingur Heiðar hampar
gullplötunni í Hörpu.
Til stóð að breska rokkhljómsveitin
Skunk Anansie, með söngkonuna
Skin í broddi fylkingar, heimsækti
Íslandi í október og héldi tónleika í
Laugardalshöll á 25 ára starfs-
afmæli sínu. Hljómsveitin lék í
Laugardalshöllinni fyrir 23 árum
og eru þeir tónleikar eftirminnileg-
ir mörgum sem sóttu þá.
Í ljósi samkomutakmarkana og
mikillar óvissu næstu mánuði af
völdum kórónuveirufaraldursins
hefur tónleikunum nú verið frestað
og þeir færðir aftur til laugardags-
ins 5. júní næsta sumar.
Í tilkynningu frá tónleikahöld-
urum segir að miðar sem seldir
hafa verið á tónleikana sem áttu að
vera í október gildi sjálfkrafa
áfram á nýrri dagsetningu. Ef fólk
vill endurgreitt eða frekari upplýs-
ingar þarf að senda póst á info-
@tix.is.
Tónleikar Skunk
Anansie í júní
Hljómsveitin Skunk Anansie.
Ákvörðun fjögurra virtra listasafna
um að fresta umfangsmikilli yfir-
litssýningu á verkum bandaríska
myndlistarmannsins Philips Gust-
ons (1913-1980) um fjögur ár hefur
vakið mikið umtal í myndlistar-
heiminum. Sýninguna „Philip Gust-
on Now“ átti fyrst að opna í þjóð-
arlistasafni Bandaríkjanna,
National Gallery í Washington
D.C., í júní síðastliðnum en opn-
uninni var frestað vegna veirufar-
aldursins. Síðan átti sýningin að
ferðast til Museum of Fine Arts í
Houston, Tate Modern í London og
Museum of Fine Arts í Boston.
Ástæðan fyrir frestuninni, sem
safnstjórarnir tilkynntu saman fyr-
ir helgi, er viðkvæmni vegna fjöl-
margra verka sem Guston málaði á
lokaskeiði ferils síns og sýna í skop-
legu ljósi menn klædda eins og liðs-
menn Ku Klux Klan-hreyfing-
arinnar sem beitir svarta ofbeldi.
Safnstjórarnir segjast fresta sýn-
ingunni, nú á tímum kynþáttaátaka
í Bandaríkjunum, þar til „áhrifa-
mikil skilaboðin sem eru miðlæg í
verkum Gustons um félagslegt rétt-
læti fyrir ólíka kynþætti“ megi
túlka með skýrari hætti. Þrátt fyrir
að viðamikil sýningarskrá sé þegar
komin út, þar á meðal með skrifum
virtra hörundsdökkra lista- og
fræðimanna, segjast safnstjórarnir
þurfa góðan tíma til að breyta
veggtextum og kennsluefni.
Guston var gyðingur og fjöl-
skylda hans flúði ofsóknir í Evrópu.
Hann þekkti því persónulega til
kynþáttaofsókna og þegar hann
sneri seint á ferlinum frá þeirri ab-
strakt list sem hann hafði orðið
frægur fyrir, og fór að skapa skop-
legar fígúratívar myndir, þá var í
þeim sterkur félagslegur undirtónn
og þar birtast liðsmenn Ku Klux
Klan með áberandi hætti. Dóttir
Gustons er ein þeirra sem hafa
gagnrýnt frestun sýningarinnar
harðlega og einnig sýningarstjóri
hennar í Tate Modern. Sakar hann
safnstjórana um að treysta áhorf-
endum ekki til að skilja hvað Gust-
on sé að fara í verkunum.
Umdeild frestun á Guston-sýningu
Umdeilt Frægt verk Philips Gust-
ons, Edge of Town, er í eigu MoMA
og sýnir menn í KKK-búningum.
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is