Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
* The New Mutants
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Frakkar eru sérlega lunknirí gerð gaman- og svokall-aðra fílgúdd-mynda semalmennilegt íslenskt orð
vantar yfir. Mynda sem ylja bíó-
gestum og senda þá brosandi heim,
mætti segja, auka vellíðan.
Á l’Abordage, eða Við stjórnvöl-
inn eins og hún nefnist í íslenskri
þýðingu, er ekki gamanmynd og í
raun skrítið að hún sé flokkuð sem
slík þótt vissulega sé hún skondin
endrum og eins. Kvikmyndin var
heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Berlín í vetur og hlaut á henni
FIPRESCI-verðlaun alþjóðlegra
samtaka kvikmyndagagnrýnenda,
merkilegt nokk. Í myndinni segir af
ungum manni, Félix, sem kynnist
ungri konu, Ölmu, og verður ást-
fanginn af henni. Þegar Alma held-
ur óvænt til Suður-Frakklands, þar
sem fjölskylda hennar er í sumar-
fríi, ákveður Félix að halda þangað
líka og leita hana uppi. Hann fer
með vini sínum, Chérif, og ungum
og taugaveikluðum bílstjóra, Édou-
ard, til sumarleyfisstaðarins í suðri
en Alma verður alls ekki kát þegar
Félix hringir í hana og tilkynnir
henni að hann sé mættur á svæðið.
Hún ákveður þó að hitta hann og í
kjölfarið eiga sér stað óvæntir at-
burðir. Édouard er á bíl móður
sinnar sem bilar og neyðast þeir því
til að dvelja á staðnum þar til við-
gerð lýkur en hún á að taka heila
viku.
Félix er þeldökkur en Alma hvít
og spyr Félix hana að því hvort hún
vilji ekki að foreldrar hennar viti af
honum af þeim sökum. Hún harð-
neitar slíkum ásökunum en maður
getur ekki annað en kennt í brjósti
um Félix sem er ástfanginn upp
fyrir haus en ást hans virðist ekki
endurgoldin. Þvert á móti fer Alma
beinlínis illa með hann.
Titill myndarinnar virðist vera
einhvers konar orðaleikur þar sem
þessi upphrópun var m.a. notuð af
sjóræningjum á öldum áður og
þýddi þá „Árás!“ en bókstafleg þýð-
ing mun vera „allir um borð“, ef ég
skil það rétt. Er Félix að gera árás?
Eða eiga allir að fara um borð og
vera með? Skilja má titilinn á ólíka
vegu, sýnist mér. Myndin gerist að
sumri til þegar hitinn er mikill, fólk
kælir sig niður með ís og köldum
drykkjum og hjörtun slá hraðar,
sérstaklega hin ungu. Strákar elt-
ast við stelpur sem ýmist daðra á
móti eða draga þá á asnaeyrunum,
eins og gengur. Félix er kvalinn af
ást, gólar fyrir utan glugga Ölmu
sem sýnir því engan áhuga. Þessi
mikla ástríða Félix er undarleg í
ljósi þess að þau þekkjast varla
neitt og skiljanlegt í raun að Alma
fari í vörn við slíku áhlaupi. Og til
að bæta gráu ofan á svart virðist
Alma vera dálítið hrifin af ungum
manni á svæðinu sem leggst illa í
Félix. Í öllu þessu drama er vinur
hans, Chérif, í góðum málum með
ungri þýskri móður á svæðinu sem
virðist hafa fallið fyrir honum enda
ljúfmenni mikið. En eins og kemur
í ljós síðar óttast Chérif að mynda
raunveruleg og langvarandi sam-
bönd við konur og móðirin unga
reynist ekki á lausu.
Þetta er ágæt kvikmynd en mér
er þó hulið hvers vegna hún hlaut
fyrrnefnd verðlaun gagnrýnenda í
Berlín. Leikararnir eru fínir, þar
fer óþekktur hópur ungs fólks og
handritið er ágætt og persónur
marghliða. Allir hafa sína kosti og
galla og þeim er komið vel til skila.
Karlarnir eru ekki einu kjánarnir
því konur geta líka verið kjánar.
Munurinn er kannski sá að þær við-
urkenna frekar galla sína og hafa
minni tilhneigingu til að leysa úr
ágreiningi með hnefunum. Góðlát-
legt grín er gert að hanaslag hinna
ungu karla og metingi þeirra í
myndinni og handritshöfundar
gæta þess að gleyma ekki kven-
persónum, eins og svo oft vill því
miður verða.
Við stjórnvölinn (sú þýðing virð-
ist vera kaldhæðni þar sem persón-
ur virðast einmitt ekki vera við
stjórnvölinn) er ágæt kvikmynd
sem skilur þó heldur lítið eftir sig.
Þroskasaga úr sumarfríi, gaman,
drama og „feelgood“ í bland.
Barngóður Chérif gætir barns ungrar móður sem hann verður hrifinn af í kvikmyndinni À l’abordage.
Þroskasaga úr sumarfríi
RIFF – Alþjóðleg kvikmynda-
hátíð í Reykjavík
Við stjórnvölinn/Á l’Abordage
bbbnn
Leikstjóri: Guillaume Brac. Handrit:
Guillaume Brac og Catherine Paillé.
Aðalleikarar: Éric Nantchouang, Salif
Cissé, Édouard Sulpice, Asma Messaou-
dene og Ana Blagojevic. Frakkland,
2020. 95 mín. Flokkur: Fyrir opnu hafi.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Stjórnendur
Metropoli-
tan-óperunnar í
New York, fjöl-
mennasta vinnu-
staðar sviðslista-
manna í Banda-
ríkjunum, hafa
tilkynnt að vegna
kórónuveiru-
faraldursins
verði engar sýn-
ingar settar upp í stofnuninni í vet-
ur. Er óperan, að sögn The New
York Times, í dýpstu krísu sem hún
hefur gengið í gegnum í 137 ára
sögu.
Óperuhúsið tekur 3.800 gesti í
sæti en þar sem engar sýningar
hafa verið síðan í mars hefur óper-
an orðið af 150 milljónum dala í
tekjur og hafa um 1.000 starfs-
menn, þar á meðal hin fræga óperu-
hljómsveit og kórinn, verið frá
vinnu. Óperustjórinn, Peter Gelb,
er sagður leita allra leiða til að
skera niður kostnað, meðal annars
með því að fækka fólki. Hann segist
þó meðvitaður um að ekki megi láta
listamenn í fremstu röð hverfa á
braut, það verði þeir sem laði gesti
aftur að húsinu þegar veiran tekur
að hörfa; það verði að koma bönd-
um á tapið en halda í listamennina.
Engar sýningar í
The Met í vetur
Metropolitan-
óperuhúsið.
Lára Bryndís
Eggertsdóttir,
organisti Hjalla-
kirkju, kemur
fram á hádegis-
tónleikum í
Hafnar-
fjarðarkirkju í
dag, þriðjudag.
Hefjast þeir kl.
12.15 og standa í
um hálfa
klukkustund. Lára Bryndís leikur
á bæði orgel kirkjunnar og á efnis-
skránni er á tímum kórónuveiru
eins konar „kórónu-þema“. Meðal
höfunda verkanna eru Antonio
Coronaro og Michel Corrette „og
verkin bera titla á borð við Ge-
sänge aus Corona, Corona ‘1911‘
og (rúsínan í pylsuendanum) Cor-
ona March.“
Lára Bryndís
Eggertsdóttir
Leikur í Hafnar-
fjarðarkirkju