Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 32
Húsfyllir var við opnun sýningar Gjörningaklúbbsins í
Galleri NordNorge í Harstad í Norður-Noregi á laugar-
dag. Sýninguna kalla þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní
Jónsdóttir, sem nú skipa Gjörningaklúbbinn, „Vatn og
olíu“ og eru á henni verk unnin út frá og í samspili við
myndverk eftir Ragnhild Kaarbø (1889-1949) sem varð-
veitt eru í Galleri NordNorge. Í frétt Harstad Tidende
um mannmarga opnunina segir að um 30 verk hinna al-
þjóðlegu listakvenna sem sýnd eru veki athygli og þar á
meðal sé litrík innsetning úr um 200 sokkabuxum.
Húsfyllir við opnun sýningar Gjörn-
ingaklúbbsins í Harstad í Noregi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kvennalið Tindastóls á Sauðárkróki
leikur í efstu deild á næsta tímabili og
er fyrsta fótboltalið félagsins í
kvenna- og karlaflokki sem nær þeim
árangri. „Ég brosi út að eyrum, er
mjög stolt og er afskaplega ánægð
með árangurinn,“ segir Vanda Sigur-
geirsdóttir, fyrsta konan, svo vitað sé,
til að spila opinberan leik fyrir Tinda-
stól, lék með strákunum í 5., 4. og 3.
flokki, því ekkert kvennalið var á
Króknum á áttunda áratugnum.
Stelpurnar voru nálægt því að kom-
ast upp í fyrra og Vanda, sem er lekt-
or í tómstunda- og félagsmálafræði í
Háskóla Íslands, segist hafa átt von á
því að takmarkið yrði að veruleika í
ár. Liðið sé vel skipað með þrjá mjög
góða erlenda leikmenn í lykilstöðum.
„Þetta er flottur hópur auk þess sem
uppbyggingin hefur verið markviss
undanfarin ár.“
Fyrstu kynni Vöndu af fótbolta
voru í barnaskóla í Danmörku, þar
sem hún bjó með foreldrum sínum.
„Stelpurnar vildu alltaf vera inni í frí-
mínútum, búningaleikjum og ein-
hverju slíku sem ég hafði engan áhuga
á, ég vildi fara út og sparka bolta með
strákunum og gerði það,“ rifjar hún
upp. Síðan fluttu þau á Dalvík, þar
sem krakkarnir bjuggu til sín lið og
léku innbyrðis. „Ég, Arnljótur Dav-
íðsson, Hermína Gunnþórsdóttir,
Hólmfríður Hilmarsdóttir, Arna Jó-
hannsdóttir og Ingigerður Júlíus-
dóttir, ef ég man rétt, stofnuðum til
dæmis Fótboltafélagið Chaplin.“
Móðir kvennaboltans
Eftir að fjölskyldan flutti aftur á
Sauðárkrók fór Vanda í fyrsta sinn á
skipulagða æfingu, með 5. flokki
drengja. „Á leiðinni á æfingu mætti
ég tveimur stelpum. „Þetta þýðir ekk-
ert, Vanda, við fáum ekki að vera
með,“ sögðu þær. Ég hélt samt áfram,
byrjaði á æfingunni og var bara ein af
strákunum, held reyndar að þjálf-
arinn hafi haldið að ég væri strákur!“
Vanda stóð strákunum fyllilega á
sporði en óvissa ríkti um hvort hún
mætti spila með þeim og því minnist
hún þess að hún hafi verið kölluð
Vambi. „Mörgum árum seinna var ég
fyrir norðan og þá voru stelpurnar í 3.
flokki að berjast fyrir því að fá að
keppa á Íslandsmótinu,“ segir hún.
„Við héldum fund, bréf var skrifað og
allar stelpurnar skrifuðu undir, en
nokkrar þeirra vantaði. Ég skrifaði
því nöfn þeirra með mismunandi
skrift, erindið var samþykkt og stelp-
urnar kepptu.“
Þegar Vanda byrjaði í Mennta-
skólanum á Akureyri gekk hún í KA
og lék í fyrsta skipti með kvennaliði
1982. Síðan lá leiðin til ÍA í efstu deild
og í kjölfarið kom glæstur ferill sem
leikmaður, landsliðskona og þjálfari.
Í viðtali við fotbolti.net þakkaði Jón
Stefán Jónsson, þjálfari Tindastóls,
þeim sem höfðu lagt sitt af mörkum
eftir að sætið í efstu deild var tryggt,
„ekki síst móður kvennafótboltans á
Króknum og einni af drottningum
kvennaboltans á Íslandi, Vöndu Sig-
urgeirsdóttur“. Hún flutti norður og
tók þátt í að endurreisa kvennabolt-
ann á Króknum fyrir um 14 árum.
Fór í stjórn og lét til sín taka, þjálfaði
yngri flokka og tók við þjálfun meist-
araflokks kvenna 2007. „Endur-
reisnin hófst á þessum árum og hefur
verið óslitin síðan, fyrst og fremst
vegna starfa þjálfaranna, sérstaklega
Guðjóns Arnar Jóhannssonar og
Dúfu Drafnar Ásbjörnsdóttur, góðs
fólks í stjórn og frábærra stuðnings-
manna,“ segir Vanda.
Ljósmynd/Ómar Bragi Stefánsson
Vanda í 5. flokki Tindastóls Aftari röð frá vinstri: Hólmar Ástvaldsson, Eiríkur Sverrisson, Jósafat Jónsson, Jón
Þór Jósepsson, Vanda Sigurgeirsdóttir, Pétur Helgason, Sigurður Ölvir Bragason (d. 1986) og Hallgrímur Blöndal.
Neðri röð frá vinstri: Rúnar Ingi Björnsson (d. 1980), Páll Snævar Brynjarsson, Hermann Sæmundsson, Þórhallur
Björnsson, Úlfar Ragnarsson og Ómar Rafn Halldórsson.
Chaplin ekki bara grín
Vanda fyrsta konan til að spila fótbolta með Tindastóli
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
Airpop Light SE
öndunargríma
• Gríman er létt og situr vel á andlitinu
• Hindrar móðumyndun upp á gleraugu
• Það er léttara að anda í gegnum
Airpop Light SE en hefðbundnar grímur
• Hægt að nota í allt að 40 klst
(samtals notkun)
• Endurlokanlegar umbúðir til að geyma
hana milli þess sem þú notar hana
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 273. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Akureyringurinn Hallgrímur Mar B. Steingrímsson átti
sinn besta leik í sumar þegar lið hans KA heimsótti
Gróttu í úrvalsdeild karla í knattspyrnu á sunnudaginn.
Hallgrímur, sem verður þrítugur á föstudaginn kemur,
skoraði þrennu í 4:2-sigri KA en liðið fór með sigrinum
upp í áttunda sæti deildarinnar í 19 stig og er nú 11
stigum frá fallsæti þegar sex umferðir eru eftir af tíma-
bilinu. Hallgrímur er í liði umferðarinnar sem er birt í
blaðinu en lið umferðarinnar í Pepsí Max-deild kvenna
er einnig að finna í blaðinu í dag. »27
Hallgrímur Mar hrökk í gang
þegar KA vann á Seltjarnarnesi
ÍÞRÓTTIR MENNING