Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 39
Fæstir eiga safavél heimahjá sér og ennþá færrinenna að standa í því að pressa sér hreinan rauðrófusafa á hverjum degi þar sem því fylgir mikið uppvask og býður upp á að litarefnið úr safanum litar allt sem það kemst í tæri við segir Sólveig Bergsdóttir landsliðskona sem deilir með okkur mögnuðu reynslu sinni á náttúrulegu rauðrófuhylkjunum frá Natures aid. Meiri orka sem endist ,,Rauðrófuhylkin er ótrúlega þæginleg lausn þar sem ég hef oftast nær lítinn tíma heima, hvort sem það er á morgnana eða fyrir æfingar. Ég hef lengi þekkt heilsueflandi eiginleika rauðrófunnar og þegar ég komst að því að hægt væri að taka duft í stað safans varð ég spennt að geta bætt þessu loksins inn í mína daglegu bætiefnarútínu. Það sem ég gerði fyrst var að lesa mér til um töflurnar, athuga innihaldið og hvernig þær eru framleiddar. Það skiptir máli að þetta sé alvöru og að sjálfsögðu mikilvægt að það séu engin óæskileg aukaefni, sérstaklega fyrir íþróttafólk sem stundar alþjóðlegar keppnir sem krefjast lyfjaprófa. Ég ákvað að prófa að taka töflurnar á mismunandi tímum dags, en mestan mun fann ég þegar ég tók þær fyrir æfingar. Ég kýs að borða ekki stóra máltíð fyrir æfingu heldur létta máltíð u.þ.b. 2 tímum fyrir. Hálftíma fyrir æfinguna tek ég tvær töflur af rauðrófuhylkjunum frá Natures Aid og áhrifin koma fram þegar æfingin byrjar. Það sem ég finn helst fyrir er að líkaminn er fljótari að hitna og helst lengur heitur eftir upphitun. Það er kannski erfitt að útskýra tilfinninguna en ég get helst borið þetta saman við rótsterkan espressóbolla sem hressti mig við næstu tvo tímana, eins og eins konar ‘preworkout’ án aukaverkana. Ég hef notað Beetroot í hálft ár núna og reyni að taka þau daglega. Mæli innilega með þeim fyrir alla, og sérstaklega íþróttafólk.“ segir Sólveig Bergsdóttir, landliðskona í fimleikum 100% náttúruleg innihaldsefni Rauðrófur eru af sömu plöntuætt og spínat, skrauthalaætt (Amaranthaceae) og tilheyra tegundinni Beta vulgaris. Þær eru sneisafullar af næringar- og plöntuefnum og innihalda m.a. ríkulegt magn af járni, A-, B6- og C-vítamíni, fólínsýru, magnesíum og kalíum. Þar að auki innihalda þær góð flókin kolvetni, trefjar og öflug andoxunarefni. Rauðrófur eru ráðlagðar fólki sem glímir við blóðleysi og slappleika vegna járn innihalds m.a. Lífrænu rauðrófuhylkin frá Natures Aid eru góð fyrir alla sem vilja viðhalda góðri heilsu. Það er mikill hægðarauki fyrir marga að geta tekið inn rauðrófuhylki því ekki eru allir jafn hrifnir af bragðinu af rauðrófunni eða rauðrófusafanum. Viðtökur Íslendinga við Organic Beetroot frá Natures Aid hafa verið ótrúlega góðar og flestir kaupa þessa vöru aftur og aftur vegna þeirra áhrifa sem þeir finna. Margir tala um að úthald við íþróttaiðkun aukist en einnig eru margir á því að hand- og fótkuldi minnki til muna. Vegna æðavíkkandi áhrifa er það einnig algengt að blóðþrýstingur lækki. Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum verið talin geta haft ýmis heilsueflandi áhrif m.a:  aukið blóðflæði  lækkað blóðþrýsting  bætt súrefnisupptöku  aukið úthald, þrek og orku  góð áhrif á hjarta- og æðakerfi Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða og verslana. Flestir hafa heyrt um eplaedikog ýmsa kosti þess að notasér það til heilsubótar. Síðan 1970 hefur það verið kynnt og selt sem heilsubætandi „elexír“ þó svo að ekki liggi klínískar rannsóknir þar að baki, frekar en á ýmsum öðrum matvælum sem eru þó klárlega vel til þess fallin að auka hreysti og vellíðan. Talið er að eplaedikið geti hjálpað til við þyngdartap, jafnað blóðsykurinn og að eplasýran geti komið í veg fyrir að bakteríur í líkamanum nái að fjölga sér. Brjóstsviði og bjúgur Þrátt fyrir að eplaedikið sé súrt á bragðið veldur það ekki því að t.d. brjóstsviði aukist. Það virkar akkúrat öfugt og getur því verið þjóðráð að taka eplaedik (eða sítrónusafa) fyrst á morgnana og fyrir mat og draga þannig úr líkum á – eða jafnvel losna við brjóstsviða. Rannsóknir* hafa sýnt fram á að neysla eplaediks dugi til að hafa áhrif á blóðsykurviðbrögð og sýrustig. Talið er að regluleg inntaka á eplaediki geti verið gott fyrir sýrustig líkamans og dregið úr bjúgsöfnun. Margir hafa of hátt sýrustig í líkamanum sem getur verið tilkomið vegna lifnaðarhátta (streita og mataræði) og getur þess háttar ástand valdið ýmiskonar kvillum. Verðlaunuð detox vara Apple Cider frá New Nordic er vinsæl vara sem hefur reynst mörgum vel. Hún var valin besta grenningar eða detox varan 2019 af hollenska blaðinu Healthy Living. Rannsóknir gefa til kynna að neysla eplaediks getur haft afar jákvæð áhrif á blóðsykurinn og meltinguna, en Apple Cider frá New Nordic inniheldur einnig króm sem er þekkt fyrir að stuðla að eðlilegum efnaskiptum og viðhaldi eðlilegs glúkósamagns í blóðinu. Jafnari blóðsykur Aðalheiður Ásdís, eða Allý eins og hún er kölluð, er matarbloggari með meiru. Hún heldur úti vefsíðunni Lágkolvetna Góðgæti, þar sem hún deilir girnilegum uppskriftum og áhugaverðum fróðleik um lágkolvetna lífsstílinn. Hún hefur verið að taka inn Apple Cider töflurnar frá New Nordic í þó nokkurn tíma og deilir hér með okkur sinni reynslu. Afhverju frekar Eplaedik í töfluformi? Mörgum líkar ekki við bragðið af eplaedikinu og sleppa því þess vegna. Apple Cider töflurnar frá New Nordic eru því kærkomnar fyrir marga sem eiga erfitt með inntöku á eplaediki en töflurnar innihalda einnig heilsueflandi jurtir á borð við ætiþistil, túnfífil, króm og kólín sem stuðlar að eðlilegum efnaskiptum á fitu sem og viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar. Ráðlagður dagskammtur af þessum „lífsins elexír“ er ein tafla með vatnsglasi. * https://www.ncbi.nlm.nih.gov/ pubmed/7796781 Fæst í stórmörkuðum, apótekum og heilsuverslunum Aukin orka á æfingum og lengra úthald Rauðrófan hefur í aldanna raðir verið þekkt fyrir heilsubætandi áhrif. Rauðrófan inniheldur nítrat sem er talin geta haft æðavíkkandi áhrif og aukið blóðflæði. Afleiðingar þess geta því verið að blóðþrýstingur lækkar og súrefnisflæði í blóði eykst sem er eitthvað sem íþróttafólk leitast oft eftir. Einnig getur það verið gott gegn háum blóðþrýstingi og getur dregið verulega úr hand- og fótkulda svo eitthvað sé nefnt. Aðalheiður Ásdís finnur mikinn mun ámeltingunni eftir að hún prófaði Apple Cider töflurnar. Eplaedik hefur verið notað sem heilsubótarefni í aldaraðir, bæði sem forvörn og vegna læknandi eiginleika. Nú er það fáanlegt í töfluformi sem eru góðar fréttir, sérstaklega fyrir tennurnar Sólveig Bergsdóttir Íslandsmeistari og landsliðskona í fimleikum hefur verið að taka rauðrófuhylki frá Natures aid daglega í dágóðan tíma ogmælir með fyrir alla, sérstaklega íþróttafólk. „Hálftíma fyrir æfinguna tek ég tvær töflur af rauðrófuhylkjunum frá Natures Aid. Það sem ég finn helst fyrir er að líkaminn er fljótari að hitna og helst lengur heitur eftir upphitun.“ Er eplaedik náttúrulegt kraftaverk? Apple Cider töflurnar frá New Nordic var valin besta grenningar eða detox varan healthy living 2019 „Apple Cider hjálpar mikið til við sykurpúkann og kemur reglu á meltinguna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.