Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Í vikunni hófst uppsetning á nýju orgeli í Kefla- víkurkirkju. Áætlað er að verkinu ljúki undir lok nóvember og stefnir organistinn á að frum- spila á orgelið fyrsta sunnudag í aðventu. Með nýja orgelinu lýkur endurbótum á Keflavík- urkirkju sem hófust árið 2012 með því að færa hana í upprunalegt horf. „Þetta er að megninu til nýtt hljóðfæri, en gömlu pípurnar voru flestar nothæfar og í góðu standi og því notuðum við þær áfram. Það er mikill kostur. Hins vegar þurfti að endurnýja allan búnaðinn,“ segir Björgvin Tómasson org- elsmiður í samtali við fréttaritara Morg- unblaðsins. Vinna við endurnýjun orgelsins hófst árið 2011 með því að hrinda af stað söfnun. Lítið fjármagn var þá í orgelsjóðnum sem stofnaður var árið 1995 í minningu Árna Vigfúsar Árna- sonar, fyrrverandi formanns sóknarnefndar Keflavíkursóknar. Fjármagn mjatlaðist í org- elsjóðinn smátt og smátt og í upphafi þessa árs var ljóst að nægt fjármagn hafði safnast og hægt að hefja vinnu við verkið. Að vel athuguðu máli var ákveðið að fá Björgvin Tómasson org- elsmið til þess að endurgera orgelið, sem var af Walcker-gerð, smíðað í Vestur-Þýskalandi árið 1967, enda ljóst að kostnaður yrði töluvert minni. Áætlað var að nýtt orgel myndi kosta um 60 milljónir en kostnaður við endurbætur verður vel innan við 40 milljónir króna. Um einn og hálfan mánuð tekur að setja upp nýja orgelið og segir Arnór Vilbergsson org- anisti drauminn vera að geta vígt orgelið fyrsta sunnudag í aðventu, en þá hefst nýtt kirkjuár. „Ég hlakka til að keyra á drottningunni,“ segir Arnór og er að vonum spenntur yfir nýja orgelinu enda þarf hann þá ekki lengur að sparka í hljóðfærið en nóturnar áttu það til að festast í miðju tónverki. Að auki verður orgelið nýja 20 radda og Björgvin er búinn að útbúa nokkurs konar bassabox á kirkjuloftinu, í rými sem annars var ónotað. Þar verða bassapíp- urnar. „Svo nýtum við okkur tölvutæknina en það er mikið gert í orgelheiminum í dag. Auk þess að nýta hana í orgelinu sjálfu verður aukaspila- borð niðri í kirkju sem tengt verður orgelinu með tölvutækni,“ segir Björgvin. Arnór segir það mikla byltingu fyrir organistann að geta setið niðri meðal kirkjugesta og spilað á og stýrt orgelinu þaðan.  Verið að setja upp nýtt orgel í Keflavíkurkirkju Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Orgel Smíðuð var ný framhlið á orgelið af Jóhanni Halli Jónssyni sem er aðal mumblusmiður verksins. Framan við hliðið standa Grétar Reinharðsson rafvirki hjá Nesraf sem vinnur við raf- lagnirnar, Arnór Vilbergsson organisti sem býður spenntur eftir nýja orgelinu, Björgvin Tóm- asson orgelsmiður og Margrét Erlingsdóttir rafvirki sem er eiginkona Björgvins og samstarfs- kona. Á myndina vantar Júlíus Björgvinsson sem einnig vinnur að uppsetningu orgelsins. Uppsetning Það er engu líkara en Margrét sé að hugleiða þar sem hún vinnur við uppsetningu orgelverksins, enda mikil nákvæmnisvinna hér á ferð. Þar sem áður var málmur er nú tré. „Þarf ekki lengur að sparka í orgelið“ „Við erum sorgmædd yfir þessu því það er erfitt að byggja upp traust aft- ur,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borg- ara um niðurstöðu stjórnsýsluúttekt- ar á störfum Tryggingastofnunar rík- isins (TR). Í yfirlýsingu Landssambands eldri borgara (LEB) segir að stjórnsýslu- úttektin, sem leiddi í ljós að 87-90,6% lífeyrisþega fengu rangar greiðslur frá TR á árunum 2016-2019, sé áfall fyrir alla aðila málsins, sérstaklega í ljósi þess að stofnunin hafi verið talin vinna vel til þessa. „Við gagnrýnum það harðlega að erfitt sé að framfylgja lögunum. Lög eru einfaldlega ekki nógu vel samin ef það er ekki hægt að framfylgja þeim. Meginmarkmið laganna frá 2017 er að einfalda kerfið en það hefur ekki gerst. Það að fólk geti ekki leitað rétt- ar síns auðveldlega tel ég vera mjög slæma stöðu,“ segir Þórunn. „Í úttektinni er bent á hvað núgild- andi lög um lífeyri eru ógagnsæ og erfið til að vinna eftir. Er sú niður- staða alveg í þeim anda sem við hjá Landssambandi eldri borgara höfum bent á. Lögin frá 2017 áttu að vera til einföldunar, en gera það ekki. Þau eru vandræði,“ segir í yfirlýsingu LEB. Lögin kveða á um að endur- reikna þurfi greiðslur til fólks ef tekjuáætlanir þess eru ekki í fullkomnu sam- ræmi við raun- tekjur ársins. Endurreikningur um 90% árstekna greiðsluþega TR sé grafalvarlegt mál og bjóði heim hættu á mistökum. „Margt annað vekur athygli í skýrslu ríkisendurskoðunar, s.s. starf umboðsmanns lífeyrisþega sem TR hefur fengið sérstaka fjárveitingu til árlega síðustu fjögur ár er ekki enn orðið að veruleika eftir fjögur ár og lítið verið um rætt. Mat okkar hjá LEB er að umboðs- maður lífeyrisþega væri betur kom- inn hjá ýmsum öðrum en innanhúss hjá TR, t.d. LEB eða hjá öðrum ábyrgum aðilum sem frekar þjóna fólki til að endurskoða mál þeirra. Nú þarf að bregðast hratt við og vinna að úrbótum svo að TR hljóti aft- ur fullt traust þeirra sem þangað sækja sína framfærslu,“ segir í nið- urlagi yfirlýsingar LEB. Erfitt að byggja upp traust aftur  Úttekt á TR áfall, að mati LEB Þórunn Sveinbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.