Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
ÁAlþingi í gær áttu sér stað orða-skipti sem vonandi leiða til já-
kvæðra breytinga. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Miðflokks-
ins, spurði Bjarna Benediktsson, fjár-
mála- og efnahags-
ráðherra, að því
hvort nú væri ekki
rétti tíminn til að rík-
ið fengi meira fyrir
peningana sem það
setti í heilbrigð-
isþjónustu. Þörfin
fyrir þá þjónustu
væri mikil vegna far-
aldursins og
efnahags-
niðursveiflan sú
mesta í heila öld.
Sigmundur Davíðbenti á að hægt
væri að fá meira fyr-
ir peningana með því að „semja við
einkareknar stofur um að fást við
þær aðgerðir sem hafa í mörgum til-
vikum beðið mánuðum, jafnvel árum
saman. Við þekkjum öll dæmi um að
fólk sé sent til Svíþjóðar eða Dan-
merkur í aðgerðir á einkastofum þar
á kostnað ríkisins, sem er þá jafnvel
margfaldur, þrefaldur á við það sem
myndi kosta að framkvæma slíkar
aðgerðir hér heima“.
Bjarni tók þessu vel, lýsti eiginreynslu af aðgerðum utan op-
inbera kerfisins og sagðist telja að
alltaf væri „rétti tíminn til að fara vel
með peningana“ og sagði ástæðu nú
til að treysta meira á aðra en Land-
spítalann vegna mikilla anna þar.
Hann benti líka á að fráflæðisvandinn
svokallaði hamlaði starfsemi spít-
alans og að verið væri að reyna að
auka framboð hjúkrunarrýma utan
hins opinbera kerfis til að leysa vand-
ann.
Það skiptir máli að skilningur sé áþessu í fjármálaráðuneytinu, en
er hann einnig í heilbrigðisráðuneyt-
inu? Fátt bendir til þess, því miður.
Bjarni
Benediktsson
Er skilningurinn
víðar í kerfinu?
STAKSTEINAR
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bílaleigu var ekki heimilt að bjóða
viðskiptavinum sínum, sem komust
ekki hingað til lands í sumar vegna
kórónuveirunnar, aðeins inneign í
stað endurgreiðslu. Þetta kemur
fram í tveimur úrskurðum Kæru-
nefndar vöru- og þjónustukaupa.
Ekki kemur fram hvort um sömu
bílaleigu er að ræða í báðum tilvik-
um.
Í úrskurðum nefndarinnar er rak-
ið að báðir viðskiptavinir fóru fram á
endurgreiðslu vegna afbókunar á
fyrirhugraðri leigu á bifreið. Annar
ferðalangurinn hafði greitt um 44
þúsund krónur fyrir leiguna en hinn
ríflega 133 þúsund krónur. Sá síð-
arnefndi tiltók sérstaklega að hann
hefði valið umrædda bílaleigu vegna
þess hve sveigjanlegir skilmálar
væru í boði um endurgreiðslu í kjöl-
far afbókunar. Endurgreiðsla fékkst
þó ekki en boðið var 25% álag á
leigugjaldið í formi inneignar.
Í leigusamningi kom fram að
leigutaki mátti hætta við leiguna
með tveggja daga fyrirvara og fá að
fullu endurgreitt. Hann hætti við
með þriggja og hálfs mánaðar fyr-
irvara. Skal bílaleigan því endur-
greiða viðskiptavini sínum „sam-
kvæmt skýru ákvæði leigusamnings-
ins“, segir í úrskurði nefndarinnar.
hdm@mbl.is
Mátti ekki bjóða inneign á bílaleigu
Bílaleiga fór gegn skýru ákvæði
leigusamnings Þarf að endurgreiða
Morgunblaðið/Eggert
Bílaleiga Erfitt sumar að baki hjá
mörgum vegna kórónuveirunnar.
Fyrri hluti aðalfundar Lands-
sambands smábátaeigenda var hald-
inn í gær. Um óhefðbundinn fund með
fjarfundabúnaði var að ræða og aðeins
hluti hefðbundinna aðalfundarstarfa á
dagskrá. Fundinum verður lokið þeg-
ar aðstæður leyfa.
Í skýrslu sinni gagnrýndi Örn Páls-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambandsins, sjávarútvegsráðherra,
fyrir viðbrögð hans í upphafi kórónu-
veirufaraldursins. Óskað var eftir
aukningu geymsluheimilda milli fisk-
veiðiára og að 12 daga til strandveiða í
hverjum mánuði væri hægt að yfir-
færa milli mánaða. „Viðbrögð sjáv-
arútvegsráðherra við umleitunum LS
gáfu til kynna að hann væri ekki í
startholum Usains Bolts til að hlaupa
með keflið inn á ríkisstjórnarfund til
að fá heimild til lagabreytinga eða
hann sjálfur að munda pennann til
breytinga á reglugerðum. Aldeilis
ekki.“
Örn gagnrýndi stöðvun grásleppu-
veiða síðasta vor áður en hluti leyfis-
hafa hafði byrjað veiðar. Hann sagði
að Landssambandið hefði fengið álits-
gerð lögmanns um málið. Þá sagði Örn
að hrun hefði orðið á verði á frosinni
grásleppu.
Frumvarp um kvótasetningu grá-
sleppu kallaði Örn „annað ófriðarbál í
boði sjávarútvegsráðherra“. Hann
sagði það verða verkefni síðari hluta
aðalfundar LS að finna farsælustu nið-
urstöðuna í þessu erfiða máli.
Tveir í framboði til formanns
Tveir hafa boðið sig fram til for-
manns LS, en Þorlákur Halldórsson
hefur ákveðið að láta af störfum eftir
eitt ár á formannsstóli.
Arthur Bogason, sem var formaður
LS í tæplega 30 ár til 2013 og er heið-
ursfélagi sambandsins, gefur kost á
sér nýjan leik. Einnig býður Gunnar
Ingiberg Guðmundsson sig fram.
Hann á og rekur bát í strandveiðikerf-
inu og stundar nám við tölvunarfræði-
deild HR. Hann var í öðru sæti á lista
Pírata í kosningunum 2016 og sat um
tíma sem varamaður á Alþingi vet-
urinn 2016-2017. aij@mbl.is
Ekki eins og Bolt
upp úr startholum
Gagnrýni á ráð-
herra á aðalfundi LS
Arthur
Bogason
Gunnar Ingiberg
Guðmundsson