Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is VINNUFATNAÐUR MERKINGAR Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Elsti aldurshópurinn í Garðabæ, 67 ára og eldri, er best á sig kominn, bæði líkamlega og andlega, af öllum aldurshópum. Greindir hafa verið lífsstílsþættir sem hafa áhrif á vel- sæld og velferð íbúa. Kom á óvart hvað ástandið var miklu betra en hjá til dæmis fólki á aldrinum 18 til 44 en þar er andleg líðan og streita áber- andi. Unnið er að úttekt á velsæld og velferð íbúa Garðabæjar vegna mót- unar velsældarstefnu bæjarins. Fengnir voru ráðgjafar til að taka stöðuna eins og hún er þegar verk- efnið hefst. Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi Garðabæjar, segir að tilgangurinn sé að geta farið í markvissar aðgerð- ir til heilsueflingar. Glíma oft við streitu Við stöðuskýrsluna voru rýnd þau gögn sem til eru, meðal annars nið- urstöður langtímarannsóknar emb- ættis landlæknis, og kannað hvort og þá hvar Garðbæingar stunda heilsurækt. Þá voru lagðar spurn- ingar fyrir alla íbúa 67 ára og eldri sem ekki nýta heimaþjónustu. Samantekt um stöðu áhættuþátta heilbrigðis gefur til kynna að nei- kvæðir áhættuþættir heilbrigðis séu mest áberandi hjá tveimur yngstu aldurshópunum, það er að segja hjá 17 ára og yngri og 18 til 44 ára. Skýrsluhöfundar segja athyglisvert hversu bágborin andleg líðan og mikil streita er hjá síðarnefnda hópnum, 18-44 ára. Þriðjungur fólks á þessum aldri segist oft eða mjög oft upplifa mikla streitu í daglegu lífi og fjórðungur glímir við andlega vanlíðan. Fólk í þessum hópi hreyfir sig minna en fólk í öðrum aldurs- hópum. Þá er minnst á það í grein- ingu að mikill einmanaleiki hjá karl- mönnum á aldrinum 18 til 26 ára sé mikið áhyggjuefni sem verði að taka alvarlega. Það vakti athygli skýrsluhöfunda að elsti aldurshópurinn, 67 ára og eldri, er best á sig kominn, bæði lík- amlega og andlega. Þar er lægst tíðni ofþyngdar, fólk hreyfir sig oft- ar, kyrrseta er lítil, fólki líður betur andlega og streita ekki teljandi. Fólk sefur vel og lengi og einmana- leiki er ekki teljandi. Þótt fólk á aldrinum 45 til 66 ára sé ekki eins vel á sig komið og eldri borgarar eru neikvæðir áhættu- þættir heilbrigðis ekki eins algengir eða alvarlegir og hjá yngri aldurs- hópunum. Hluti af stærra samfélagsmáli Niðurstöður úttektarinnar voru að mest þörf sé á úrbótum í tengslum við áhættuþætti heil- brigðis hjá tveimur yngstu aldurs- hópunum. Telur Kári að vanlíðan fólks á aldrinum 18 til 44 ára sé hluti af stærra samfélagsmáli. Fólkið sé í miklum önnum, meðal annars að klára nám, stofna fjölskyldu, koma þaki yfir höfuðið og skutla börn- unum í frístundir. Mikilvægt sé að fá fólk til að slaka aðeins á í lífsgæða- kapphlaupinu. Hann segir ljóst að við mörkun velsældarstefnu Garðabæjar þurfi að beina sjónum meira að yngra fólkinu. Greina þurfi betur hvað sé í gangi og það er einnig niðurstaða höfunda úttektarinnar. Elstu íbúarnir eru best á sig komnir  Niðurstaða úttektar á velsæld og velferð íbúa Garðabæjar gefur til kynna að andleg líðan fólks á aldrinum 18 til 44 sé bágborin  Talin þörf á að grípa til aðgerða í þágu fólks undir 44 ára aldri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upphitun Kvennahlaupið í Garðabæ virkjar kraftinn árlega. Hreyfing er öllum mikilvæg, yngra fólki jafnt og eldra. Hjónin Kládía og Ingvar Pétursson, sem hafa búið í Reykjavík undanfarin fimm sumur en eiga annars heima í Bandaríkjunum, ætluðu að ganga Jak- obsveginn, um 800 km pílagrímsleið frá Saint-Jean-Pied-de-Port í Frakk- landi að dómkirkjunni í Santiago de Compostela á Spáni, í sumar. Eins og fram kom í viðtali við þau í Morgunblaðinu gekk það ekki eftir vegna kór- ónuveirunnar. Þá ákvað hún að ganga sömu vegalengd á götum Reykjavík- ur og Ingvar gekk stundum með henni. „Göturnar í Reykjavík voru ekki nógu margar svo ég fór út fyrir borgina og lauk göngunni í grennd við Bessastaði á Álftanesi,“ segir Kládía, sem náði takmarkinu um helgina. „Nú þekki ég svæðið vel.“ steinthor@mbl.is Ljósmynd/Ingvar Pétursson Kládía reynslunni ríkari Gekk Jakobsveginn á höfuðborgarsvæðinu á 44 dögum Ferðaskrifstofa þarf að endur- greiða að fullu pakkaferð sem bókuð hafði verið í vor en varð að aflýsa af völdum kórónuveirunnar. Um er að ræða útskriftarferð Borgarholtsskóla sem ferðaskrif- stofan Tripical skipulagði. Einn útskriftarnemanna lagði fram kæru hjá Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa og fór fram á að fá endurgreiddar tæpar 190 þúsund krónur sem greiddar höfðu verið vegna ferðar til Krítar í Grikklandi í maí. „Í byrjun maí árið 2020 kveðst sóknaraðili hafa orðið þess fullviss að ferðin yrði ekki farin vegna út- breiðslu Covid-19-sjúkdómsins. Ósk- aði sóknaraðili eftir endurgreiðslu fyrir ferðina með tölvupósti hinn 12. maí 2020, en ekkert svar barst. Varnaraðili tilkynnti hinn 24. maí 2020 að sögn sóknaraðila að ferðinni hefði verið aflýst. Sóknaraðili kveðst hafa ítrekað kröfu sína um endur- greiðslu í kjölfarið. Svar barst frá varnaraðila þar sem fram kom að af- greiðsla endurgreiðslubeiðnarinnar myndi taka tvær vikur. Sóknaraðila hefur hins vegar ekki borist greiðsla frá varnaraðila þrátt fyrir ítrekun kröfunnar,“ segir í úrskurði nefnd- arinnar. Rakið er að Grikkland hafi verið skilgreint sem hááhættusvæði af Embætti landlæknis, aðstæður þar hafi verið þess eðlis að þær hafi haft veruleg áhrif á framkvæmd pakka- ferðarinnar. Því hafi útskriftarnem- anum verið heimilt að afpanta ferð- ina án greiðslu þóknunar. Ferðaskrifstofunni ber að endur- greiða ferðina að fullu auk máls- kostnaðargjalds vegna umfjöllunar kærunefndarinnar. hdm@mbl.is Ferð til Krítar fæst bætt  Útskriftarferð af- lýst vegna veirunnar Grikkland Í sól og sumaryl í sjónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.