Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 23
á Bjössa þegar Hafdís Hlíf dó
mjög óvænt aðeins 11 ára gömul.
En það voru heldur betur oft á
tímum skemmtilegar stundir og
umræður. Okkur er t.d. minnis-
stætt þegar Bjössi og Anna voru
að skipuleggja sumarfríin, sem
oftar en ekki var heljarmikið
púsluspil vegna barnaskarans.
Bjössi hafði gott auga fyrir
hönnun og var handlaginn og það
kom sér vel þegar við tókum upp
á því að endurbæta íbúð sem við
leigðum út í sameiningu. Hann
endurbyggði líka sjálfur sum-
arbústaðinn á Þingvöllum sem
gaf honum margar ánægjustund-
ir.
Seinni árin vorum við hluti af
frábærum vinahópi sem stundaði
golf, gönguferðir og spila-
mennsku, oft í skemmtilegum
sumarbústaðarferðum. Þar var
Bjössi löngum fremstur meðal
jafningja, hvort sem keppt var í
golfi eða bridds. Hann var líka
góður í því að skipuleggja golf-
ferðir erlendis.
Það var heldur betur óvænt og
sorglegt þegar við fréttum andlát
Bjössa. En stundum virðist sami
vegurinn liggja að hamingju og
sorg.
Bjössa verður sárt saknað. Við
vottum Önnu Kristínu, Hafdísi
Sól, Breka, Sigurði Birni, Mar-
gréti Kristínu, Heiðu Dóru, Daní-
el Jóns og allri fjölskyldu Bjössa
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Jón og Helen.
Í dag er til grafar borinn góður
vinur okkar, Björn Jónsson. Á
þessum erfiðu tímamótum minn-
umst við svo margra góðra
stunda sem við áttum með hon-
um.
Við vinkonurnar kynntumst
Bjössa í barnaskóla en Bjössi
flutti í annað hverfi á unglingsár-
unum þannig að leiðir skildi eins
og gengur.
Bjössi kom svo aftur inn í líf
okkar þegar hann og Anna Krist-
ín æskuvinkona okkar felldu hugi
saman fyrir 20 árum. Hann féll
undir eins inn í vinahópinn okkar
sem gengur undir nafninu Saumó
og var sem hann hefði verið hluti
af hópnum alla tíð. Enda vísaði
hann endalaust í gömul kynni
okkar í barnaskóla.
Saumó hefur alla tíð verið sam-
hentur hópur og hafa makar tekið
fullan þátt í viðburðum okkar.
Hvort heldur sem eru ferðir inn-
anlands eða utan, leikhúsferðir
eða matarboð. Við yljum okkur
því við ljúfar minningar úr öllum
þeim fjölbreyttu og skemmtilegu
ferðum sem saumaklúbburinn fór
saman í.
Bjössi var einstaklega ljúfur
og góður drengur, stemmnings-
maður mikill, örlátur og gestris-
inn og hafði einstaklega gaman af
því að ræða málin og kryfja til
mergjar. Það var því honum að
skapi að einn af föstu punktunum
í tilverunni hjá okkur í Saumó
voru hin árlegu aðventuboð á
Tjarnarflötinni. Þá naut Bjössi
sín í því að matbúa jólakalkún og
meðlæti fyrir okkur vinkonurnar
og maka. Þetta voru jafnan mikl-
ar yndisstundir, mikið skrafað,
hlegið og þjóðmál líðandi stundar
rædd.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund minnumst við Bjössa með
góðum hug og yljum okkur við
minningarnar.
Elsku Anna Kristín, Heiða
Dóra, Siggi, Daníel, Margrét,
Hafdís Sól, Breki, Hafdís Hlíf,
tengdabörn og barnabörn. Megi
góður guð styrkja ykkur í þessari
miklu sorg.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Kveðja frá saumaklúbbnum,
Eva og Ellert, Soffía
og Ómar, Svanhvít og
Anna Sigríður.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
✝ Hörður Adolfs-son fæddist í
Vestmannaeyjum
28. mars 1950.
Hann lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans þann 6.
október 2020. For-
eldrar hans voru
Adolf Óskarsson, f.
30.11. 1928, d.
15.12. 2008, og Ásta
Vigfúsdóttir, f.
15.7. 1928, d. 20.2. 2014. Hann
var elstur í röð fimm systkina;
Erla, f. 25.6. 1952, gift Jóhanni
Pétri Andersen, Vigfús, f. 18.8.
1955, d. 21.7. 1967, Hilmar, f.
21.1. 1960, kvæntur Ólöfu Sig-
urðardóttur, og Adolf, f. 17.9.
1962, giftur Júlíu Hennings-
dóttur.
Matthias Wörle, synir þeirra eru
Óskar Snorri og Otto Svanur, og
(2) Ásta María Harðardóttir, f.
16.4. 1987, maki hennar er Vikt-
or Höskuldsson, synir þeirra eru
Höskuldur Orri og Hörður Húni.
Hörður var fæddur og uppal-
inn í Vestmannaeyjum og var
matreiðslumeistari að mennt.
Hann bjó þar með fjölskyldu
sinni til ársins 1995 og rak
lengst af veitingastað.
Eftir það starfaði Hörður sem
sjómaður og síðar við pípulagnir
á höfuðborgarsvæðinu og ná-
grenni þess.
Hörður verður jarðsunginn
frá Vídalínskirkju í dag, 16.
október 2020, klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins
nánustu aðstandendur við-
staddir. Streymt verður frá at-
höfninni
https://youtu.be/8F9C91OK6mQ
Hægt að nálgast virkan hlekk
á https://mbl.is/andlat.
Hörður kvæntist
Nönnu Maríu Guð-
mundsdóttur 15.4.
1976, f. 30.9. 1954.
Foreldrar Nönnu
voru Guðmundur
Gunnar Einarsson,
f. 11.10. 1931, d.
20.2. 2016, og Mar-
grét Þórdís
Ámundadóttir, f.
30.9. 1933, d. 8.12.
2018.
Börn Harðar eru (1) Elsa
Björk Harðardóttir f. 20.3. 1968,
dóttir hennar er Hera Sif, og (2)
Ragnar Hannes Guðmundsson,
f. 28.10. 1969, dætur hans eru
Guðrún Erla og Anna Lára.
Dætur Harðar og Nönnu eru
(1) Margréti Rós Harðardóttir, f.
11.8. 1979, maki hennar er
Hann pabbi var einn af þeim
allra bestu. Það er svo ótrúlega
margt fallegt sem við gætum sagt
um hann en á sama tíma er erfitt
að koma því fyrir í einni lítilli
minningargrein. Pabbi var blíður,
góður, skemmtilegur, traustur,
rausnarlegur, örlátur og frábær
fyrirmynd. Hann var reddarinn
minn, mín mesta klappstýra, æv-
intýramaður mikill og sannkölluð
hetja. Pabbi var vinur allra og
kenndi mér mikilvægi þess að
vera góður vinur og virði góðra
vina, en sjálfur hann átti yndis-
lega vini sem hafa reynst okkur
fjölskyldunni ómetanlegir. Pabbi
var mikill prakkari og ég held að
flestir, bæði vinir og fjölskylda,
eigi einhvers konar prakkarasög-
ur af honum, allt frá unga aldri til
síðasta dags.
Hann er eini maðurinn sem ég
þekki sem hefur náð sjötugsaldri
sem var það ungur í anda að hann
var ennþá með unglingabólur og
það var varla farið að grána á
honum hárið.
Ég fann alltaf fyrir því að vera
elskuð, við fjölskyldan vorum
ástarenglarnir hans pabba.
Hann dáði barnabörnin sín og
frændsystkinin öll sem eitt og
elskaði ekkert meira en að fá að
kúra með þeim uppi í rúmi eða
sófa, sérstaklega á gamlárskvöld
þar sem hann gat horft á flugeld-
ana með þeim í ró og næði. Hann
sá ekki sólina fyrir barnabörnun-
um og þau sáu hana ekki fyrir
honum. Fyrir þeim var hann afi
Hörður sem er alvöruvíkingur.
Hér fylgir saga sem hann fékk
í gjöf í tilefni sjötugsafmælis síns
og var lesin fyrir hann 4. október
2020.
Hörður Dolla víkingaofurhetja
Þessi saga fjallar um víkinga.
Víkingar notuðu sverð til að
vernda sig frá stríði. Ef einhver
réðst á þá þá börðust þeir við þá.
Það var ein kona sem barðist við
víkingana. Hún var ekki venjuleg
kona heldur var hún norn! Norn!
Norn! Norn! Víkingarnir náðu
ekki að sigra hana nema einn vík-
ingur sem hét Hörður Dolla.
Hann tók sverðið sitt og bogann
sinn og öll vopnin frá hinum vík-
ingunum. Hann var með fárán-
lega margar hendur og hann náði
að nota öll vopnin. Hann skaut
öllum örvunum, kastaði öllum
spjótunum. Ef einhver lamdi í
skjöldinn hans þá kviknaði í því
sem var notað og fólkið varð að
eldi og dó. Skjöldurinn var ósýni-
legur sem Hörður Dolla notaði.
Eftir þetta varð hann Konungur
víkinganna. (Höskuldur Orri,
átta ára afastrákur)
Elsku pabbi. Takk fyrir allt
sem þú kenndir mér, hjálpaðir
mér með og studdir mig í gegn-
um.
Þú verður alltaf í hjarta okkar
allra og við munum sakna þín
sárt.
Ásta María, Viktor, Hösk-
uldur Orri og Hörður Húni.
Með trega og sorg í hjarta
kveð ég mág minn og vin, hann
Hörð Adolfsson.
Ég var svo lánsöm að kynnast
Herði fyrir um 45 árum þegar ég
bjó í Vestmannaeyjum. Hann var
með mikið krullað svart hár,
brosmildur, glaðvær og skemmti-
legur eyjapeyi. Síðar vildi það til
eitt vetrakvöld að ég kynnti hann
fyrir Nönnu systur. Vinkona mín
átti að vera hans borðdama þetta
kvöld en forfallaðist á síðustu
stundu og þá plataði ég Nönnu
systur að koma í staðinn. Ástin
kviknaði og hafa þau verið lífs-
förunautar síðan.
Fjölskyldur okkar hafa fylgst
að í gegnum lífið og margar
ánægjulegar minningar fylla
hugann. Skemmtileg ferðalög,
veiðiferðir, sumarbústaðarferði,
afmælisveislur, matarveislur og
fleira og fleira.
Hörður minn, þú áttir stóran
þátt í að gera líf okkar gott og
skemmtilegt. Þú tókst alltaf á
móti okkur með þéttu faðmlagi
og koss á kinn og lést innilega
finna að maður væri velkominn.
Alltaf gat ég hringt í þig þegar
mér vantaði aðstoð, leiðbeiningar
eða matseldin var að klúðrast.
Ósjaldan mætti þú þá á staðinn
og bjargaðir málunum.
Þú varst frábær kokkur og
kenndi mér meðal annars að búa
til bestu bernaise- og karrísósu í
heimi.
Þú varst einstaklega bóngóður
og vinnusamur. Alltaf varst þú
fyrsti maður á staðinn ef þörf var
á aðstoð og raukst í verkið.
Hörður minn ég minnist orða
þinna ekki alls fyrir löngu þar
sem þú sagðir að lífið væri ferða-
lag og við þyrftum að taka ákveð-
in skref. Nýtt ferðalag er hafið
hjá þér og ný skref.
Takk elsku Hörður fyrir alla
hjálpina, vináttuna og hlýjuna.
Hvíldu í friði kæri mágur og
sjáumst síðar.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu
er hjartað mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða
við hittumst samt aftur á ný.
Mega algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
Mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Þórunn.
Hörður mágur minn er dáinn.
Hann hafði sofnað eftir erfiða
nótt og vaknaði ekki aftur. Minn-
ingaflóð helltist yfir mig enda
hefur Hörður verið stoð mín og
stytta síðan ég var sex ára. Hann
var ekki bara mágur minn heldur
frekar stundum eins og pabbi
enda leitaði ég til hans með nán-
ast allt, gladdist með honum og
grét.
Strax þótti mér einstaklega
vænt um Hörð enda var ekki ann-
að hægt. Hann geislaði af gleði,
var stríðinn og gaf mér litlu syst-
urinni tíma og óvæntar gjafir.
Hann var alltaf tilbúinn að hlusta
og virtist alltaf hafa áhuga fyrir
því sem ég hafði að segja. Þegar
Nanna og Hörður giftu sig varð
ég mjög glöð en þótti reyndar
óréttlátt að þau völdu að búa í
Vestmannaeyjum. Það kom svo
reyndar ekki að sök því að alltaf
voru þau tilbúin að taka á móti
mér til Eyja eftir skólann á vorin
og ég dvaldi hjá þeim þar til skól-
inn byrjaði aftur um haustið. Frá-
bær tími fyrir mig að kynnast
þeim og lífinu í Eyjum.
Hörður var einstaklega hjálp-
samur og var alltaf boðinn og bú-
inn að hjálpa okkur Svenna með
heimilin okkar, fjölskyldu og
fyrirtæki. Alltaf var hægt að leita
ráða, fá aðstoð og fullt af hug-
myndum og mismunandi teikn-
ingum. Hann sagði alltaf: „Bara
muna að teikna þetta fyrst.“
Hörður var stríðinn grallari,
sem gat hlegið hátt og lengi yfir
sögum af því hvernig hann plat-
aði vini sína eða bræður en fyrir
okkur var hann fyrst og fremst
höfðingi. Tók af skarið, gerði
hlutina og algjör höfðingi heim að
sækja. Börnin okkar, Guðmund-
ur Gunnar, Aron Ingi og Milla,
áttu svo sannarlega frænda og
vin sem var virkilega áhugasam-
ur um það sem þau voru að gera.
Hörður var kletturinn okkar sem
var alltaf mættur til að hjálpa
sama hvað til stóð. Áramótin
verða aldrei eins fyrir Millu sem
hefur setið inni við stóra
gluggann í stofunni með Herði
frá því hún fæddist. Hún var
pínulítil þegar hún áttaði sig á því
að í fanginu á Herði var best og
öruggast að vera þegar áramótin
gengu í garð og sprengjulætin
byrjuðu.
Aron Ingi átti ómetanlegan
tíma með Herði þegar hann vann
með honum í rúmt ár, lærði þol-
inmæði, mikið um pípulagnir og
kann orðið óteljandi af skemmti-
legum sögum. Hörður kenndi
Guðmundi Gunnari að veiða og sá
til þess með Nönnu að hann
veiddi fyrsta fiskinn sinn með
þeim.
Lífið verður aldrei eins án þín
elsku Hörður okkar en sem betur
fer eigum við hafsjó af minning-
um um þig og óteljandi skemmti-
legar stundir með þér. Við fjöl-
skyldan munum svo sannarlega
passa Nönnu, Margréti Rós og
Ástu Maríu fyrir þig og segja afa-
strákunum þínum endalausar
sögur um þig og frá afrekum þín-
um.
Við söknum þín Hörður, takk
fyrir allt.
Ingigerður, Sveinn,
Guðmundur Gunnar,
Aron Ingi og Milla.
Víða til þess vott eg fann,
þótt venjist oftar hinu,
að guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
Svo orti Bólu-Hjálmar og
Hörður Adolfsson var eðalsteinn
í steinasafni mannlífsins og hans
verður sárt saknað. Minningar
streyma fram um okkar góða
granna sem við hjónin kynntumst
við upphaf búskapar okkar í Gal-
talind 15 í Kópavogi. „Hörður á
móti“ var mikill öðlingur. Hann
liðsinnti okkur um margt í gegn-
um tíðina enda hæfileikaríkur
með eindæmum. Listakokkur,
pípari og dásamlegur lífskúnst-
ner. Ávallt brosandi og glaður og
ekkert vandamál svo flókið að
ekki væri hægt að leysa það.
Hörður og Nanna eiga glæsilegt
heimili og vorum við fjölskyldan
alltaf aufúsugestir til þeirra og
dætranna hinum megin við gang-
inn og svo síðar á Vatnsendann.
Börnin okkar alltaf velkomin og
Hörður, Nanna, Margrét Rós og
Ásta María gættu barna okkar
þegar ungu hjónin þurftu að viðra
sig. Ávallt var tekið á móti okkur
með bros á vör og ósjaldan var
maður leystur út með gjöfum.
Síldin hans Harðar er ein sú
besta sem hægt er að fá, mikill
laukur og dásamlegt bragð.
Minnisstæður er aðfangadagur
fyrir nokkrum árum þegar metn-
aðarfulla húsmóðirin, nágranna-
kona hans, klúðraði forréttinum.
Þá vildi svo heppilega til að Hörð-
ur átti „varahring“ en um var að
ræða sjávarréttahring í hlaupi.
Hörður hafi haft veður af þessu
brasi nágranna sinna og vafalaust
haft okkur í huga ef illa skyldi
fara. Svona var Hörður. Ófá
skiptin lánaði Hörður verkfærin
sín þegar Egill var að pípa og
kom með góð ráð. Á skírnardegi
dótturinnar voru vandræði með
gúllasið og Hörður mætti á stað-
inn og skar allt niður á „nó tæm“
eins og sagt er og reddaði mál-
unum. Ávallt til staðar. Hérna er
aðeins stiklað á örfáum minnis-
stæðum atvikum úr okkar 24ra
ára vináttu sem aldrei bar skugga
á. Elsku Nanna okkar er búin að
missa lífsförunaut sinn allt of
snemma og dæturnar, barna-
börnin og tengdasynirnir yndis-
legan pabba, tengdapabba og afa.
Dásamleg vinátta og góðar
minningar um okkar kæra Hörð
munu ylja okkur um hjartarætur.
Guð veiti ykkur styrk, kæra fjöl-
skylda. Minning góðan mann lifir.
Í virðingu og þakklæti.
Ég veit þú fékkst engu, vinur, ráðið um
það,
en vissulega hefði það komið sér betur,
að lát þitt hefði ekki borið svo bráðan
að.
Við bjuggumst við að hitta þig oft í vet-
ur.
Og nú var um seinan að sýna þér allt
það traust,
sem samferðafólki þínu hingað til láð-
ist
að votta þér. Það virtist svo ástæðu-
laust
að vera að slíku fyrst daglega til þín
náðist.
(Tómas Guðmundsson)
Egill Erlingsson.
Ragnheiður K.
Guðmundsdóttir.
Elvar og Íris Jóna.
Ég man eins og það hefði gerst
í gær þegar ég hitti Hörð fyrst.
Þessi stund var í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar þar sem við vorum
hluti af góðum hópi sem var á leið
til Grænlands til að sigla á
slöngubátum um Suður-Græn-
land og taka upp heimildarþætti
um svæðið.
Fyrir 17 ára unglingspilt var
mjög eftirminnilegt þegar Hörð-
ur bauð öllum hópnum upp á
koníak með þeim orðum að þetta
væri skyldudrykkur áður en flog-
ið væri úr landi! Oftar en ekki hef
ég haft þetta í huga á ferðum
mínum en alveg er ég handviss
um að þessu mun ég ekki klikka á
hér eftir.
Í Grænlandsferðinni var
margt brallað, mikið hlegið og
eldaði hópurinn saman á hverjum
degi. Eitthvað var matarkistan
farin að þynnast þegar leið á ferð-
ina og veiðin dræm og varð þá til
rétturinn „Ragú veiðimannsins“
sem oft hefur verið minnst á í
seinni tíð. Hörður var matreiðslu-
meistari og ég var á þessum tíma
nýbyrjaður að læra kokkinn. Í
ferðinni góðu náðum við Hörður
vel saman, þrátt fyrir að talsverð-
ur aldursmunur hafi verið okkar í
milli, og ári seinna flutti ég nema-
samning minn til Harðar og varð
þar með síðasti nemi hans. Ég hef
litið á Hörð sem vin minn og fé-
laga frá þessum tíma og alltaf var
hann til í að hjálpa, ráðleggja og
ræða málin niður í kjölinn.
Sem dæmi um hjálpsemi
Harðar og dugnað þá verð ég að
nefna húsbyggingu okkar hjóna á
síðasta ári. Aðdragandinn hafði
verið nokkur og ófá samtölin
höfðum við Hörður átt varðandi
hvaða leið væri best að fara í
þessum efnum. Kaup á fokheldu
húsi varð ofan á og ekki kom ann-
að til mála en hann sæi um allar
pípulagnir fyrir okkur þar sem
hann starfaði við það hin seinni
ár.
Alveg er ég viss um það að fáir
sem engir húsbyggjendur hafi
fengið svo skjóta þjónustu en
Hörður var mættur með annan
með sér, fyrr en ráð var fyrir
gert, og kapp þeirra var mikið að
koma okkur sem fyrst inn í húsið.
Lengi vel áttum við Hörður,
ásamt Ingva Rafni, fyrsta kokka-
nema Harðar, gæðastundir á
fundum Klúbbs matreiðslumeist-
ara.
Nú þegar þeir eru báðir fallnir
frá hef ég hugsað mikið um þess-
ar frábæru stundir sem við áttum
saman. Við Hörður hittumst
reglulega og þó sér í lagi eftir að
ég flutti heim frá Bandaríkjunum
í lok árs 2016. Hittingar í hádeg-
inu urðu oft ofan á þar sem hægt
var að slá tvær flugur í einu
höggi, borða saman góðan mat og
ræða dægurmálin, framtíðina og
matargerð. Þær stundir koma
aldrei aftur en minning um frá-
bæran vin og félaga mun lifa.
Elsku Nanna, Margrét Rós,
Ásta María og fjölskyldur, ég
votta ykkur mína dýpstu samúð.
Þórir Erlingsson.
Samtalið við Nönnu þar sem
hún tjáði okkur að Hörður væri
látinn líður seint úr minni.
Það er allt svo óraunverulegt
og ósanngjarnt við þessa stað-
reynd, dánartilkynning í Mogg-
anum með mynd af Herði bara
gat ekki staðist. En svona er lífið
víst og í dag er komið að kveðju-
stund okkar góða vinar.
Minningarnar eru margar. All-
ar góðu samverustundirnar verða
ljóslifandi því frásagnargleðin og
dillandi hláturinn voru svo eðli-
legur hluti af Herði.
Í ferðalögum bæði innan- og
utanlands með þessu yndislega
vinafólki áttum við frábærar
stundir. Í gamladaga þegar farið
var í tjaldútilegur upp á land
heiman úr Eyjum, ferðir hér inn-
anlands eftir að við vorum öll flutt
upp á land og skemmtilegar utan-
landsferðir seinni árin.
Minningin frá komu þeirra til
okkar í bústaðinn núna síðsumars
er sérlega dýrmæt. Alveg grun-
laus um að þetta væri síðasta
samverustundin með Herði ráð-
lögðum við að fara austur á
Klaustur í þeirra bústað, það
skyldi verða næsta vor þegar
veikindin væru yfirstaðin.
Já, það er margs að minnast og
þakka.
Við erum þakklát fyrir allar
góðu og skemmtilegu stundirnar,
styrkinn á erfiðum tímum og
órjúfanlega áralanga vináttu.
Hörður vinur okkar er farinn í
annan heim og þar hafa móttökur
verið góðar. Hláturinn, brosið,
gleðin og góðvildin gleymist aldr-
ei. Við förum seinna saman í
Fúsahús.
Elsku Nanna, Margrét Rós,
Ásta María og fjölskyldur. Inni-
legar samúðarkveðjur, megi góð-
ur Guð styrkja ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Ykkar vinir
Guðfinna og Kristinn.
Hörður Adolfsson