Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 25
geymt en ekki gleymt. Skúli hafði gaman af bakstri og var hann oft búinn að baka fullt eldhúsborð af kökum þegar mamma kom heim úr frystihúsinu. Við systkinin átt- um líka margar góðar stundir í sveitinni okkar vestur í Dölum hjá góðu fólki. Þar vorum við öll sum- ur og undum okkur vel. Í kringum 1960 fór pabbi vestur á Reykhóla að byggja kirkju. Skúli fór með honum til aðstoðar, ætli smiður- inn hafi ekki vaknað hjá honum þá. Eftir að Skúli og fjölskylda fluttu úr Vogunum byggðu þau sér fallegt sumarhús í Hvalfirði, þar nutu þau Skúli og Steina sín vel. Hann alltaf að dytta að og hún í skógræktinni og eru nú komin þar stór og falleg tré. Ég og Bragi nutum góðs af og vorum oft í bú- staðnum ef hann var á lausu, þökk sé þeim hjónum. Skúli tók veikindum sínum með mesta æðruleysi. Ef hann var spurður hvernig heilsan væri kom alltaf sama svarið: „Ég er hress, ekkert að mér.“ Vissi hann strax að hverju stefndi og var með allt undirbúið áður en hann fór. Hann var mjög næmur í andans málum og áttum við oft tal saman um það eins og svo margt annað. Bróðir minn átti yndislega fjöl- skyldu, það sást best þegar þau tóku hann heim af spítalanum og hlúðu að honum síðustu dagana þar til yfir lauk. Steina, Sveindís, Rúna, Maggi, Inga og fjölskyldan öll. Hugur okkar er hjá ykkur á þessum erf- iða tíma. Biðjum góðan guð að vera með ykkur öllum, og gefa bróður mínum góða ferð í sum- arlandið. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson frá Gríms- stöðum) Elín Guðrún Magn- úsdóttir (Ella systir) og Bragi Bergmann. Með hlýhug og söknuði kveð ég kæran vin til margra ára. Á svona stundu kemur margt upp í hug- ann og margs er að minnast. Við Skúli höfum verið góðir vinir frá fermingaraldri og aldrei borið skugga á okkar vináttu þó að skoðanir hafi kannski ekki alltaf verið þær sömu. Við höfum fylgst að í gegnum tíðina og má þar helst nefna að við vorum saman í róðrasveit UMFÞ á sínum tíma. Mörg voru böllin sem við fórum á saman og ým- islegt var brallað, minnisstæðast er þegar við náðum í konurnar okkar á Röðli á svipuðum tíma. Við hófum búskap á sama tíma í Vogum og var alltaf mikill sam- gangur á milli heimila okkar. Frá fyrstu áramótum okkar hjóna kom Skúli alltaf í heimsókn á gamlársdag þar sem árið var gert upp og hélst þessi hefð alla tíð að undanskildum síðustu ára- mótum þar sem hann var orðinn veikur. Allir á heimilinu biðu spenntir eftir heimsókn Skúla og þegar börnin mín voru orðin full- orðin gerðu þau sér ferð til okkar til að hitta hann, svo rík var þessi hefð orðin. Alltaf var hugur Skúla hjá öðrum og var ekki hægt að finna bónbetri mann, en aldrei bað hann um neitt á móti. Það voru ófá skiptin sem ég leit- aði til hans eftir ráðum og hjálp þegar ég var að byggja. Ég man þegar við vorum ungir menn, þá átti hann upptökin að því að hjálpa eldri konu í sveitarfé- laginu að skipta um þak, hann safnaði saman nokkrum strákum sem gengu í það verk með hon- um. Þá var Skúli nýlærður húsa- smiður. Þegar ég var rúmlega fimmtugur fórum við hjónin í okkar fyrstu utanlandsferð með Skúla og Steinu og var sú ferð al- veg frábær og mjög eftirminni- leg. Skúli hafði unun af því að skipuleggja ferðina okkar og áttu þær ferðir eftir að verða mun fleiri. Farið var til Þýska- lands en þar hafði Skúli verið að vinna og þekkti vel til. Elsku Steina og fjölskylda, ég sendi ykkur innilegar samúðar- kveðjur og megi guð gefa fjöl- skyldunni styrk á þessum erfið- um tímum. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði. Þinn æskuvinur, Sævar. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 ✝ Sigríður Kr.Árnadóttir (Didda) fæddist á Neðrabæ í Selárdal í Arnarfirði 26. júní 1923. Hún varð bráðkvödd 29. september 2020. Foreldrar henn- ar voru Árni Magnússon f. 29.9. 1897 í Selárdal og Auðbjörg Jónsdóttir f. 9.11. 1897 á Bíldudal. Didda var næstelst sjö systk- ina. Þau voru Gunnar Halldór, Börn þeirra eru Auður Árný, fædd 1951, gift Sigurði Guð- mundssyni og eiga þau eina dóttur hvort, Kristján Salberg, fæddur 1955, í sambúð með Margréti Haraldsdóttur og á hún þrjú börn, Ólöf Ágústína, fædd 1957, gift Reyni Einars- syni og eiga þau þrjú börn og Ásta Bergljót, fædd 1959, gift Sigurði Einarssyni og eiga þau einn son. Barnabarnabörnin eru fjögur. Didda ólst upp í Selárdal en fór ung að heiman og vann við saumaskap hjá klæðskerum á Akureyri og í Reykjavík ásamt því að sinna bústörfum með foreldrum sínum á sumrin. Síð- ast vann hún við umönnun á Droplaugarstöðum í Reykjavík. Útför Sigríðar fer fram frá Áskirkju í dag, 16. október 2020, klukkan 13. f. 1920, d. 1998, Ásta Brynhildur, f. 1926, d. 1927, Jón Magnús, f. 1930, Sveinn Ásgeir, f. 1931, d. 2014, Bergsveinn Þórð- ur, f. 1933, og Agnar Eysteinn, f. 1937, d. 2010. Didda giftist 27. maí 1956 Stefáni Geir Ólafssyni, f 10.12. 1919 á Svarfhóli í Borg- arfirði, d. 7.9. 1989. Foreldrar hans voru Ólafur Kristjánsson og Ágústína Guðmundsdóttir, Ég var mjög mikið hjá ömmu og afa þegar ég var lítil. Afi svaraði, af bestu getu, öll- um mínum spurningum um Guð og gekk með mér upp í Áskirkju í sunnudagsskólann. Ég fékk líka að hjálpa honum að gefa kisunum á heimilinu fisk. Þegar afi kom heim í hádeginu og fékk hræring hjá ömmu, fékk ég eitt- hvað annað gott, gat ekki ímyndað mér að hræringur væri góður og vildi alls ekki smakka. Ég dýfði höndunum í hveit- iskúffuna hennar ömmu þegar hún sá ekki til (upptekin við að elda matinn) úúúú það var svooo mjúkt. (Fyrirgefðu amma). Amma átti heimsins falleg- ustu náttföt svo ekki sé talað um gráu rúskinnsstígvélin henn- ar með hælunum. Afi leyfði mér að gramsa í fataskápnum henn- ar alveg óáreittri. Svo sat ég á gangstéttarbrúninni, þegar amma kom heim úr vinnunni, í siffon-prinsessunáttkjólnum hennar, í rauða doppótta nátt- sloppnum utan yfir, gráu stíg- vélunum og með kisuskóhornið sem veldissprota. Það var nefni- lega með smaragðsgræn augu sem hæfði konungbornum. Aumingja amma, ég er ekki viss um að hún hafi haft jafn gaman að þessu og ég. Við amma brölluðum margt. Hún leyfði mér oft að fara á róluvöllinn á sumrin og þegar hún sótti mig höfðum við kaffi- tíma á tröppunum. Amma með kaffi og ég Nesquick í ííískaldri mjólk og eitthvert sætt meðlæti. Hún fór alltaf með bænirnar með mér áður en ég fór að sofa þegar ég fékk að gista og eitt skiptið man ég að einhver galsi var í okkur báðum og við kút- veltumst, í faðmlögum, á rúminu og skellihlógum. Hún amma lét ansi margt eft- ir mér. Sem barn var ég mikið að velta því fyrir mér hvort ekki mætti fara marga hringi á hringtorgum. Spurði ömmu að þessu eitthvert skiptið sem við vorum í bílnum að erindast. Hún hélt nú að það væri í lagi og við fórum „kring eftir kring eftir kring“ á hringtorginu fyrir framan Þjóðminjasafnið og hlógum mikið. Amma var með græna fingur. Helgidómur ömmu á Kambsveg- inum var gróðurhúsið hennar. Þar blómstruðu alls konar rósir, stórum fallegum blómum. Þar fékk ég stundum að koma inn og var aldeilis minnt á að fara varlega, ganga hægt og alls ekki rekast í og brjóta rósirnar. En einu sinni á ári, á afmælisdaginn minn fékk ég að fara inn í þenn- an helgidóm og velja mér falleg- ustu rósina. Amma klippti hana af fyrir mig og ég fékk að hafa hana í hárinu. Það sem ég var endalaust fín og þvílík gjöf sú allra, allra besta. Þegar ég byrjaði í mennta- skóla átti ég jakka sem var með helst til stuttum ermum og þeg- ar ég hélt utan um skólatöskuna blés upp ermarnar. Amma var nú ekki lengi að redda málun- um. Prjónaði handa mér, af sinni alkunnu snilld, vettlinga sem voru með svo löngu stroffi að þeir náðu alveg upp að oln- boga, enda kallaði hún þá löngu- vitleysuna. Eins þegar ég gifti mig prjónaði hún handstúkur handa mér, svo mér yrði ekki kalt. Því ég er annáluð kuldaskræfa. Eiginmannsefnið var strákur sem finnst fátt betra en að vera í lopapeysu, því fannst mér til- valið að prjóna eina handa hon- um í brúðargjöf. Verst bara að ég kunni ekkert að prjóna. Amma bjargaði því, sat hjá mér tímunum saman með endalausa þolinmæði og hjálpaði mér í gegnum þetta lykkju fyrir lykkju. Þegar að útkoman var svo ekki alveg í samræmi við væntingar þá hughreysti amma mig og sagði „ þetta er allt í lagi, þetta er lopi og það lagast allt þegar þú þværð hann“ og viti menn það lagaðist allt við þvott. Eiginmaðurinn hæst ánægður með peysuskrattann. Já það var mikið brallað, og ég endalaust rík af ást sem hún gaf mér og ljúfum minningar- brotum. „Ertu þá farin ljósið mitt?“ Þangað til næst þín Adda. Manstu eftir þokunni ógur- legu? Við fylgdumst með henni læð- ast niður eftir Selárdalnum og breiða mjólkurkennda móðu yfir dalinn. Hún læddist að bústaðn- um og loks sáum við ekkert annað en móðuna miklu út um gluggann. Þetta var ógurleg þoka en inni sátum við með kerti og spil og kaffi í bolla. Við litum af og til út og fórum að greina útlínur. Hvað var þetta sem stóð þarna fyrir utan? Hvað hafði móðan mikla dregið til okkar? Jú, fyrir utan gluggann stóð kind. Ekki bara ein sauðkind, heldur heil hjörð sem hafði gengið rakleiðis í átt að ljósinu og stóðu nú þarna jórtrandi fyrir framan bústað- inn. Sigga Sunna, nafna þín var ekki lengi að hugsa sig um. Hún smeygði sér í gervi smalans, stökk út og baðaði út báðum höndum. Á meðan stungum við hausunum út um dyrnar, fylgd- umst með og hlógum að kind- unum ráfa um og Siggu á eftir þeim. Seinna rifjuðum við oft upp þetta atvik og byrjuðum á því að segja: „Manstu eftir þokunni ógurlegu?“ Hvort ég man! Ég man svo margt, ég man allar þessar dýrmætu minningar sem við söfnuðum jafnóðum í fjár- sjóðskistuna okkar. Við vorum miklar spilakerl- ingar, ég og þú. Við sátum tím- unum saman inni í eldhúsi og kepptumst hvor við aðra. Þú spilaðir af mikilli kænsku. Við ríghéldum í spilin til þess að hin myndi ekki sjá. Stundum vannst þú og stundum vann ég. Mun- urinn var hins vegar sá að að- eins önnur okkar var sökuð um svindl. „Núna ertu að svindla á mér skottið mitt,“ sagðir þú og glottir um leið og þú lagðir spil- in niður. Ég rak upp stór augu í hvert skipti og lofaði öllu fögru, nei að sjálfsögðu var þetta heið- arlegur sigur! Ég tala til þín í fyrstu persónu af því þetta átti að vera enn eitt póstkortið. Fyrir stuttu gekk ég um sól- blómaakur. Ég tók upp mynda- vélina og sagði „eina fyrir ömmu“. Þetta var síðasta myndin á vélinni og átti að fylgja með næsta póstkorti. Þegar ég hringdi í þig á 97 ára afmælisdaginn þinn sagði ég þér frá öllum blómunum sem voru í fullum blóma í Helsinki. Ég sagði að þú værir með mér í hvert skipti sem ég labbaði í gegnum rósagarðinn á leiðinni í sund. Þú svaraðir með því að segja að ég væri með þér á hverjum degi. Þú ert og verður með mér á hverjum degi elsku amma. Þangað til næst, þitt Selmuskott, Selma. Þegar ég hugsa um ömmu Siggu eru sterkustu minning- arnar tengdar því að standa við hliðina á henni andspænis sköpunarverkinu í allri sinni margbreytilegu dýrð: Í haust- litaferð á Þingvöllum, horfa á ljósaskiptin yfir Ljósufjöllum, þræða blómabeðin í Grasagarð- inum, fylgjast með dalalæðunni líða inn í Selárdal og dýfa mjólkurkexi í glas innan um ilmandi rósirnar hennar í gróð- urhúsinu á Kambsveginum. Það var svo dýrmætt að fá að vera ömmustelpa langt fram á fullorðinsár, eftir að ég sjálf varð mamma og hún langamma. Ég man eftir því að vera lítil og kúra við hliðina á henni í ömmubóli í sumarbú- staðnum að hlusta á fuglasöng- inn sem hún kunni svo vel að meta. Það var gott að vera svo lánsöm, yfir þrjátíu árum síðar, að geta ennþá hjúfrað mig við hliðina á henni, „við Siggurnar“ eins og hún sagði alltaf með hlýjan glampa í augum. Amma talaði tvisvar sinnum við mig um hvernig hún sæi himnaríki fyrir sér. Í fyrra skiptið þegar við keyrðum í vetrarstillu um Austurríki þar sem blöstu við okkur endalaus- ar breiður af hrímuðum trjám sem glitruðu eins og kristallar í vetrarsólinni. Amma sagði and- aktug að svona hlyti að vera í himnaríki. Í annað skipti stóð hún í stofunni sinni á milli hvítra orkídeublómanna sinna sem hún strauk blíðlega og sagðist geta ímyndað sér að himnaríki væri einmitt svona, eins og hvítar orkídeur. Hverju sem maður trúir finnst mér gott að hugsa um ömmu í þess- um tveimur fallegu myndum. Ég hugsa líka um ömmu sem var til áður en ég fæddist, ömmu sem þeystist ung á hest- baki um Selárdal með vindinn í hárinu og blik í augunum. Við amma skiptumst stund- um á ljóðum og ljóðabókum. Mér fannst fallegt hvernig hún hafði erft ástina á ljóðum frá mömmu sinni og gefið hana áfram til okkar. Mig langar að kveðja ömmu með Kveðju far- fuglanna eftir Steingrím Thor- arensen, eitt af uppáhaldsljóð- skáldunum hennar: Nú litverpt orðið láð er alt og lækkuð sunna, veðrið svalt, og vindar kveða kaldri raust, að komið sé hið napra haust. Vor sumarvist hér enduð er, þar yndisstundir lifðum vér, með leik og önn, með sveim og söng, við sældarkjör um dægur löng. Vér fuglar smáu þökkum þér, vor þekka sumarfoldin hér; þá frera tíðir fara í hönd, oss fargið ber í hlýrri lönd. En dreyma mun til þín oss þar, og þig til vor, þó skilji mar; æ farðu vel, vér vitjum þín Sigríður Sunna Reynisdóttir. Sigríður Kr. Árnadóttir heimili, það var alltaf tilhlökkun þegar til stóð að pabbi og mamma færu úr bænum og við í pössun til ykkar ömmu, enda hvergi meira dekrað við okkur en á þeim stundum. Þú afi svafst gjarnan í sófanum svo við gætum gist í þínu plássi upp í hjá ömmu svo það færi nú alveg pottþétt vel um okkur. Mörg voru ferðlögin sem við fórum í saman, fullt af sum- arbústaðaferðum og útilegur, það fór nú alltaf betur um okk- ur í húsbílnum hjá ykkur ömmu heldur en í tjaldvagninum og Kolur auðvitað alltaf með. Að ógleymdum Danmerkurferðun- um, það var nú mikil spenna í loftinu þegar við fórum í 70 ára afmælisferð ömmu til Köben og við öll systkinin að fara í fyrsta skipti til útlanda. Þvílík fyrirmynd sem þú hef- ur alltaf verið, þú varst alltaf eitthvað að brasa og í okkar augum þá gastu allt og reddaðir öllu. Þú kenndir okkur það að best væri að drífa í hlutunum og ekki að hika. Mörgum stundum eyddum við bræðurnir með þér á skemmu-gólfinu eitthvað að græja og gera og í vörubílnum hjá þér. Þú varst alltaf svo áhugasam- ur um það sem við systkinin vorum að gera í lífinu, hvort sem það var skólinn en þú spurðir svo oft hvernig gengi í skólanum og sagðir svo alltaf „já það er ekki að spyrja að því“, vinnan eða áhugamálin. En þú deildir áhugamáli á hest- unum með okkur og eru þær ansi margar stundirnar sem þú eyddir með okkur í hesthús- unum og í alls konar stússi tengdu hestunum. Það var alltaf hægt að treysta á þig afi ef okkur vant- aði að láta keyra okkur eitt- hvað, það var aldrei vandamál hjá þér að redda því og það var líka hægt að treysta á það að þú værir með eitthvert gott slikk í bílnum. Öll eigum við það sam- eiginlegt systkinin að þú kennd- ir okkur á bíl, leyfðir okkur að keyra suðr’á firði mögulega nokkrum árum áður en við fengum leyfi til að keyra bíl. Alltaf varstu til staðar fyrir okkur og hafðir svo gaman af því að leyfa okkur að fljóta með í alls konar ævintýri, fyrir það erum við þakklát. Takk fyrir allt, elsku afi. Þórhildur og Sölvi. Í dag fylgi ég elskulega afa mínum honum „afa Sölva“ hinsta spölinn. Það eru forrétt- indi að hafa alist upp í mikilli nálægð og samskiptum allt fram á mín fullorðinsár við afa og ömmu, sem voru alltaf í næsta húsi eða aðeins einu sím- tali í burtu. Afi var mikill fjöl- skyldumaður og sést það best á því hversu samheldnir hans nánustu afkomendur eru, það er svo sannarlega ekki sjálfgefið. Ég er ótrúlega þakklát fyrir all- ar stundirnar okkar í eldhús- króknum á Laugaveginum, alla kaffibollana og hádegishitt- ingana undafarin ár. Afi var af- ar handlaginn og klár maður, hann gerði við allt sem bilað var og ef eitthvað var ekki til þá bjó hann það til. Afi var kjölfestan í fjölskyldunni okkar og því er skarðið stórt sem hann skilur eftir sig. Á tímamótum sem þessum ylja ég mér við ljúfar minningar um stóran og sterk- an mann sem lítilli stelpu fannst geta gert hvað sem er. Ég mun ávallt varðveita minninguna um þig, elsku afi minn, og halda sprengidaginn okkar hátíðlegan um ókomna tíð. Ég kveð þig með trega og miklum söknuði en fyrst og fremst með þakklæti fyrir allt. Hvíldu í friði, elsku afi Sölvi. Farðu í friði vinur minn kær Faðirinn mun þig geyma Um aldur og ævi þú verður mér nær Aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens) Þín Hanna Sigríður (Sigga). Elsku afi Sölvi, komið er að kveðjustund og margt að þakka fyrir og margs að minnast. Ég var svo heppin að alast upp í næsta húsi við ykkur ömmu, sem alltaf stóð opið fyrir okkur barnabörnin. Maður gat alltaf verið viss um að fá eitthvað gott í gogginn hvort sem það var nýbakað frá ömmu eða þú smurðir brauð með síld og laumaðir svo há- karlsbita upp í mann. Mesta sportið sem krakki var að fara rúnt með þér á vöru- bílnum og sérstaklega þegar ferðinni var heitið úr bænum. Vinnusemi og dugnaður er það sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um afa Sölva. Ég er óskaplega þakklát fyr- ir það að börnin mín skuli hafa fengið að kynnast afa Sölva og þótti þér svo gaman að fá þau í heimsókn til ykkar ömmu og var það dýrmætt. Ég kveð þig núna elsku afi minn. Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vinda leiða. Draumalandið himinheiða hlær og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Þín Ása Guðrún (Ása Gunna).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.