Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu Kolbeinn og Árný hafa alltaf ferðast mikið um landið og börnin þeirra hafa erft þennan áhuga á íslenskri náttúru og útilegum og er það dýrmætur arf- ur. Fjölskyldan reynir að hittast a.m.k. einu sinni á ári í stórri útilegu. Kolbeinn segist gæfumaður í sínu lífi og talar sérstaklega um sitt mikla barnalán. „Ég hef verið einstaklega heppinn með fjölskylduna, eiginkonu mína, börnin, barnabörnin og tengda- börnin og er ævinlega þakklátur fyrir það.“ Fjölskylda Eiginkona Kolbeins er Árný Val- gerður Ingólfsdóttir stuðnings- fulltrúi, f. 27.2. 1952. Foreldrar henn- ar eru hjónin Ingólfur Ólafsson, f. 8.11. 1916, d. 29.2. 2012, og Áslaug Gísladóttir húsmóðir, f. 17.8. 1923, d. 2.9. 1998. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Kolbeins og Árnýjar eru: 1) Áslaug Pálsdóttir framkvæmdastjóri, f. 4.3. 1973, gift Þóri Kjartanssyni framkvæmdastjóra, f. 21.2. 1969. Þau búa í Kópavogi. 2) Ingólfur Kolbeins- son vélaverkfræðingur, f. 13.7. 1981, giftur Önu Kaisu Mikkonen verkfræð- ingi, f. 19.10.1983. Þau búa á Akureyri. 3) Helga Kolbeinsdóttir, grunn- skólakennari og söngkona á Akureyri, f. 14.1. 1984. 4) Ólafur Kolbeinsson, véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 1.5. 1991, giftur Tönyu Karchevsku mót- tökuritara, f. 25.1. 1987. Barnabörnin eru fjögur; Alex Bjarki 11 ára, Apríl Björk 10 ára, Arn- ar Bjarki átta ára og Júlíus fjögurra ára. Systkini Kolbeins eru: Guðrún, fóstra í Mosfellsbæ, f. 2.9. 1937; Björn Tryggvi, verkamaður á Sel- tjarnarnesi, f. 12.1. 1939; Steinunn, bóndakona á Heiðarbæ í Blá- skógabyggð, f. 12.6. 1940; Kristín, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 22.9. 1943. Foreldrar Kolbeins eru Guð- mundur Tryggvason, kennari, bóndi og skrifstofumaður frá Stóru-Borg í Húnavatnssýslu, síðar í Kollafirði og loks í Reykjavík, f. 1.9. 1908, d. 3.2. 2005, og Helga Kolbeinsdóttir, hús- móðir í Kollafirði og síðar Reykjavík, f. 18.8. 1916, d. 28.5. 1985. Kolbeinn Guðmundsson Kristín Jónsdóttir frá Hvalskeri V-Barð. Vinnuk. á Lambavatni og Látri Jóhann Jónsson frá Tungu V-Barð. b. í Krókshúsum Guðrún Sigríður Jóhannsdóttir húsmóðir í Kollafirði, síðar kennari við Miðbæjarskóla Kolbeinn Högnason b. í Kollafirði, síðar skrifstofumaður í Rvk Helga Kolbeinsdóttir húsmóðir Kollafirði, Reykjavík Katrín Kolbeinsdóttir húsfreyja í Kollafirði, Kjal. Högni Finnsson frá Meðalf. Kjós. Snikkari í Rvk, afkomandi Stephensena Guðrún Magnúsdóttir vinnukona í Hafnarnesi og á Hólum, A-Skaft. Magnús Sigurðsson vinnumaður á Hólum, A-Skaft. Guðrún Magnúsdóttir frá Hornafirði húsmóðir Klömbrum og Stóru-Borg, Vesturhópi Björn Tryggvi Guðmundsson búfr. frá Ólafsdalsskóla b. Klömbrum og Stóru-Borg Vesturhópi Elínborg Guðmundsdóttir húsm., Syðri-Völlum, V-Húnavatnss. Guðmundur Guðmundsson b. og smiður Syðri-Völlum, V-Húnavatnssýslu Úr frændgarði Kolbeins Guðmundssonar Guðmundur Tryggvason kennari, bóndi, skrifstofum., Stóru-Borg, Reykjavík, Kollafirði „ÉG VISSI AÐ VIÐ HEFÐUM EKKI ÁTT AÐ KAUPA HÚSEIGN VIÐ VATN!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að vera heimavinnandi húsfaðir. VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA BÝÐ ÉG YKKUR ÞETTA KLASSÍKSA GRETTIS-MÓMENT ÆTLARÐU AÐ PANTA HUMARINN? SVO REGLUGERÐ UM HEIÐARLEIKA Í TEIKNIMYNDASÖGUM SÉ FRAMFYLGT VIL ÉG TAKA ÞAÐ FRAM AÐ SUMAR ÁSKORANIRNAR KOMU FRÁ MÉR NAMM! NEI … ÉG ÆTLA AÐ PANTA KJÚKLINGAVÆNGI! ÞESSI HÉRNA MUN HALDA PUTTUNUM ÞÍNUM AF DISKNUM MÍNUM! „ÉG ÆTLA RÉTT AÐ VONA AÐ ÞÚ ÆTLIR EKKI AÐ BAKKA ÚT ÚR SAMKOMULAGINU ENN EINA FERÐINA.” Þórarinn Eldjárn birtir á feisbókvísuna „Áhorf“: Horfa ekki aðeins héðan heldur þaðan. Mikilvægt á meðan að muna hvaðan. „Hausthrollur“ er vel kveðið og skemmtilegt kvæði eftir Ólaf Stef- ánsson: Þegar blöð af birki falla, blíðusumri fer að halla og fuglar sækja suðrí lönd. Flugum, eins og flestum pöddum, fækkar, einnig skógarröddum, þá sárt ég þrái sólarströnd. Fyrir dyrum dvelur vetur, dokar fyrst, en síðan getur gengið hart um garða hér. Þorrinn oft er þrautasamur, þrálátskuldi og veðrahamur; að birgja hann úti best þá er. Látum karlinn kveljast úti, kulsamur og lakur skúti sýnist Þorrans besta ból. Miðstöð kyndum, mjöðinn þjórum, meðan bíðum, róleg slórum að veki okkur vorsins sól. Maðurinn með hattinn lætur ekki deigan síga á Boðnarmiði: Lifað hef ég lífsins þraut laus frá öllu gríni þegar fulla flösku braut af frönsku eðalvíni. Og bætir við: „Nú er best að leggja sig því vinnan bíður“: Enn er mikið á sig lagt, auraráðin laga. Nú fer ég á næturvakt næstu átta daga. Hallmundur Kristinsson minnist gamalla daga: Man ég það vel úr minni sveit: Misvel var tuggan þegin, og alltaf var talin betri beit á bakkanum hinum megin. Kristján H. Theodórsson er með á nótunum: Handan læksins löngum þótti ljúffengara grasið vera. Búfénaður brátt í sótti beit sem dygði stóði mera. Björn Björnsson Breiðabóls- stöðum orti: Heimurinn er hrekkjafans hef ég það oft fundið þegar allt er andskotans ama og meinum bundið. Hjallalands-Helga Þórarinsdóttir kvað: Mæðan stranga mjög er skörp, mér finnst langur skaðinn. Ólafur svangur étur Jörp, ég má ganga í staðinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hausthrollur héðan og þaðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.