Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 ✝ Björn Jónssontölvunarfræð- ingur fæddist 30. maí 1960 í Reykja- vík. Hann lést á heimili sínu 3. október 2020. Foreldrar Björns eru Hafdís Hlíf Sigurbjörns- dóttir, f. 7. sept- ember 1938, og Jón Óskarsson, f. 21. janúar 1937, d. 5. maí 2014. Bræður Björns eru Óskar Örn, f. 11. september 1963, og Sigmar, f. 14. nóv- ember 1971. Eftirlifandi eiginkona Björns er Anna Kristín Daníelsdóttir, f. 18. júlí 1960. Börn þeirra eru: 1) Hafdís Sól, f. 20. ágúst 2001. 2) Breki, f. 19. mars 2004. Börn Björns og Sigrúnar Waage af fyrra hjónabandi og stjúpbörn Önnu Kristínar eru: 1) Sigurður Björn, f. 4. janúar 1987, dóttir hans er Sigrún ið 1980. Hann lauk B.Sc.-námi í tölvunarfræði frá New York Institute of Technology árið 1985 og M.Sc. í tölvunarfræði frá Florida Institute of Techno- logy árið 1987. Við heimkom- una frá Bandaríkjunum hóf hann störf sem tölvunarfræð- ingur hjá Landsvirkjun og vann þar í 32 ár. Lengst af sem yf- irmaður tæknideildar. Björn var mikill íþróttamað- ur og æfði bæði handbolta og fótbolta á yngri árum. Síðan tók golfið við, skokk, hjólreiðar og bridge. Björn var mikill fjöl- skyldumaður og fannst honum ekkert betra en að komast á skíði og í sumarbústað þar sem hann naut útivistar og samveru með fjölskyldunni. Útför Björns fer fram í Bú- staðakirkju í dag, 16. október 2020, klukkan 13. Vegna að- stæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni https://www.sonik.is/bjornj Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlat Ásta, f. 25. október 2017. 2) Hafdís Hlíf, f. 7. júlí 1990, d. 21. júní 2001. 3) Margrét Kristín, f. 9. ágúst 1996, sam- býlismaður hennar er Arnar Ingi Hall- dórsson, f. 12. apríl 1993. Börn Önnu Kristínar af fyrra hjónabandi og stjúpbörn Björns eru: 1) Heiða Dóra Jónsdóttir, f. 27. ágúst 1982, sambýlismaður hennar er Julian Smith, f. 27. október 1993, sonur hennar er Askur Eyland, f. 18. apríl 2010. 2) Daníel Jón Jónsson, f. 22. mars 1991. Björn ólst upp í Hlíðunum en fluttist á unglingsaldri í Foss- vog. Hann vann við ýmis störf á yngri árum, lengst af sem rútu- bílstjóri hjá Kynnisferðum. Hann varð stúdent frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti ár- Elsku pabbi minn er nú farinn frá okkur, sorgin og söknuðurinn er ólýsanlegur. Pabbi var einstak- ur maður og eiga öll jákvæðu orð- in í orðabókinni við hann en má þá sérstaklega nefna duglegur, sam- viskusamur, góður og fyndinn. Pabbi var mín helsta fyrir- mynd í lífinu og fetaði ég í sömu spor og hann þegar ég varð tölv- unarfræðingur. Ég er þakklát fyrir að pabbi hafi samglaðst mér í upphafi árs þegar ég útskrifað- ist. Ég var spennt fyrir framtíðinni með pabba og öllum stundunum sem við áttum eftir að eiga sam- an, spila golf, leiða mig vonandi að altarinu einn daginn, horfa á börnin sín og barnabörnin vaxa úr grasi. Þrátt fyrir að í dag fái ég ekki að upplifa þessa hluti með pabba mínum þá veit ég að hann verður alltaf hjá mér í hjarta mínu og fylgist með að ofan. Allar minningarnar, sögurnar og myndirnar af pabba eru það dýr- mætasta sem ég á í dag en það er það sem yljar um hjartað í sorg- inni. Ég er þakklát fyrir allt það sem hann kenndi mér í lífinu og allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Elsku pabbi minn, núna ertu kominn til Hafdísar Hlífar, knús- aðu og kysstu hana frá okkur. Ég elska ykkur og söknuðurinn er ólýsanlegur en ég veit að þið eruð alltaf hjá mér og mun minning ykkar lifa. Ég elska þig. Þín dóttir, Margrét Kristín. Elsku pabbi, engan veginn datt mér í hug að þú myndir kveðja okkur svona fljótt og að við mynd- um vera í þessari stöðu. Þegar ég horfi til framtíðar er erfitt að ímynda sér hana án þín, þetta er allt svo óraunverulegt. En það eina sem hægt er að gera núna er að horfa til baka á góðu minning- arnar okkar. Samband okkar hef- ur alltaf verið einstakt enda mjög lík á ýmsan hátt, bæði í útliti og sem persónur. Ég er mjög þakk- lát fyrir öll 19 árin sem við áttum saman sem byggjast á góðum og skemmtilegum minningum. Ég er sérstaklega þakklát fyrir síð- ustu mánuðina okkar, þar sem við vorum orðin mun nánari og byrj- uð að mynda ný tengsl sem ég vildi að við hefðum getað haldið áfram að þróa. Ég hef alltaf litið mikið upp til þín og mun klárlega taka alla þína kosti til mín og allt það sem þú hefur kennt mér út í lífið. Ég verð ávallt litla pabbastelp- an þín. Hafdís Sól Björnsdóttir. Með traustum nagla byggðir þú gólf, fyrir okkur að spila. Á meðan settirðu hjartað í hólf, milli heimila. Gerðir allt til þess okkur að næra, en fékkst of stóran bita. Mun reyna af þér að læra. Til Hafdísar ertu farinn að lita. Elska þig pabbi. Þinn sonur, Sigurður Björn Waage Björnsson. Góður drengur hefur kvatt og horfið á vit nýrra heima. Við kynntumst Bjössa þegar hann og systir okkar hófu að rugla saman reytum. Strax frá byrjun sáum við að þar var á ferð ljúflingur mikill sem bauð af sér afar góðan þokka. Bjössi var með einstaklega fal- legt og rólegt yfirbragð og það var gott að vera í hans nærveru. Við fjölskyldan áttum marga skemmtilega tíma með Bjössa og bundumst við sterkum vináttu- böndum sem aldrei slitnuðu. Sorgin er mikil við fráfall þessa góða manns en góðar minningar lifa að eilífu. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Takk fyrir samferðina, elsku Bjössi okkar. Hvíl í friði og megi þér líða vel þar sem þú ert stadd- ur núna. Við biðjum almættið að styrkja ykkur, elsku fjölskylda, og gefa ykkur kraft til að takast á við sorgina. Kristín, Margrét og Hendrikka Waage. Vinir Björns Jónssonar hjá Landsvirkjun eru harmi slegnir við fráfall hans. Þessi rólegi og trausti félagi okkar var jafn hag- ur á dagleg störf sín og hann var á ýmiss konar félagsstörf í þágu samstarfsfólks síns. Bjössi starfaði hjá Landsvirkj- un í tæp 33 ár og var við andlát sitt yfirmaður kerfis- og net- reksturs innan upplýsingatækni og stafrænnar þróunar. Á rúmum þremur áratugum tók fyrirtækið miklum breytingum, ekki síst í tölvu- og upplýsingatækni, og átti Bjössi ekki lítinn þátt í því að leiða Landsvirkjun í gegnum þær stórfelldu breytingar. Í árdaga tölvutækninnar voru tækin dýr og í takt við tíðarandann voru öfl- ugu tölvurnar settar hjá yfir- mönnunum en þær lakari hjá rit- urunum. Þegar í ljós kom að ritararnir notuðu tölvurnar meira en yfirmennirnir tók Bjössi sig til og víxlaði tölvunum. Til að styggja ekki neinn skipti hann einnig um límmiða á tölvunum þannig að allt virtist vera óhreyft. Með hæglæti sínu og kímni- gáfu vann hann verkin af ábyrgð og natni, vel liðinn af öllum, hlý- legur í viðmóti og tók öllu sem að höndum bar með jafnaðargeði. Hann hafði gaman af að deila skemmtilegum sögum með sam- starfsfólkinu og þegar hann komst á skrið gat enginn annað en hrifist með. Þá var hann í ess- inu sínu. Starf Bjössa kallaði á sam- skipti við fjölmargt starfsfólk Landsvirkjunar og alltaf var hægt að treysta á að hann leit- aðist við að leysa úr öllum vanda. Hann var jafnframt formaður starfsmannafélags okkar um tveggja ára skeið og leysti það verkefni jafn vel og öll önnur sem hann tók að sér. Hann stofnaði m.a. golfklúbb starfsmanna- félagsins, skipulagði golfmót starfsfólks, golfnámskeið og ótal margt fleira. Sjálfur var hann sannfærður um að golfið væri góð leið fyrir starfsfólk til að kynnast og efla starfsandann. Óhætt er að segja að margir hafi tekið undir það, enda félagsmenn í golf- klúbbnum núna á annað hundrað. Sjálfur var Bjössi góður íþrótta- maður og jafn vígur á skíðin og golfkylfurnar. Við hjá Landsvirkjun vorum lánsöm að Bjössi skyldi kjósa að veita okkur liðsinni sitt í rúma þrjá áratugi og minnumst hans með mikilli hlýju og virðingu. Fjölskyldu Björns Jónssonar votta ég innilega samúð mína og annars starfsfólks. Hörður Arnarson. Elsku Bjössi minn, ég á erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur og ég eigi ekki eftir að hitta þig aftur, spjalla saman og spila með þér meistaragolf. Í minningunni man ég fyrst eftir þér í öllum jóla- og afmæl- isboðum hjá Hafdísi frænku. Bjössi var átta árum eldri en ég, stór og stæðilegur ungur maður, með sítt ljóst hár. Hann var oftast alvarlegur, en brosið var aldrei langt undan. Eðlilega vorum við ekki mikið saman á mínum yngri árum en leiðir okkar lágu saman þegar ég byrjaði að vinna á tölvu- deildinni hjá Landsvirkjun. Við Bjössi náðum strax vel saman í vinnunni og urðum mjög góðir vinir. Bjössi bjó til gott teymi og við unnum mörg skemmtileg og krefjandi verkefni saman og slóg- um oftar en ekki á létta strengi með Lalla og Heimi. Bjössi var eldklár og góður yfirmaður og duglegur að miðla af þekkingu sinni og reynslu. Bjössi var mikill meistari og hann kynntist fljótlega mínum nánustu vinum. Hann varð strax einn af okkur strákunum. Hann var mikill keppnismaður og gerði allt til þess að vinna sigur í keppni og var alltaf hress og skemmti- legur í hópnum. Við strákarnir fórum aldrei í golf til að spila golf, heldur var alltaf sett upp keppni og ýmislegt lagt undir í verðlaun. Við fórum í margar eftirminnileg- ar keppnisferðir bæði hér heima og erlendis. Bjössi og Palli voru nánast alltaf saman í liði og það er gaman að hugsa til þess hversu vel þið náðuð saman á golfvellin- um. Það var ekkert skemmtilegra en að keppa á móti ykkur því þið voruð alltaf í stuði með guði og gáfuð aldrei tommu eftir. Sem betur fer voruð þið ekki ósigr- andi, en við strákarnir héldum það á tímabili. Þið voruð miklir meistarar saman í liði sem kunn- uð listina að vinna og tapa. Það er skrítið að hugsa til þess að þú verðir ekki með okkur þegar við strákarnir höldum næstu meist- aragolfkeppni saman. Elsku Bjössi minn, þín verður sárt saknað. Það er ómetanlegt að hafa átt svona góðan vin og frænda og það er mér mjög mik- ilvægt að hafa fengið að kynnast þér svona vel. Elsku Anna Kristín og fjöl- skylda, guð gefi okkur styrk á þessum erfiðu tímum. Þinn vinur og frændi, Baldur. Með því dýrmætasta í þessu lífi er að eiga góða vini. Þegar þeir kveðja finnur maður fyrir því hvað máltækið „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ er rétt. Allt of fljótt þarf ég nú að kveðja mjög góðan vin minn og fyrrverandi svila, Björn Jónsson. Við Bjössi kynntumst fyrir nær fjórum áratugum er hann fór að vera með Sigrúnu Waage, er siðar varð kona hans, en hún er systir Kristínar konu minnar. Það var mikil gæfa að kynnast Bjössa. Við náðum einstaklega vel saman, höfðum álíka skopskyn og mikinn áhuga á íþróttum og í boltaíþrótt- um héldum við með sama liði. Fljótlega fórum við í golfið og það var oft gaman og mikil keppni hjá okkur, fjórum svilunum, í þeirri íþrótt. Við Kristín minnumst allra ógleymanlegu matarboðanna og samverustundanna sem við áttum bæði hér heima og á Spáni og við „strákarnir“ fórum einnig með tengdaföður okkar í ógleyman- lega golfferð til Portúgals. Já, það var oft brallað ýmislegt skemmti- legt í „gamla daga“. Leiðir Bjössa og Sigrúnar skildi síðar og þar með fækkaði samverustundum okkar. Björn kynntist yndislegri konu, Önnu Kristínu Daníelsdóttur, og eign- uðust þau tvö börn. Ég minnist Bjössa sem eins besta manns sem ég hef kynnst. Rólegur, yfirvegaður, bóngóður, frábær kímnigáfa og umfram allt var hann einstaklega traustur og góður maður. Kæri vinur, hvíldu í friði og hafðu mikla þökk fyrir yndislega samfylgd. Við Kristín vottum Önnu Kristínu, Hafdísi móður hans og börnum hans svo og öðr- um ástvinum innilega samúð og megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Knútur Signarsson. Þær sorgarfréttir voru þyngri en tárum taki að vinur minn og félagi Björn Jónsson væri látinn. Ekki er hægt að ímynda sér sorg fjölskyldu hans og þeirra sem stóðu honum næst. Það er erfitt að trúa því að fá ekki að sjá Bjössa aftur, þennan glæsilega mann sem var rétt orðinn 60 ára. Þetta sýnir okkur hve skammt er á milli lífs og dauða og að ekki er sjálfgefið að við tökum á móti nýjum degi. Það er um aldar- fjórðungur síðan við kynntumst. Við vorum vinnufélagar og Bjössi vakti strax athygli þar sem hann hafði einstaklega að- laðandi framkomu og maður tók strax eftir því í fari hans að hann hafði mikinn húmor og var oft fljótur að sjá spaugilegri hliðar lífsins. Eitt af hans áhugmálum var golfið og þau eru ófá skiptin sem ég spilaði með Bjössa hringi hér heima og erlendis. Oft sendi Bjössi póst að það væri laust pláss í Holtinu eða á Korpunni og spurði hvort maður væri til í hring. Það var ekki oft sem ég gat ekki mætt, því það var unun að fá að spila með honum. Síð- ustu árin höfum við spilað golf saman með félagsskap sem kall- ar sig Hamrana og spiluðum við flesta sunnudaga yfir sumarið. Skarðið hans í Hamrahópnum verður vandfyllt og ríkja mikil sorg og söknuður hjá okkur fé- lögum. Ég mun sakna Bjössa mikið og við sendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hans um leið og við þökk- um Bjössa samfylgdina. Sigurður Sigurðsson. Með sorg í hjarta og tregat- árum kveðjum við kæran félaga okkar og vin, Björn Jónsson, sem fór allt of fljótt frá okkur. Við vorum allir samstarfsfélagar fyr- ir 27 árum, haustið 1993, þegar Bjössi stakk upp á því hvort við ættum ekki að taka í spil og þá varð ekki aftur snúið. Við höfum verið spilafélagar upp frá því og þannig ferðast saman í gegnum súrt og sætt. Bjössi var sá okkar sem kunni bridge-íþróttina best, en aldrei lét hann það pirra sig ef við svöruðum sögnum hans ekki rétt. Hann stytti sér kannski leið og fór beint í slemmuna ef hann treysti okkur ekki alveg. En þannig var Bjössi einmitt. Lifði lífinu til fulls og annað var ekki í boði. Við munum varðveita minn- ingarnar um góðu stundirnar og líka þær broslegu, eins og þegar við mættum til Bjössa á spila- kvöldi og húsbóndinn í baði og ekkert búinn að baka. Hann kunni að njóta lífsins og stundaði til dæmis golf og skíði af kappi. Fjölskyldan skipti hann miklu máli og einnig að eiga vandað og fallegt heimili. Það var gaman að spjalla við Bjössa um hin og þessi málefni. Það var allt- af hægt að sjá spaugilegu hlið- arnar á málunum. Á þessari erf- iðu kveðjustund þökkum við fyrir dýrmæta vináttu og frá- bæran félagsskap í gegnum lífið. Við munum sakna Bjössa, hann var alltaf traustur og heill. Elsku fjölskylda Bjössa. Við sendum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi algóður Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Við tökum í spil þegar við hittumst á ný. Eggert, Guðjón og Nils. Nú er komið að því að kveðja góðan vin. Við Bjössi kynntumst fyrir 20 árum þegar ég hóf störf á tæknideild á upplýsingasviði Landsvirkjunar. Þá var Bjössi yfirmaður tæknideildar og náð- um við vel saman og höfum átt farsælt samstarf síðan. Við Bjössi urðum fljótt miklir vinir og ýmislegt brallað. Það kom ekki annað til greina en að hreyfa okkur í hádeginu, þannig að Bjössi skipulagði 6 km hlaupaleiðir í nágrenni vinnu- staðarins og engar afsakanir teknar til greina. Síðan breyttist þetta í göngutúra, þar sem mikið var spjallað um daginn og veg- inn, húsin skoðuð í hverfinu enda hafði Bjössi mikinn áhuga á arki- tektúr og fallegum hlutum. Við stofnuðum okkar eigin greining- ardeild og brutum til mergjar hin ýmsu málefni í kaffitímum, og ekki má gleyma öllum ný- sköpunarfyrirtækjunum sem við ætluðum að stofna, en vorum einhvern veginn alltaf aðeins of seinir og oft mátti heyra mikinn hlátur á þriðju hæðinni. Bjössi hafði gaman af að segja sögur og var hann oftar en ekki aðalhrakfallabálkurinn og lágum við oft í hláturskrampa. Eins slík saga var þegar risastór Frances- túba festist í nefinu á Bjössa í einni af mörgum veiðiferðum okkar. Ekki má gleyma skíðaferðun- um með ferðaskrifstofu Önnu og Bjössa, þetta eru tímar sem munu seint gleymast og erum við Kata þakklát fyrir að hafa fengið að fara með í þessar ferðir sem hafa skapað svo margar ógleymanlegar minningar sem eru svo dýrmætar núna. Bjössi var annálaður íþrótta- maður, spilaði handbolta á sín- um yngri árum með Val og var mikill íþróttamaður. Hann hafði náttúrulegt talent í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var með golfbakteríuna á háu stigi og í mörgum golfhópum og oft hristi maður bara hausinn á morgnana þegar Bjössi mætti kl. 8, búinn að taka einn hring. Bjössi hafði gaman af smíðum og það tók ekki langan tíma að stækka bústað sem hann hafði erft eftir föður sinn um helming og fylgdumst við félagarnir spenntir með þeim framkvæmd- um. Farnar voru reglulegar ferðir á Jónsstaði að taka út verkin hans Bjössa, hvort sem það var útisturtan, nýju glugg- arnir, útsýnið út á Þingvallavatn, steypta borðplatan eða núna síð- ast brettastóllinn, allt hugmynd- ir hannaðar og smíðaðar af Bjössa. Orðstírinn lifir eins og segir í Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálf ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Bjössi var góður drengur og hrókur alls fagnaðar. Hann var vinmargur og hans verður sárt saknað. Hugur okkar er hjá Önnu, börnunum og öðrum að- standendum. Hvíl í friði. Þinn vinur, Lárus Sigurbjörn, og fjölskylda. Það var fyrir um 20 árum að vinkona Helenar, hún Anna Kristín, sagði okkur að hún væri farin að búa með honum Bjössa, sem við könnuðumst við þegar við vorum fótboltaforeldrar sam- an. Ekki fannst okkur það verra þegar þau gerðust nágrannar okkar líka í kjölfarið þegar Bjössa tókst að sannfæra Önnu Kristínu um ágæti Garðabæjar. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar. Það var margt brallað skemmtilegt saman. Við fylgdumst með fjölskyld- unni á Tjarnarflötinni vaxa úr grasi og þar voru hæðir og lægð- ir eins og gengur. Það tók mikið Björn Jónsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÆGIR INGVARSSON bifvélavirkjameistari og vélstjóri, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri í Ólafsvík, þriðjudaginn 13. október. Ásta Dóra Valgeirsdóttir Ingvar Valgeir Ægisson Áslaug Olga Heiðarsdóttir Trausti Ægisson Lilja Ólafardóttir Valgerður Margret Ægisd. Hafrún Elvan Vigfúsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.