Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 11

Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020 Íslenskmyndlist 25%Afsláttur afinnrömmuní nóvember Vilt þú bóka ÞINN tíma ramma@simnet.is Síðumúla 34 • Sími 533 3331 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Ég fullyrði að þetta hefur ekkert með persónur eða leikendur að gera, við erum eingöngu að gera leikreglur sem við getum unnið eftir og skýrt þær betur,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, formaður laga- nefndar Miðflokksins. Á aukalands- þingi flokksins, sem fram fór fram á laugardag, var lögum flokksins breytt og embætti varaformanns lagt niður. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavíkurborg, var ein í framboði til varaformanns og hefur að eigin sögn ekki í hyggju að bjóða sig fram í stjórn flokksins Vilja nútímavæða flokkinn Lagabreytingarnar voru sam- þykktar með 85% greiddra atkvæða og fela þær m.a. í sér fjölgun stjórn- arsæta innan flokksins, að sögn Ein- ars. Var jafnframt ákveðið að þing- flokksformaður verði talsmaður stjórnar í forföllum formanns en Gunnar Bragi Sveinsson gegnir því hlutverki og hefur jafnframt setið sem varaformaður fram til þessa. „Stærsta breytingin í þessu er fjölgun í stjórn og að veita fleirum hlutverk innan flokksins. Við erum að gera stjórnina skilvirkari og nú- tímalegri, þar sem stjórnarmenn gegna viðamiklum hlutverkum, eru formenn stórra nefnda en bera ekki bara titla,“ segir Einar. Með þessu fetar flokkurinn sömu leið og þingflokkur Pírata, sem er jafnframt eini flokkurinn án vara- formanns. „Í flestum stjórnmála- flokkum er varaformaðurinn ekki kosinn með það fyrir augum að hann taki við af formanni,“ segir Einar og bætir við að eðlilegt sé að formaður þingflokks verði stað- gengill formanns fram að lands- þingi. Aukin áhersla á landbúnað Var samþykkt á þinginu að hver stjórnarmaður færi með for- mennsku nefndar sem ber ábyrgð á ákveðnu sviði í starfi flokksins og tengir flokksmenn við stjórn flokks- ins. Markmið breytinganna er að ná fram aukinni valddreifingu og auknu vægi flokksmanna við ákvarðanatöku um og í flokksstarfi. Lagði aukalandsþing Miðflokks- ins þunga áherslu á að efla land- búnað og innlenda matvælafram- leiðslu og var sagt að þar lægi eitt af stærstu tækifærum þjóðarinnar til framtíðar. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Miðflokksins, hefur nýverið mælt fyrir tillögu til þingsályktunar þess efnis. Að auki samþykkti aukalands- þingið að stofnað yrði sérstakt ráðu- neyti sem færi með málefni land- búnaðar- og matvælaframleiðslu í landinu. Þá yrði fylgt fast eftir ít- arlegri skoðun á meintu misræmi sem fram hefði komið um innflutn- ing og tollamál landbúnaðarafurða. Leggja niður varaformanns- embættið  Samþykkt á aukalandsþingi Mið- flokksins Vigdís var ein í framboði Ljósmynd/Lilja Jóhannsdóttir Landsfundur Miðflokkurinn boðaði til aukalandsfundar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í pontu. Aukalandsþing » Miðflokkurinn boðaði til aukalandsþings um helgina. » Breytingar voru gerðar á innra skipulagi flokksins. » Ákveðið var að leggja emb- ætti varaformanns niður. » Stjórnarmenn verða for- menn tiltekinnna málaflokka. » Þung áhersla á landbún- aðar- og matvælaframleiðslu. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Helsta gagnrýni stjórnarandstöðu- flokkanna hefur falist í því að rifja upp margföldunartöfluna og reyna að yfirbjóða aðgerðirnar,“ sagði Sig- urður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, í ræðu sinni á haustfundi miðstjórnar sem fram fór rafrænt á laugardaginn. Sigurður Ingi fór yfir aðgerðir ríksstjórnar- innar í kjölfar kórónuveiru- faraldursins ásamt því sem áunnist hefur í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hann sagði þetta ekki vera tíma yfir- boða heldur þyrftu stjórnmálamenn að sinna skyldum sínum gagnvart al- menningi og koma með skynsamar lausnir. Kallaði eftir ábyrgð bankanna Sigurður Ingi kallaði eftir ábyrgð viðskiptabankanna í ræðu sinni og sagði Seðlabankann hafa sent skýr skilaboð með lækkun stýrivaxta. „Vaxtahækkun bankanna er ekki til þess fallin að hvetja til fjárfest- inga – fjárfestinga sem þarf til að komast út úr krísunni. Hvar liggur þá ábyrgð bankanna?“ sagði hann. Sigurður benti á að bankaskatturinn hefði verið lækkaður hraðar en til stóð. „Ætlar einhver að græða og há- marka hagnað sinn í krísu sem þess- ari? Hér verða allir að koma að borð- inu sem eru aflögufærir.[…] Seðlabankinn hefur staðið við sitt, ríkissjóður hefur sett fram aðgerðir og stuðningslán verða framlengd. Nú er komið að bönkunum að sýna á spilin.“ Boðaði hækkun endurgreiðsluhlutfalls Sigurður sagðist sjá tækifæri í kvikmyndagerð á Íslandi og telur að rétt sé að hækka endurgreiðsluhlut- fall vegna kvikmyndagerðar upp í 35% eins og er í löndum sem veita Ís- landi samkeppni um verkefni. „Það skref, í viðbót við metnaðar- fulla kvikmyndastefnu sem Lilja Dögg hefur lagt fram, myndi gera kvikmyndagerðina enn öflugri at- vinnuveg fyrir Ísland,“ sagði for- maðurinn. Aukin áhersla á málefni eldri borgara Þá sagði Sigurður að flokkurinn þyrfti að hafa svör fyrir þær kynslóðir sem eru að eldast. „Hvort sem það eru meiri for- varnir og lýð- heilsa, aukin heimaþjónusta, fjarheilbrigðis- þjónusta og/ eða fleiri hjúkrunar- rými.“ Ljósmynd/skjáskot Pallborð Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins fór fram rafrænt eins og flestir fundir þessa dagana. Sigurður Ingi sendi bönkunum pillu  Formaður Framsóknar fór mikinn á miðstjórnarfundi Haustfundur miðstjórnar Fram- sóknarflokksins samþykkti til- lögu vegna notkunar rafrænna kosninga annars vegar og til- lögu um boðun 36. flokksþings Framsóknar 2021 hins vegar. Í þeirri fyrri er lagt til að Landsstjórn Framsóknar skipi þriggja manna starfshóp til að fara yfir og leggja fram tillögur að breytingum á lögum flokks- ins og framboðsreglum með notkun rafrænna skilríkja í huga. Samkvæmt lögum Fram- sóknarflokksins skal haust- fundur miðstjórnar ákveða hvenær skuli halda reglulegt flokksþing sem sé eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Boðað hefur verið til flokksþings í Reykjavík 23.-25. apríl 2021. Huga að raf- rænu þingi RAFRÆN FUNDARHÖLD Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.