Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 17

Morgunblaðið - 23.11.2020, Page 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar MYNDIR Íjólapakkann Hinn 10. nóvember 2020 var kynnt skýrsl- an „Samkeppnismat OECD á íslenskri ferðaþjónustu og bygg- ingariðnaði“. Fyrir liggur að ráðuneyti iðn- aðar leitaði til OECD en stofnunin hefur unnið sambærilegar skýrslur fyrir Mexíkó, Portúgal, Grikkland, Túnis og Rúmeníu. Þessi lönd eiga sér býsna ólíkan bak- grunn og menningu hvað varðar iðn- ir og iðnmenntun og gildir það líka um Ísland. Við lestur skýrslunnar kemur upp í hugann hvort OECD sé orðið útibú frá Viðskiptaráði Íslands. Grunur vaknar um að OECD sendi hingað fulltrúa sína til að grennslast fyrir um óskir stjórnvalda, viðskipta- ráðs og annarra sérhagsmunasam- taka og skili svo skýrslu samkvæmt þeim. Svo lík eru sjónarmið þeirra hér heima, sem hafa lengi vegið að iðnum og iðnmennt í landinu, helstu niðurstöðum skýrsluhöfunda. Hvað á skýrslan að fjalla um? Tilgangur skýrslugerðarinnar virðist eiga að vera samkeppnismat á því regluverki sem gildir um bygg- ingariðnað og ferðaþjónustu á Ís- landi. Einhverra hluta vegna verður skýrsluhöfundum OECD tíðrætt um bakaraiðn í plagginu og vilja þeir af- nema hana sem löggilta iðngrein. Svo hrifið er OECD af iðninni að hún er nefnd 26 sinnum í skýrslunni og ljósmyndun 51 sinni. Öllum til upp- lýsingar, og skýrsluhöfundum þar með, er bakaraiðn elsta iðngrein heims. Hún er hvorki ferðaþjónustu- né byggingargrein. Brauð hefur um aldir verið grunnnæring hjá sið- menntuðum þjóðum og nær saga bökunar allt að 13.000 ár aftur í tím- ann. Í öllu merkara riti en OECD-skýrslunni, nánar tiltekið Biblí- unni, er brauð nefnt mörg hundruð sinnum á nafn. Orð bera ábyrgð Iðnaðarráðherra hefur sagt að 30 milljarðar króna, um 1% af þjóð- arframleiðslu, lægju fastir í hagkerf- inu vegna íþyngjandi regluverks m.a. iðngreina. Mætti ekki snúa þessu við? Hvað kostar fúskið, sem fylgir afnámi löggildingar iðngreina? Ráðherra sagði í fréttum RÚV: „Ég geri ráð fyrir því að þeim muni fækka og ég hef lagt á það áherslu að vilja ekki fjölga þeim sérstaklega. Við gerum ríkari kröfur, við notum staðla, við erum með neytendavernd, við erum með alls konar aðrar kröfur í regluverkinu okkar sem hljóta á einhverjum tímapunkti að koma í staðinn fyrir lögverndun.“ Það er einfaldlega þannig að sveinsprófin og meistararéttindin eru skýrt merki um fagmenntun og þau byggj- ast á stöðlum til að tryggja að verk séu fagmannlega unnin. Þau eru líka til að auka neytendavernd og draga úr hættu á mistökum. Er ekki ein- faldara að hindra skaðann fremur en bæta hann eftir á? Farið með rangt mál Því var haldið fram í fréttum RÚV að Íslendingar lögvernduðu flestar starfsgreinar allra Evrópuríkja. En er það svo? Lögverndaðar greinar á Íslandi eru 174 en 396 í Tékklandi og 374 í Póllandi. Hvernig er þetta í hin- um Evrópuríkjunum sem OECD gerði um sams konar skýrslu? Í Portúgal eru 238 störf lögvernduð, Grikklandi 153 og Rúmeníu 103. Að Íslandi meðtöldu er miðgildið 167 lögvernduð störf. Við erum rétt fyrir ofan meðaltal 28 ríkja Evrópusam- bandsins þar sem fjöldi greina er 168. Hér er því farið með rangt og villandi mál. 120 milljónir króna Síðan í febrúar 2020 hafa iðn- aðarmenn og m.a. fulltrúar ASÍ og Neytendasamtakanna verið í starfs- hópi á vegum ráðuneytisins um bætt eftirlit með lögum um handiðnað. Hafa iðnaðarmenn verið að fara á vinnutíma til að aðstoða nefndina launalaust. Á sama tíma fær OECD greiddar himinháar upphæðir og 120 milljónum króna er eytt í að grafa undan íslensku samfélagi og grunn- stoðum þess. Lögverndun er gæðatrygging Undirritaðir hafa, í mörgum blaðagreinum, bent á hvað megi bæta varðandi iðngreinarnar á Ís- landi og hve eftirlit og umgjörð þess- ara greina sé á háu stigi í Þýska- landi. Ráðherra ætti að spyrja sig hvers vegna Þjóðverjar hafa ekki bankað upp á hjá OECD og beðið um skýrslu um samkeppnisumhverfi þar í landi. Því er fljótsvarað. Þeir þurfa þess ekki. Þeir þekkja sjálfir hætt- una á afnámi laga um verndun og kostnaðinn við fúsk vegna þessa. Þeir eru nýbúnir að veita tólf iðn- greinum aftur lögvernd eftir afnám hennar. Á sama tíma koma íslenskir aðilar fram með úreltar tillögur um hið gagnstæða, studdar af erlendri stofnun. Í skýrslunni er veist á mjög óvæginn og illa ígrundaðan hátt að kjölfestu verkmenntasamfélagsins sem ekki er hægt að sitja þegjandi undir. Telja má 100% öruggt að verði lögverndun felld niður á iðngreinum leiði það til lakari gæða og þjónustu, það sýna erlendar rannsóknir. Það getum við fullyrt án þess að rukka fyrir það 120 milljónir króna. Nú er nóg komið Fyrir nokkrum árum kom út yfir- litsskýrsla OECD um starfs- menntun á Íslandi. Þar var skrifað um einstaklega fjölbreytt og sterkt iðnnámskerfi sem byði upp á mikla möguleika. Verður við lestur henn- ar ekki komist að annarri nið- urstöðu en að núverandi skýrslu- höfundar séu með snert af óráði. Hvað hefur breyst? Hvers vegna eru bakaraiðn og ljósmyndun, með gott menntakerfi að baki, komnar á eins konar svartan lista? Er það vegna þess að fulltrúar greinanna hafa verið virkastir við að benda yf- irvöldum á brot á iðnaðarlögum? Eru þetta launin fyrir að benda á ólöglegan rekstur? Það er ekki rök- rétt að hvetja ungt fólk til iðnnáms þegar stjórnmálamenn hafa ekki meiri skilning á atvinnulífinu, hags- munum þjóðarinnar og framtíð ungs fólks. Landsmenn eiga ekki að sitja hljóðir ef stjórnvöld grafa und- an aldagömlum iðngreinum. Til- lögur og hugmyndir sem nú koma t.d. frá viðskiptaráði og ráðuneyt- inu, með stuðningi OECD, lýsa van- trausti á iðnmenntun og grafa und- an faglega mikilvægum iðngreinum. Í raun ganga þær þvert á fögur orð ráðamanna sem tala sífellt um mikilvægi þess að efla iðnnám. Við ítrekum að ríkir al- mannahagsmunir eru fyrir því að tryggt sé að ákveðin verk séu unnin af fagmönnum og lögverndun varði almannahagsmuni. Tillögurnar eru gróf aðför að gæðum og fag- mennsku í landinu og lögleiðing á fúski. Eftir Sigurð Má Guðjónsson » Lögverndaðar grein- ar á Íslandi eru 174 en 396 í Tékklandi og 374 í Póllandi. Sigurður Már Guðjónsson Höfundur er iðnmeistari. Lögleiðing á fúski? Þarftu að láta gera við? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.