Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 14

Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 um sem þarf að verja til þess að kom- ast til botns í því hvað eigi að greiða til hins opinbera. Ekki síður má þó segja að því minni sem jaðarskattarnir séu, því samkepnnishæfara sé skattkerfið. Fjölmörg fyrirtæki eiga auðvelt með að velja sér vettvang og flytja starf- semi milli landa í því augnamiði að lágmarka kostnað af völdum skatt- heimtu, hámarka þannig arðsemi eft- ir skatta. Séu skattar of miklir leitar fjárfesting annað, atvinna minnkar og það hægist á vexti. Þar fyrir utan leiða háir skattar jafnan til aukinna undanskota. Samkvæmt rannsóknum OECD eru fyrirtækjaskattar helst til þess fallnir að hamla hagvexti, en tekjuskattar einstaklinga og neyslu- skattar síður. Fasteignaskattar hafa minnst áhrif þar á. Með hlutleysi skatta er átt við að þeir afli hinu opinbera tekna án þess að bjaga efnahagslífið, t.d. gera suma vöru eða þjónustu dýrari en aðra, þannig að tæki markaðarins til réttr- ar nýtingar á takmörkuðum gæðum komi ekki að gagni. Sömuleiðis ætti skattkerfið ekki að ýta undir neyslu frekar en sparnað, líkt og gera má með fjármagnstekju- eða auðlegðar- sköttum. Þá er hlutlaust skattkerfi laust við undanþágur eða sérstaka skattaafslætti. Almennt verður flókið skattkerfi til þess að minnka hlutleysi þess, skattsmugum fjölgar en stór- fyrirtæki og auðmenn eiga þá auð- veldara en aðrir með að nýta sér kerf- ið út í ystu æsar. Áhrif skatta á efnahag Skattkerfi hafa veruleg áhrif á efnahagsþróun ríkja, fyrir ríkisvaldið, atvinnulíf og einstaklinga. Skynsam- legt skattkerfi þarf að vera bæði ein- falt, ódýrt og hóflegt, svo skattgreið- endur eigi auðvelt með að átta sig á því, hvað er til skiptanna og gjalda keisaranum það sem keisarans er. Það virkar hvetjandi á efnahagslífið um leið og ríkisvaldið fær nauðsyn- legar tekjur. Aftur á móti eru léleg, flókin og íþyngjandi skattkerfi til þess falin að vera kostnaðarsöm, bjaga verðmætamat og efnahagslega þætti, sem veldur sóun og er til tjóns. Þetta hafa menn þekkt um aldur, þó sjaldan hafi ríkt eining um hvernig þau virki best. Þar togast jafnan á tvö meginsjónarmið í skattheimtu, sem sjaldan fara vel saman. Annars vegar sú afstaða að markmið skattheimtu sé að afla ríkissjóði tekna til sameigin- legra útgjalda, en hins vegar að nota beri skattkerfið til þess að útdeila verðmætum landsins í samræmi við pólitísk markmið. Skilningur á samhengi skattheimtu og efnahagslegs árangurs hefur þó aukist mikið á undanförnum árum og víða um heim hafa átt sér stað um- fangsmiklar umbætur skattkerfa. Það á ekki síst við í OECD-löndunum, sem flest eru þroskuð, vestræn lýð- ræðisríki. Þar hafa jaðarskattar á tekjur bæði fólks og fyrirtækja verið skornir verulega niður, en þorri skatttekna sóttur með skattheimtu á breiðum grunni, svo sem með launasköttum og virðisaukaskatti. Kórónuveiran hefur einnig haft sín áhrif á skattheimtu, úti í heimi sem hér á Íslandi. Þar er yfirleitt um að ræða tímabundnar skattbreytingar. Við blasir mikið tekjufall, þó það sé mismikið fram komið, en skattbreyt- ingarnar hafa miðast við að milda höggið, auðvelda endurreisnina þegar þar að kemur og treysta tekjuöflun hins opinbera. En það er ekki sama hvernig það er gert og verður fróð- legt að sjá hvernig úr spilast. Samkeppnishæfnin minnkar  Innan OECD er Ísland í hópi ríkja með minnsta skattalega samkeppnishæfni  Ísland í 30. sæti af 36  Ísland skást í fyrirtækjasköttum, undir meðallagi neysluskatta, með lökustu einstaklingssköttum Samkeppnishæfni skattheimtu Í OECD-ríkjum Evrópu Röð og stig OECD-ríkjanna 36 Heimild: OECD, Tax Foundation. Ísland 30. sæti Írland 20. sæti Bretland 22. sæti Portúgal 33. sæti Spánn 27. sæti Frakkland 32. sæti Noregur 13. sæti Svíþjóð 7. sæti Finnland 16. sæti Eistland 1. sæti Lettland 2. sæti Litháen 6. sæti Tyrkland 11. sæti Ísrael 25. sæti Grikkland 29. sæti Ítalía 36. sæti Ungverjaland 14. sæti Pólland 30. sæti Danmörk 28. sæti Þýskaland 15. sæti Tékkland 8. sæti Austurríki 12. sæti Sviss 4. sæti Lúxemborg 5. sæti Holland 17. sæti Belgía 19 sæti Slóvakía 10. sæti Slóvenía 23. sæti 0 20 40 60 80 100 36. Ítalía 35. Chile 34. Pólland 33. Portúgal 32. Frakkland 31. Mexíkó 30. Ísland 29. Grikkland 28. Danmörk 27. Spánn 26. Japan 25. Ísrael 24. Kórea 23. Slóvenía 22. Bretland 21. Bandaríkin 20. Írland 19. Belgía 18. Kanada 17. Holland 16. Finnland 15. Þýskaland 14. Ungverjaland 13. Noregur 12. Austurríki 11. Tyrkland 10. Slóvakía 9. Ástralía 8. Tékkland 7. Svíþjóð 6. Litháen 5. Lúxemborg 4. Sviss 3. Nýja Sjáland 2. Lettland 1. Eistland Ljósmynd/Kaupo Kalda Samkeppnishæfust Tallinn er höfuðborg skattaparadísarinnar Eistlands, en Eystrasaltslöndin eru með einhver samkeppnishæfustu skattkerfi heims. BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Ísland lækkar milli ára í niðurstöðum rannsóknar á skattkerfum hinna 36 ríkja Efnahags- og framfarastofnun- arinnar (OECD). Þar er Ísland fallið niður um tvö sæti frá 2019, niður í 30. sæti og komið í hóp þeirra ríkja sem eru minnst samkeppnishæf út frá skattaumhverfi. Þetta kemur fram í árlegri rann- sókn bandarískrar stofnunar, þar sem lagt er mat á helstu greinar skattheimtu, alls 40 þætti. Meðal þess sem tínt er til um Ís- land í rannsókninni er að fyrirtækjum séu settar skorður við uppsöfnun yf- irfæranlegs skattalegs taps, að 24% virðisaukaskattur sé hár en taki til til- tölulega þröngs skattgrunns og að CFC-reglur taki bæði til beinna og óbeinna tekna. Hins vegar er nefnt að 20% fyrirtækjaskattur sé nokkuð undir meðaltali OECD (23,3%) og skattar á fyrirtæki, neyslu og vinnu- afl séu einfaldari en gerist og gengur í OECD. Þegar helstu þættir eru skoðaðir sést að Ísland stendur sig skást hvað fyrirtækjaskatta varðar, er þar í 10. sæti. Svo syrtir í álinn, Ísland er í 19. sæti yfir neysluskatta, 25. sæti í eignasköttum, 30. sæti varðandi al- þjóðlegt regluverk og í 34. sæti um skatta einstaklinga. Af ríkjum OECD er það Eistland, sem þykir búa yfir mestri skattalegri samkeppnishæfni. Skattkerfið þar er enda fremur nýtt af nálinni og rafræn stjórnsýsla allsráðandi. Ekki á að koma á óvart að nágrannar þeirra í Lettlandi koma næstir á eftir, því þeir tóku eistneska skattkerfið nýlega upp. Norðmenn, Svíar og Finnar standa sig líka bærilega, en Danmörk og Ísland miklu síður. Samkeppnishæfni og hlutleysi Skattastofnunin bandaríska (The Tax Foundation) var stofnuð í krepp- unni miklu árið 1937 og hefur fengist við rannsóknir á skattheimtu í liðlega átta áratugi. Þar á meðal er hin ítarlega skatta- tölfræði Efnahags- og þróunarstofn- unarinnar (OECD), en stofnunin hef- ur fengist við að taka hana saman árlega til þess að meta skattalega samkeppnishæfni aðildarríkjanna. Þar er bæði horft til eiginlegrar sam- keppnishæfni og hlutleysis skatta. Samkeppnishæfi í skattheimtu má mæla með ýmsum hætti og þá er ein- faldast að horfa til skatthlutfalls. Það getur hins vegar ekki síður legið í flækjustiginu, þeim tíma og fjármun-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.