Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 23

Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Glæsilegar jólagjafir Bankastræti 12, 101 Reykjavík – Sími 551 4007 www.skartgripirogur.is Glæsilegt úrval af úra- og skartgripaskrínum 15.900 Demantar 58.900 Demantar 65.900 82.900 69.250 54.900 41.900 39.900 31.000 22.900 39.900 8.900 5.900 19.900 Frá 4.990 1 18 kt demantar 258.000 18 kt demantar 185.000 18 kt demantar 165.000 Frá 14.900 21.500 10.500 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrir fáeinum dögum voru vinnupallar við framhlið Landssímahússins teknir niður og við blasti nýtt útlit hinnar sögufrægu byggingar við Austurvöll. Landssímahúsið er eitt af mörgum húsum sem Guðjón Samúelsson húsa- meistari ríkisins teiknaði og prýða miðborg Reykjavíkur. Í Landssímahúsinu og sambyggðum húsum verður í framtíðinni rekið eitt af glæsihótelum borgarinnar, Curio by Hilton. Að framkvæmd- unum stendur félagið Lindarvatn ehf. Til stóð að opna hótelið vorið 2019 en opnunin hefur tafist af ýmsum ástæðum. Framkvæmdum var fram haldið þrátt fyrir faraldur kórónuveir- unnar og stórfækkun ferðamanna af hennar völdum. Nú er stefnt að því að ljúka verkinu sumarið 2021, upplýsir Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Lindarvatns. „Vonandi verður lífið þá komið í eðlilegt horf og ferða- þjónustan komin í gang aftur. Maður leyfir sér að vera bjartsýnn, en reynslan hefur þó sýnt að það er ekkert fast í hendi,“ segir Jóhannes. Í húsakönnun Borgarminjasafns frá 2005 kemur fram að fyrsta hús á lóðinni var reist ár- ið 1835 en suðurhluti hennar var óbyggður fram til ársins 1848. Hús þetta var selt rík- issjóði 1929 og rifið og Landssímahúsið reist á lóðinni árið 1931. Í húsið fluttu Landssíminn, Bæjarsími Reykjavíkur, Póstmálaskrifstofan, Ríkisútvarpið og Veðurstofan. Húsið var álitið vera afar hernaðarlega mikilvægt þegar Bret- ar hernámu Ísland árið 1940 og var það eitt fyrsta húsið sem Bretar hertóku. Um húsið sjálft segir að það sé byggt í létt- um anda frönsku endurreisnarlistarinnar en myndi þó flokkast til húsa í nýklassískum stíl. Einkenni hans eru ýmsar klassískar útfærslur eins og bjórar yfir gluggum og hálfsúlur á veggjum og oft eru jarðhæðir eða sökklar húsanna strikuð til að líkja eftir steinhleðslum. Þök húsanna eru yfirleitt risþök eða valmaþök. Þegar ákveðið var að hefja hótelstarfsemi í Landssímahúsinu fékk Lindarvatn leyfi til að byggja eina hæð ofan á það og voru 10 kvistir settir á þá hæð. Segja má að Landssímahúsið kallist á við Hótel Borg hinum megin við Aust- urvöll, þar sem kvistir eru á efstu hæðinni. Guðjón Samúelsson teiknaði einnig Hótel Borg. „Nýtt“ Landssímahús kemur í ljós  Hækkað um eina hæð og settir á hana 10 kvistir  Vonast til að geta opnað nýtt hótel næsta sumar Morgunblaðið/Eggert Fyrir Landssímahúsið í upprunalegri mynd. Tekið í notkun 1931 og hýsti mikilvægar stofnanir. Morgunblaðið/sisi Eftir Vinnupallar teknir niður. Í húsinu verður í framtíðinni eitt af glæsihótelum borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.