Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 24

Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum ráðast í uppbyggingu hátækni- brennslu til þess að farga sorpi en sökum ástandsins í samfélaginu hafi verið fallið frá áformum um slíka uppbyggingu í bili og þess í stað muni þurfa að sigla með sorp úr landi frá árinu 2022 þar sem það verður brennt. Helgi Lárusson, framkvæmda- stjóri Endurvinnslunnar hf., er harð- orður í garð Sorpu vegna verðskrár- breytinganna og segir hann þær koma sérlega illa við fyrirtækið og fyrirætlanir um umhverfisvæn skref í átt til endurvinnslu glerumbúða. „Við tökum við u.þ.b. 6.000 tonn- um af gleri vegna drykkjarumbúða á höfuðborgarsvæðinu sem bera skila- gjald. Verðskrárhækkun Sorpu upp á 266% mun hækka kostnað okkar af því að afsetja þessar umbúðir úr 11 milljónum í u.þ.b. 40 milljónir á ári. Þetta gler hefur Sorpa nýtt í vega- gerð og miklu af þessu efni hefur verið haldið eftir í von um að það gæti nýst sem uppfyllingarefni í tengslum við Sundabraut. Það felur í sér endurnýtingu í stað þess að kaupa möl eða annað fyllingarefni sem kostar tugi milljóna. Að auki hefur Sorpa bent á að þetta spari þeim kostnað þar sem gler lendi þá ekki ekki í öðrum straumum eins og moltugerð. Við höfum því ekki fengið nein haldbær rök frá Sorpu önnur en að þetta sé hagkvæmt og spari þeim útgjöld og við skiljum því engan veg- inn af hverju þetta gjald hækkar svona gríðarlega.“ Helgi segir að kvaðir sem Ísland hefur undirgengist valdi því að okk- ur beri í raun að endurvinna gler en ekki endurnýta það. Af þeim sökum sé til skoðunar hjá hinu opinbera að hækka gjaldtöku á framleiðendur um 2-3 krónur á hverja einingu gler- drykkjarumbúða og að það fjármagn sé hugsað til að nýta til að hefja end- urvinnslu á gleri hér á landi. „Verði ekki horfið frá þessari gjaldskrárhækkun færi um helming- ur af þessu fjármagni beint til þess að greiða Sorpu. Þá er hætt við að lít- ið verði úr endurvinnslunni sem okk- ur ber skylda til að ráðast í. Sorpa mun því með þessari hækkun taka fjármuni sem hugsaðir voru til end- urvinnslu á gleri án nokkurs rök- stuðnings,“ segir Helgi Lárusson. Minni urðun hefur áhrif Spurður sérstaklega út í hækkun á móttökugjaldi glers, segir Helgi Þór að það skýrist m.a. af því að dregið verður úr urðun á næstu ár- um. „Við undirbúum lokun urðunar- staðarins í Álfsnesi og drögum því skarpt úr urðun og okkur verður því mun þrengri stakkur skorinn með ráðstöfun glers og steinefna á næstu misserum og kostnaður við hana vex. En við gerum hins vegar ráð fyrir því að verðskráin verði dýnamískari en hún hefur verið. Ef það skapast tækifæri til nýrra og betri afsetningarmöguleika þá mun það endurspeglast í verðinu.“ Í samtali við Morgunblaðið bend- ir Helgi Lárusson á að glerið frá fyrirtækinu gæti hæglega nýst í uppfyllingar eins og vegagerð eða jafnvel nýjum Landspítalabygging- um. Það gæti sparað mikla fjár- muni við framkvæmdina. Spítalinn má hins vegar ekki taka við glerinu því hann hefur ekki urðunarheim- ildir á borð við þær sem Sorpa hef- ur. Helgi Þór segist skilja gremju þeirra sem verði fyrir verðhækkun- um um komandi áramót. „Það er vont að þurfa að greiða hærra verð fyrir þjónustu en áður en verðskráin verður að endur- spegla veruleikann eins og hann er. Auk þess er 24% hækkun tekna í raun mjög hófstillt sé litið til þess að verðskráin hefði þurft og mun þurfa að hækka mun meira þegar hátæknibrennsla verður tekin í gagnið.“ Skilar 24% hærri tekjum Morgunblaðið/Árni Sæberg Urðun Mjög verður dregið úr urðun úrgangs í Álfsnesi á komandi árum. Það hefur áhrif á verðskrá Sorpu sem mun flytja sorp úr landi.  Meiri kostnaður við meðhöndlun úrgangs, segir Sorpa  Mun setja endurvinnslu á gleri í uppnám Helgi Lárusson Helgi Þór Ingason BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Sorpu er skylt lögum samkvæmt að breyta gjaldskrám sínum í samræmi við raunkostnað við meðhöndlun úr- gangs þegar sá kostnaður breytist.“ Þetta segir Helgi Þór Ingason, for- stjóri Sorpu, inntur eftir því hvað valdi því að nú stefnir í að ákveðnir flokkar í verðskrá fyrirtækisins hækki um nærri 300%. Í Morgun- blaðinu í gær gagnrýndi fulltrúi Samtaka iðnaðarins hækkanirnar harkalega og sagði þær m.a. myndu leiða til verðhækkana á húsnæðis- markaði, ekki síst á þéttingarreitum þar sem rýma þyrfti fyrir nýju hús- næði á kostnað gamals. Nákvæmari útreikningar „Nú þegar GAJA [ný gas- og jarð- gerðarstöð í Álfsnesi] er komin til breytast vinnsluferlar fyrirtækisins til muna og í nákvæmum útreikning- um hefur einfaldlega komið í ljós að hækka þarf ákveðna liði verðskrár- innar. Aðrir lækka þar sem ákveðinn úrgangur sem Sorpa hafði mikinn kostnað af nýtist nú með jákvæðum hætti í nýju vinnslunni,“ segir Helgi Þór. Meðal þess sem yfirstandandi breytingar hjá Sorpu hafa í för með sér er að mjög er dregið úr urðun úr- gangs í Álfsnesi og segir Helgi Þór að samfélagið þurfi fyrr en síðar að Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sala er hafin á 24 íbúðum í endur- gerðu húsi á Grensásvegi 12 í Reykjavík. Íbúðirnar kosta frá 35 milljónum og upp í 44,4 milljónir króna og eru 47,7 til 78,1 fermetri. Athygli vekur að fasteignasalar taka sérstaklega fram að flestar íbúðirnar falli undir skilyrði Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar um hlutdeildarlán en þau varða stærð, fjölda herbergja og hámarksverð. Fyrstu kaupendur og þeir sem hafa ekki átt fasteign síðastliðin fimm ár geta sótt um lánin. Þá mega afborganir af fasteignaláni ekki fara yfir 40% af ráðstöfunartekjum. Lántaki endurgreiðir hlutdeildar- lánið við sölu eða lok lánstíma. Hann greiðir ekki vexti af láninu. Garðar B. Sigurjónsson, sölustjóri og fasteignasali hjá Trausta fast- eignasölu, segir íbúðirnar á Grens- ásvegi hafa vakið mikla athygli. Stór hluti uppfyllir skilyrðin „Þetta er heitasta varan á mark- aðnum í dag. Það gerir íbúðirnar sérstakar að þær falla undir hlut- deildarlánin. Meirihluti íbúða á höf- uðborgarsvæðinu sem uppfylla skil- yrðin er einmitt í þessu húsi,“ segir Garðar sem væntir þess að nær allar íbúðirnar 24 fái samþykki HMS en 14 íbúðanna hafa verið samþykktar. „Hlutdeildarlánin eiga eftir að breyta markaðnum mikið,“ segir Garðar og rifjar upp að margir hafi átt erfitt með að safna eigin fé. Hlutdeildarlánum er ætlað að styðja tekju- og eignaminni ein- staklinga til að fjármagna fasteigna- kaup. Þau fela að jafnaði í sér að kaupandi leggur fram 5% eigin fé gegn 20% hlutdeildarláni og 75% láni frá lánastofnun. Þessi hlutföll eru þó ekki föst og geta lágtekju- hópar fengið allt að 30% hlutdeild- arlán, að því er fram kemur á kynn- ingarvefnum hlutdeildarlan.is. Nægir að hafa 1,75 milljónir Af þessu leiðir að til að kaupa íbúð- irnar á Grensásvegi 12 með 20% hlutdeildarláni þarf kaupandinn að leggja fram 1.750 þúsund fyrir 35 milljóna króna íbúð og 2,22 milljónir fyrir íbúð sem kostar 44,4 milljónir. Garðar segir að fyrir vikið muni kaupendur ekki mikið um að kaupa heldur dýrari íbúðirnar í húsinu. Henta fyrir hlutdeildarlánin  Fjórtán íbúðir á Grensásvegi 12 uppfylla skilyrðin  Áhuginn sagður mikill  Eitt fyrsta húsið sem markaðssett er fyrir lánin en þau eru styrkur frá ríkinu Ljósmyndir/Fasteignaljósmyndun.is Grensásvegur 12 Húsið var endurgert og byggð ný inndregin efsta hæð. Mikið framboð er á þjónustu í hverfinu og almenningssamgöngur góðar. Sýningaríbúð Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Samkvæmt söluskrá kosta íbúðirnar 24 alls 933,8 millj. Fjallað var um viðskipti með húsið í Morgunblaðinu 21.10. 2017. Þar kom fram að félagið Hraunbrekka seldi Leiguafli aðra og þriðju hæð hússins í maí 2015 á 432,5 milljónir og skyldi byggð hæð ofan á það. En annar aðaleigandi Leiguafls er Kristrún S. Þorsteinsdóttir sem er í sambúð með Sigurjóni Þ. Árnasyni, fv. forstjóra Lands- bankans. Borgarráð samþykkti 7.9. 2017 að kaupa íbúðirnar 24 á 785 millj. en hætti við kaupin. Ásett verð 944 milljónir ÍBÚÐIRNAR 24 Hlutfall hlutdeildarlána tekur mið af tekjum en umsækjendur þurfa að vera undir ákveðnum tekjumörkum. Til dæmis getur einstaklingur með 630 þúsund krónur á mánuði fengið að hámarki 20% hlutdeildarlán og sömuleiðis hjón eða sambúðarfólk með 880 þúsund á mánuði. Ein- staklingur með 418 þúsund á mánuði getur hins vegar fengið allt að 30% hlutdeildarlán og sömuleiðis hjón eða sambúðarfólk með 585 þúsund á mánuði. Þá hefur fjöldi barna á heimili áhrif á tekjumörkin. Beðið hefur verið eftir því að lánin verði veitt en þau voru kynnt í tengslum við undirritun lífs- kjarasamninga í apríl í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.