Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Sól skein í heiði, einn af þessum fal- legu sumardögum, þegar hugurinn flögrar um í gleði yfir því að vera til, njóta sumars og sólar, hitta vini og eiga góðar stundir með þeim sem manni þykir vænt um. Á leiðinni yfir Hellisheiði er síminn tekinn upp, slegið á þráðinn til Gulla og Steinu. Erum á leiðinni, verðum hjá ykkur á eftir. Í minningunni renna allir þessir góðu dagar saman í einn, einn samfelldan gleðidag. Þannig hefur vinátta okkar verið, Steina og Gulli, Elsa og Maggi, órjúfanlegt vinasam- band í áratugi sem aldrei hefur borið skugga á. Hreiðrið þeirra í Þrastarskógi ber þeim Gulla og Steinu fagurt vitni og þangað var gott að koma. Einstakur sælu- reitur sem þau byggðu upp með mikilli elju og natni. Steina og Gulli voru einstaklega samhent hjón og nutu þess að hafa ætt- ingja og vini nærri sér, enda sér- lega gestrisin. Steina var mikil reglumanneskja og það ein- kenndi allt hennar líf. Hún var trygglynd, umhyggjusöm, glað- lynd og glæsileg í fasi. Hvar sem Steina lagði hönd að verki var virðing fyrir hverju verki í fyr- irrúmi. Steina flíkaði ekki tilfinn- ingum sínum, en það var henni mikið gleðiefni að sjá fólkinu sínu farnast vel í lífi og starfi. Ég gæti skrifað heila bók um sam- verustundir okkar, ferðalög okk- ar saman, innanlands sem utan. Ferðir til Frakklands, Þýska- lands, Bandaríkjanna, Danmerk- ur, Tékklands, Aruba og sigling um Karabíahafið svo eitthvað sé hér nefnt. Ekki svo ósjaldan heyrðist „skál fyrir okkar ást- kæru eiginkonum“ og álíka fras- ar sem fær okkur til að brosa í minningu einstakrar vináttu. Í löngu veikindaferli Steinu var til þess tekið hversu vel Gulli Steinunn Bjarnadóttir ✝ SteinunnBjarnadóttir fæddist 27. ágúst 1944. Hún lést 21. nóvember 2020. Útförin fór fram 4. desember 2020. hugsaði um Steinu sína, vakinn og sof- inn yfir velferð hennar. Góður vin- ur er nú horfinn frá okkur, en minning um einstaka vináttu í áratugi mun lifa með okkur. Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar. Jesús gefðu mér eilíft ljós sem aldrei slökknar. (Höfundur ók.) Elsku Gulli og fjölskylda, megi góður Guð styrkja ykkur á sorgarstundu. Blessuð sé minning Steinunn- ar Bjarnadóttur. Magnús og Elísabet. „Kvenna verður kvöldið víst, kátt á Mávahrauni“. Þannig hljómaði einn af fyrripörtum árs- ins 2004 sem vinkona mín Stein- unn Bjarnadóttir sendi út með boðskorti í tilefni kvennaboðs sem hún hélt það árið. Í raun endurspeglar texti viðkomandi árs kátínuna sem boðunum fylgdi í þau 20 ár sem þau voru haldin. Þema þeirra var aldrei það sama. Hugmyndaauðgi Steinu var með ólíkindum í þeim efnum og sýndi svo vel hversu mikla ánægju hún hafði af því að halda veislu, njóta samvista og gleðja aðra. Boðin hennar voru kennd við tímabil úr heimssögunni, sögu þjóða og siði og var klæðnaður gestgjafa og gesta tileinkaður tilefninu. Þegar boðskortin komu frá Steinu fylltist ég til- hlökkun og fór að huga að und- irbúningi. Steina og Gulli eiginmaður hennar voru einstaklega sam- hent í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur og studdu hvort annað með ráðum og dáð. Frá einlægri framkomu þeirra og gestrisni streymdi hlýtt viðmót sem fékk hvern þann sem naut návistar við þau til að líða vel og finna sig velkominn. Áhugi þeirra hjóna lá meðal annars í því að rækta og fegra heimili sitt og umhverfi bæði á Mávahrauni og í dásamlega Hreiðrinu í Önd- verðarnesi þar sem þau voru bú- in að byggja sér upp ásamt krökkunum yndislegan sælureit þar sem þau nutu hverrar stund- ar. Þar komu þau svo miklu í verk að haft var eitt sinn á orði að sælureiturinn byggi yfir aukaklukkutímum, hlöðnum orku. Steina geislaði af glaðværð, var elskuleg og góð kona. Það var reisn og glæsileiki í hennar fasi. Hún lagði áherslu á velferð fjölskyldunnar, heilbrigðan lífs- stíl, trygglyndi, var góður hlust- andi og óspör á sinn tíma. Hún skilur eftir hugljúfar minningar sem ylja um ókomin ár, minningar frá ómetanlegum gleðistundum sem hún fann upp á og gerði að veruleika og minn- ingar frá einstaklega ánægjuleg- um tímum og fallegri samleið. Hennar verður sárt saknað. Elsku vinir, Gulli, Bjarni, Kristín Fjóla, Silja Rún og fjöl- skyldur, ég, Böddi og stelpurnar vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð. Við minnumst Steinunnar Bjarnadóttur með mikilli vin- semd, virðingu og þakklæti. Valgerður Sigurðardóttir. Elskulega vinkonu og vinnu- félaga kveðjum við í dag með söknuði. Með þakklæti minnumst við allra áranna sem við unnum sam- an á Hrafnistu í Hafnarfirði þar sem við kynntumst Steinunni fyrst. Við áttum saman margar glaðar stundir þar sem stutt var í hlátur og sprell og betri vinnu- félaga var ekki hægt að hugsa sér, ábyrg og ákveðin en alltaf sama ljúfa viðmótið hjá Stein- unni. Við yljum okkur við minn- ingar frá ferðalögum okkar vinnufélaganna innanlands og erlendis þar sem við vorum öll saman og nutum lífsins. Eftir að við komumst á heldri aldurinn héldum við góðu sam- bandi, hittumst reglulega og vin- skapurinn fékk dýpra vægi. Við kunnum allar þrjár að meta þetta trausta samband og vin- áttu sem aldrei bar skugga á. Það var gott að eiga þig að vini og við þökkum samfylgdina, elsku Steinunn. Elsku Gulli og fjölskylda, inni- legar samúðarkveðjur. Jenny og Jórunn. Séra Árni Sig- urðsson, fv. sóknar- prestur á Blönduósi, lést 26. október sl. og fór útför hans fram frá Bú- staðakirkju 5. nóvember. Kynni okkar hófust sumarið 1981, er ég gerðist prestur í Bólstaðar- prestakalli og þar með nágranna- prestur Árna. Fljótt tókust með okkur og fjölskyldum okkar góð kynni og vinátta. Árni átti, er hér var komið sögu, hátt í þrjátíu ára starfsferil að baki sem sóknar- prestur og því dýrmætt fyrir óreyndan prest að njóta leiðsagn- ar hans fyrstu árin. Árni var ljúf- ur maður í allri viðkynningu og með okkur tókst gott samstarf. Nokkrum sinnum tók ég fyrir hann prestsverk á Blönduósi, er hann þurfti að skreppa suður, eins og hann gjarnan orðaði það, og hafði af því bæði gagn og gam- an. Oftast er skroppið var á Blönduós var litið inn hjá Árna á Húnabrautinni og hans ágætu konu, Eyrúnu Gísladóttur hjúkr- Árni Sigurðsson ✝ Árni Sigurðs-son fæddist 13. nóvember 1927. Hann lést 26. októ- ber 2020. Árni var jarð- settur 5. nóvember 2020. unarfræðingi sem tóku okkur opnum örmum, og yfirleitt var ekki við annað komandi en að borða kvöldmat, áð- ur en heim var hald- ið. Gestrisni þeirra hjóna var einstök. Um margt var að spjalla og stundir fljótar að líða. Skoð- anir okkar á ýmsum málum fóru líka mjög saman. Árni var mikill náttúruunnandi og umhverfisverndarmaður. Hann var einn af stofnfélögum SUNN, samtaka um náttúru- vernd á Norðurlandi, og áttu þeir Helgi bróðir minn gott samstarf á þeim vettvangi. Áhugi Árna beindist mjög að skógrækt. Hann var félagi í Skógræktarfél. H.- Hún. og plantaði um árabil trjám í landi Gunnfríðarstaða í Langa- dal, þar sem nú er vaxinn upp glæsilegur skógur. Dvöl mín á Bólstað varð aðeins tvö ár, en þá fluttumst við yfir Vatnsskarðið að Mælifelli í Skagafirði. Engu að síður héldu samskipti okkar Árna áfram af ýmsum toga. Nokkra vetur stóðum við saman að ferm- ingarbarnamóti á Löngumýri, mættum þar með okkar ferming- arbörn og gistum eina nótt. Nut- um frábærrar aðstoðar Mar- grétar á Löngumýri. Þetta voru lífleg mót með fjörugum krökk- um og stundum lítið sofið, en allir héldu heim hressir og sáttir. Betri samstarfsmenn en Árna var vart hægt að hugsa sér. Einu sinni kom Árni til mín í Ábæj- armessu og prédikaði, og ég í hans kirkjur. Er mér minnisstæð heimsókn í Þingeyra- og Undir- fellskirkjur, þar sem við áttum góðan messudag. Sr. Árni var góður boðandi Orðsins. Hann var fastheldinn á gamalt og gott og það, sem hann taldi sannast og best. Hann starfaði í Hólafélaginu um árabil og lagði Hóladóm- kirkju öflugt lið, en Hólar voru honum einkar kærir fyrir margra hluta sakir. Árni sat um tíma á kirkjuþingi og var þar öflugur málsvari dreif- býlisins. Hann var hugsjónamað- ur og lét sér fátt óviðkomandi, er snerti farsæld lands og lýðs. Síð- ustu árin urðu samskiptin strjálli, en þó hittumst við stöku sinnum við ýmis tækifæri og alltaf var gott og uppörvandi að ræða málin við Árna og heyra skoðanir hans á málefnum líðandi stundar. Við leiðarlok er mér þakklæti efst í huga fyrir trausta vináttu og gott og gjöfult samstarf, sem aldrei bar skugga á. Ég sendi börnum hans og ástvinum öllum einlægar samúðarkveðjur. „Drottinn minn gef þú dánum ró, en hinum líkn er lifa.“ Ólafur Hallgrímsson. ✝ Auður Krist-insdóttir fæddist á Skúfs- stöðum í Hjaltadal 30. apríl 1926. Hún lést á Reykja- lundi 8. nóvember 2020. Hún var dóttir hjónanna Gunn- hildar Stefaníu Sigurðardóttur, f. 1898, d. 1929, og Kristins Gunnlaugssonar, f. 1897, d. 1984. Fósturforeldrar hennar frá þriggja ára aldri voru hjónin Jórunn Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1867, d. 1951, og Jón Oddsson, f. 1876, d. 1966. Auður var yngst þriggja systra, en eldri voru þær Sig- Þór Annelssyni, dætur þeirra eru Helga Bjarney, f. 19.2. 2019, og Harpa Dóra, f. 20.8. 2020. 2) Lórý, f. 11.11. 1983, í sambúð með Diego Pagliaro, synir þeirra eru Lúkas Freyr, f. 20.4. 2014, og Markús Þór, f. 15.2. 2016. 3) Guðmundur, f. 29.10. 1987, í sambúð með Önnu Helen Guðmundsdóttur Vinther, dóttir þeirra er Andrea Mjöll, f. 5.7. 2019. Auður ólst upp í Skagafirði og byrjuðu þau Guðmundur búskaparár sín þar í Varma- hlíð. Þau bjuggu nokkur ár í Betel í Vestmannaeyjum og Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, en fluttu árið 1964 til Reykja- víkur og bjuggu þar síðan. Auður var að mestu leyti heimavinnandi, en vann einn- ig við heimilishjálp og ræst- ingar. Hún gekk ung að árum í Hvítasunnusöfnuðinn og var virk þar meðan heilsan leyfði. Útför hennar fór fram frá Fossvogskapellu hinn 20. nóv- ember 2020. urlaug, f. 1921, d. 1996, og Matt- hildur, f. 1924, d. 1997. Hinn 2. desem- ber 1956 giftist Auður Guðmundi Markússyni vél- stjóra frá Dísu- koti í Þykkvabæ, en hann lést 15. nóvember 1993. Þau eignuðust saman einn son, Benjamín, f. 3. september 1957, en fyrir átti Guðmundur soninn Gunn- ar Björgvin f. 26. janúar 1941. Benjamín er kvæntur Helgu Ellen Sigurðardóttur, börn þeirra eru: 1) Auður, f. 24.8. 1980, í sambúð með Atla Auður Kristinsdóttir tengda- móðir mín hefur nú kvatt þetta jarðlíf eftir stutt veikindi, en hún lést 8. nóvember sl. Hún var 94 ára og má segja södd líf- daga og tilbúin að mæta Drottni sínum, sem hún trúði einlæglega á. Hún var ung að árum þegar hún ákvað að gera Drottin Jesú að leiðtoga lífs síns og mótaði það líf hennar og lífsviðhorf alla tíð. Hún gekk í Hvítasunnusöfnuðinn og tók þátt í starfi hans t.d. með söng og kennslu í sunnudagaskóla og trúboðsferðum um landið. Eftir að hún giftist Guðmundi Mark- ússyni tóku þau saman þátt í uppbyggingu safnaðarstarfsins bæði í Vestmannaeyjum og Fljótshlíð og loks í Reykjavík. Hún var óþreytandi að vitna um trú sína og vildi að allir fengju að heyra hversu dýr- mætt það er að eiga lifandi trú á Jesú Krist, hversu gott það er að fela allt í hans hendur og treysta honum, því hann mun vel fyrir sjá. Hún átti iðulega kristileg smárit og bænakver í fórum sínum til að rétta hverj- um sem vildi þiggja. Hún var mikil bænakona og þeir ófáir sem leituðu til hennar með bænarefni sín. Auður sýndi trú sína í verki með því að hjálpa þeim sem minna máttu sín, annaðhvort með fataframlögum eða fjár- styrk. Í mörg ár sendi hún not- uð og ný föt, sem henni voru gefin, til fátækra í Póllandi og Úkraínu og líka hér heima, t.d. til Samhjálpar. Jól í skókassa og ABC-barnahjálp nutu líka velvilja hennar. Hún mátti ekk- ert aumt sjá og þegar heilsan fór að gefa sig og krafta þraut gat hún a.m.k. gefið fuglum brauðmola fyrir utan húsið sitt. Þegar hún þurfti að leggjast inn á spítala vegna veikinda í september sl. kvartaði hún ekki yfir neinu, heldur talaði aðeins um hvað allir sem sinntu henni væru góðir við sig. Hún sá ekki sólina fyrir barnabörnunum sínum þremur, sem hún fylgdist vel með í einu og öllu og gladdist yfir vel- gengni þeirra í lífinu. Þau höfðu tækifæri til að kveðja hana á dánarbeði, þá spurði hún hvað hún gæti gert fyrir þau og bað þeim síðan Guðs- blessunar. Ég veit að hún hefur fengið góðar móttökur á himnum. „Gott þú trúi og dyggi þjónn, gakk inn til fagnaðar herra þíns.“ (Matt. 25:21) Ég kveð elskulega tengdamóður mína með mikinn söknuð í hjarta. Guð blessi minningu hennar. Helga Ellen. Ég kynntist hjónunum Auði og Guðmundi Markússyni þeg- ar ég, þá þrettán ára, fór að sækja samkomur í Hvítasunnu- kirkjunni Fíladelfíu. Guðmund- ur hafði oft það hlutverk að lesa upp úr Ritningunni og leiða í bæn. Það er mér ein- staklega minnisstætt hvernig hann ljómaði þegar hann talaði um frelsara sinn. Hann geislaði af þvílíkum kærleika, gleði og þakklæti að andlit hans hefur verið grópað í huga mínum síð- an. Það fór minna fyrir Auði en hún var alltaf jafn trúföst, sat á sínum stað, dökkhærð og virðu- leg. Tuttugu og sex ára gömul fór ég ein í árslanga hnattferð. Það voru hvorki farsímar né net á þeim tíma og ég átti enga sjóði til að tryggja að ég hefði alltaf húsaskjól í þessari ferð en þrátt fyrir að hafa oft kom- ist í hann krappan komst ég heil á húfi heim eftir þetta æv- intýralega ár. Þegar ég hringdi heim sagði mamma mér stund- um að Auður bæði alltaf fyrir mér sem ég var þakklát fyrir enda veitti ekki af. Ég gerði mér þó ekki grein fyrir því fyrr en eftir á að hún hefði trúlega oftar en einu sinni bjargað lífi mínu með bænum sínum. Það var alveg augljóst að Guð greip inn í kringumstæður þegar ég var á litlum trébáti á leið frá El Salvador til Níkaragva. Báturinn var drekkhlaðinn af fólki og farangri og öldurnar gengu látlaust yfir hann. Mót- orinn hafði drepið á sér og fór ekki í gang. Við vorum langt frá landi og vatnið hækkaði það hratt í bátnum að það var að- eins spurning um mínútur hve- nær hann sykki. Á þessari stundu var Auður vakin upp og hrópaði til Guðs að bjarga mér. Ekkert vissi hún um ástandið og furðaði sig á að vera að hrópa svona. En það sem gerð- ist var að á sömu stundu varð sjórinn sléttur og mótorinn fór í gang. Í tvö önnur skipti var ég í bráðum lífsháska en var bjargað á ögurstundu, og í ótal skipti var ég í ómögulegum kringumstæðum sem leystust á undraverðan hátt. Já, það var augljóst að ég var borin á bæn- arörmum. Eða eins og Auður lýsti því að Guð gaf henni það sérstaka hlutverk að bera mig allt árið sem ég var í hnattferð- inni. Ég þekkti hana aldrei náið en það breytti því ekki að hún tók hlutverk sitt alvarlega. Hún sagði mér síðar að hún hefði alltaf fundið fyrir því að hún bæri mig þetta ár. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Ég er bæði þakklát Auði og Guði sem hugsaði það vel um mig að hann fól mig þessari óendan- legu dýrmætu bænakonu. Án hennar væri ég að öllum lík- indum ekki á lífi. Ég heimsótti Auði fyrir um tveimur mánuðum. Ég hafði ekki séð hana lengi en ég var knúin til að fara og hitta hana og þakka henni almennilega fyrir allt sem hún hafði gert fyrir mig. Ég hringdi bjöllunni og til dyra kom hrum kona með grátt hár. Ég kannaðist ekkert við hana, en hún þekkti mig og þegar hún heilsaði þá þekkti ég röddina. Hún var orðin 94 ára og ellin hafði tekið völdin. En þegar hún fór að biðja var andinn ungur og andlitið ljómaði af elsku, gleði og þakk- læti til Guðs, alveg eins og Guðmundur hafði ljómað. Ég var svo klökk að ég mátti ekki mæla þegar ég kvaddi. Þvílík Guðs kona og þvílík gersemi! Og hversu fátækari er heimurinn án hennar. Guðrún Margrét Pálsdóttir. Auður Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.