Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 41

Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 kom heim. Ég man að hann gaf mér peysur og blússur sem ég notaði mikið og í raun er ótrúlegt hvað hann var flinkur að velja fatnað sem féll okkur í geð. Páll var glaðlyndur, bóngóður, mikill húmoristi og hagmæltur vel. Hann átti farsælan feril sem alþingismaður og félagsmálaráð- herra en fyrst og fremst var Páll mikill fjölskyldumaður. Hann var í nánu sambandi við börnin sín þrjú, Kristínu, Ólaf Pétur og Pál Gunnar, og fylgdist vel með öllum sínum afkomendum, sem hann var afar stoltur af. Þótt þau Sig- rún og Páll kæmu úr ólíku um- hverfi, hún borgardama og hann sveitastrákur, voru þau ótrúlega samhent hjón, sem voru samstíga í gegnum lífið. Innst inni var Páll mikill rómantíker, hann færði eig- inkonu sinni fallegar gjafir, gerði við fötin hennar ef svo bar undir og samdi til hennar falleg ástar- ljóð. Páll var mér alla tíð afar góður og bar hag minn fyrir brjósti. Þegar ég lít til baka sé ég hvað hann hafði mikil áhrif á líf mitt, en það var fyrir hans orð og hvatn- ingu að ég gerði blaðamennsku að ævistarfinu. Hann sýndi mér og minni fjölskyldu ávallt vináttu og áhuga og vildi fá að fylgjast með okkur, hvar á hnettinum sem við bjuggum. Að leiðarlokum þakka ég Páli fyrir samfylgdina. Ég mun ætíð minnast hans með hlýju og þakk- læti. Sigríður Inga Sigurð- ardóttir. Með söknuði kveð ég Pál Pét- ursson, tengdaafa minn, og vil minnast hans með fáeinum orð- um. Ég kynntist Páli fyrir rúm- lega sex árum eftir að hafa tekið saman við dótturson hans, Ólaf Frey. Var þá að baki glæstur og langur ferill hans sem bæði bóndi og stjórnmálamaður, og var áhrifa strits liðinna ára farið að gæta á heilsu hans. Þó var ljóst að þarna færi framtakssamur og dugmikill maður, sem þótti um- fram allt vænt um fjölskyldu sína. Góðmennska hans sýndi sig með- al annars í þeim áhuga og gjaf- mildi sem hann sýndi öllum af- komendum sínum, og skipti þá engu hvort um væri að ræða blóð- skylda, stjúpbörn, tengdabörn eða börn þeirra. Mér fannst ég alltaf mæta hlýju á heimili þeirra hjóna, Páls og Sigrúnar, í Efsta- leiti, og ríkti þar góður andi. Yngstu börnin í fjölskyldunni veittu Páli sérstaka gleði og hafði dóttir okkar, Sigríður Kristín, un- un af því að heimsækja löngu og langafa. Páll var skemmtilegur í samtali, fróður um hin margvís- legustu málefni og hnyttinn. Hann fylgdist gaumgæfilega með málefnum líðandi stundar og var iðulega stillt á ræðustól Alþingis í sjónvarpinu. Það var gefandi að fylgjast með samspili þeirra hjóna, en þar ríkti gagnkvæm virðing og væntumþykja, og nutu þau greinilega félagsskapar hvort annars. Páll var svo lánsamur að geta eytt síðustu misserunum á heimilinu, og var þar fyrst og fremst eljusemi Sigrúnar að þakka. Við Óli Freyr eyddum mörgum stundum með þeim hjón- um síðustu árin, og er ég ævinlega þakklát fyrir að hafa kynnst Páli og fengið að njóta trausts hans. Góðar minningar um hann munu fylgja mér ævilangt. Sigrúnu, börnum, barnabörnum og systk- inum Páls votta ég innilega samúð mína. Hildur Margrét Ægisdóttir. Það var um páska árið 1956 að ég sá Pál fyrst. Þá var Skíðamót Íslands haldið í Hlíðarfjalli á Ak- ureyri og var ég að keppa í fyrsta skiptið á slíku móti og Páll, sem þá var að ljúka námi í MA, kom upp í fjall til þess að kynna sig fyr- ir mér, en hann var þá kærasti Helgu systur minnar, sem einnig var í MA. Síðan höfum við verið góðir vinir. Páll kom fyrstu árin í jólafrí til okkar á Siglufirði og vakti athygli hversu margar bæk- ur hann gat lesið og verið með efnið á hreinu þrátt fyrir hraðan lestur. Páll byggði Höllustaði II handa þeim Helgu strax eftir stúdents- próf. Þar kom ég oft við á leið til Siglufjarðar að heimsækja for- eldra mína um jól, páska, á hvíta- sunnu þegar Skarðsmótið á skíð- um var haldið eða á sumrin. Konan mín, Sigríður Ragna, var þá ávallt með mér í för og kynntist hún þá Höllustaðafjölskyldunni vel. Á seinni árum, eftir að systir mín dó og Páll giftist Sigrúnu, höfum við verið í góðu sambandi við þau og börnin Kristínu, Ólaf Pétur og Pál Gunnar. Páll var yf- irleitt léttur í lund og mikill húm- oristi. Hann var einnig mjög rausnarlegur og t.d. bauð hann sínu fólki ásamt okkur Siggu Rögnu í rútuferð til Siglufjarðar þegar Héðinsfjarðargöng voru opnuð og vorum við með þeim fyrstu sem keyrðum göngin. Á leiðinni til baka var stoppað í Lón- koti þar sem Páll bauð til veislu. Við Sigga Ragna vottum Sig- rúnu, börnum Páls og öðrum ætt- ingjum okkar innilegustu samúð. Hákon Ólafsson. Ég var átta ára gamall er ég var sendur í sveit í Blöndudalinn; það var Helga, húsfreyja á Höllu- stöðum, sem fór þess á leit við for- eldra mína – hvort ekki væri strákur sem gæti komið og verið félagi Páls yngri. Við lékum okkur vissulega mikið en mér finnst eins og við höfum fljótlega orðið að gagni – eins og það var kallað á Höllustöðum. Það var ekki auð- velt að kveðja foreldra og vera þannig skilinn eftir hjá vandalaus- um en heldur ekki verra en svo, að þarna var ég næstu átta sumrin og einhver páskafrí að auki. Páll á Höllustöðum var góður húsbóndi og í minningunni finnst mér hann hafa gert sitt til þess að láta litlum kaupstaðarstrák líða vel. Og mikið var ég stoltur þegar Páll afhenti mér laun eftir fyrsta sumarið, botnótta gimbur sem hlaut nafnið Grábotna. Á Höllustöðum, eins og eflaust á mörgum öðrum bæjum, báru öll tún nafn og ég man það eins og gerst hefði í gær að Páll afhenti mér gimbrina þar sem hét „út á móti Hólum“. Að auki hlaut ég raunar ávísun upp á 5.000 krónur sem pabbi gerði síðan upp við mig án þess að innleysa ávísunina. Þessa fyrstu launaávísun átti ég lengi. Páll var mikill hestamaður og þau Helga voru einstaklega frum- leg við nafngiftir, bæði á ræktun- arhrossum og reiðhestum. Auk fjölmarga fuglanafna (Páll átti Fálka og Helga Smyril – sem báð- ir voru verðlaunaðir gæðingar) báru hrossin jafn falleg nöfn og Gleði, Ánægja, Vinur og Von – og þannig mætti lengi telja. Páll var óhemju duglegur og góður verkmaður og úthaldsmik- ill. Auk þess að reka stórt og myndarlegt bú sinnti hann þing- mennsku frá 1974 og það var ósjaldan að hann ók af stað suður til Reykjavíkur fyrir allar aldir til þess að fara á fund og síðan aftur heim um kvöldið eða næstu nótt – og vera svo kominn í heyskap, girðingarvinnu eða fjárstúss næsta morgun. Þeir voru ófáir kílómetrarnir sem þeir rauði Broncoinn óku á öllum tímum árs. Ég hitti Pál síðast fyrir 3-4 ár- um. Ég kom þá við í Blöndudaln- um og var svo heppinn að fá að líta til Sigrúnar og hans í síðdegiskaffi í huggulega bústaðinn þeirra sunnan við Höllustaði II. Páll var orðinn fótalúinn og ekki lengur eins léttfættur og sex vetra grað- foli, sem eru eftirminnileg um- mæli hans sjálfs um eigin heilsu eftir erfiða hjartaaðgerð fyrir um 20 árum. Hugurinn var hins vegar skarpur eins og alltaf og gaman- semin á sínum stað og við áttum einstaklega skemmtilegt spjall, m.a. um fornar gönguleiðir milli Húnavatnssýslu og Skagafjarðar. Ég kveð fóstra minn úr fjarska með þakklæti og virðingu. Sig- rúnu, Kristínu, Óla Pétri og Palla Gunnari, og fólkinu þeirra öllu, votta ég innilega samúð mína. Eggert Tryggvason, Hróarskeldu. Fyrstu kynni af Páli Péturs- syni voru fyrir um fjörutíu árum er hann var í heimsókn hjá for- eldrum mínum í Flatatungu. Þeir voru samherjar í pólitík hann og pabbi, innan Framsóknarflokks- ins og í deilum um virkjun Blöndu. Þeir og margir aðrir vildu að reist yrði virkjun sem ylli minni landspjöllum en sú leið sem farin var. Pálmi heitinn í Hjarð- arhaga orti um þá. Gunnar Tungu flatri frá fylgir réttu máli. Heldur fast í höndina á Höllustaða-Páli. Oft var harður slagur í próf- kjörum og kosningum og barist um hvert einasta atkvæði þar til kjörstöðum var lokað. Þar var Páll í essinu sínu, kappsamur og úr- ræðagóður. Hann sagði stundum að pólitíkin væri list þess mögu- lega og þá list kunni hann. Því kynntist ég bæði sem starfsmaður Framsóknarflokksins á Norður- landi vestra og þingfréttaritari á Tímanum og síðar aðstoðarmaður Páls í félagsmálaráðuneytinu. Í ráðuneytinu tók Páll til hend- inni. Skipaði nefndir um endur- skoðun og stefnumótun í flestum málaflokkum er undir það heyrðu. Hann stóð fyrir tímamótalög- gjöf í barnaverndarmálum með Barnaverndarstofu og Barnahúsi, sem varð fyrirmynd erlendis. Lög um tekjutengingu fæðingarorlofs og jafnan rétt karla og kvenna til töku þess mörkuðu tímamót í jafn- réttismálum. Sveitarstjórna- og félagsþjónustulög og mörg önnur voru endurskoðuð en eitt erfiðasta málið sem Páll tókst á við og sigldi í höfn var breyting á löngu úreltri húsnæðislöggjöf. Páll var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, var vel hagmælt- ur og átti létt með að yrkja. Hann var þeirrar skoðunar að vín mættu menn drekka á meðan þeir gerðu það sér til ánægju, sem er gott mottó. Jón Kristjánsson flokks- bróðir hans orti. Ætíð hefur glaðst með glöðum garpurinn er vís til alls. Hugurinn er á Höllustöðum, en holdið það er sunnan fjalls. Vísan lýsir Páli vel. Hann var mikill fjölskyldumaður og hugur- inn leitaði heim enda alla tíð bóndi á Höllustöðum þótt tími til bú- starfa væri oft naumur. Hags- munir kjósenda og íbúa í dreifbýli voru honum ofarlega í huga. Að ferðalokum vil ég þakka Páli fyrir samfylgdina og allar góðar stund- ir sem við áttum saman. Sigrúnu, börnunum og fjölskyldunni allri votta ég samúð. Guð blessi minn- ingu Páls Péturssonar. Árni Gunnarsson. „Það fyrirkomulag milli hinna tveggja kynja, karla og kvenna, sem geri annað hinu háð í laganna nafni er óhafandi og það sem nú stendur hamlar framförum mann- kynsins eigi alllítið. Í stað þess fyrirkomulags verður að koma annað sem miðar að því að koma á fullkomnum jöfnuði milli kynjanna þannig að hvorugt hafi nokkur forréttindi eða völd og hvorugt verði með lögum útilokað frá nokkru því sem hitt hefur.“ Margir íslenskir stjórnmála- menn hafa tekið undir þessa skoð- un sem John Stuart Mill ritaði í bókina Kúgun kvenna árið 1869. Líklega er þó Páll Pétursson sá sem stigið hefur stærsta einstaka skrefið í átt að því að jafna stöðu kynjanna. Sem félagsmálaráð- herra árið 2000 lagði hann fram sögulegt og framsýnt frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof, sem fól í sér grundvallarbreytingu á réttindastöðu kynjanna. Í meginatriðum voru framfara- skrefin af þrennum toga. Í fyrsta lagi var jafn réttur feðra og mæðra tryggður í fyrsta sinn. Í öðru lagi var fæðingarorlofið lengt verulega og mið tekið af tekjum fólks. Í þriðja lagi var komið á laggirnar einu orlofskerfi fyrir alla launþega, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði sem áður höfðu notið ólíkra réttinda. Áhrifin af breytingunni voru gífurleg. Raunstaða karla og kvenna á vinnumarkaði breyttist og börn fengu fordæmalaus tæki- færi til að kynnast báðum foreldr- um jafnt á fyrsta æviskeiðinu. Feður fengu að sama skapi tæki- færi sem þeim hafði ekki boðist áður, með sjálfstæðum rétti til or- lofs. Samfélagslegur ábati og menningarlegar afleiðingar laga- setningarinnar voru ómældar. Raunar er orlofskerfið ein af ástæðum þess að Ísland stendur flestum þjóðum framar í alþjóð- legum jafnréttissamanburði. Or- lofslögin kölluðust á við markvissa uppbyggingu leikskólastigsins og saman hefur þetta tvennt skipt sköpum í jafnréttisbaráttunni – stuðlað að atvinnuþátttöku kvenna á sama tíma og fæðingar- tíðni hefur haldist nokkuð stöðug. Á sínum farsæla stjórnmála- ferli kom femínistinn Páll víða við. Hann lagði lóð á vogarskálarnar í mörgum framfaramálum lands- byggðarinnar, á sama tíma og hann var öflugur þátttakandi í norrænu samstarfi, tvívegis sem forseti Norðurlandaráðs og for- maður Vestnorræna þingmanna- ráðsins. Páli kynntist ég persónulega mest í gegnum eiginkonu hans, Sigrúnu Magnúsdóttur fv. borgar- fulltrúa, alþingismann og ráð- herra. Þau áttu einstaklega vel saman og studdu vel við hvort annað. Síðustu árin hlúði hún vel að honum og í samtali okkar Sig- rúnar á dögunum áréttaði hún, að Páll hefði verið stoltastur af þátt- töku sinni í setningu fæðingaror- lofslaganna. Fyrir það og önnur störf í þágu fólksins í landinu þakka ég innilega. Blessuð sé minning Páls Péturssonar frá Höllustöðum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Fram- sóknarflokksins og mennta- og menningar- málaráðherra. Allt frá því að ég man fyrst eftir mér var Páll Pétursson leiðtogi framsóknarmanna á Norðurlandi vestra. Hann sinnti kjördæminu vel og heimsótti Siglufjörð mjög reglulega þar sem hann átti harð- snúna fylgismenn. Ég studdi Pál og kynntist honum fyrst í gegnum magnað félagsstarf framsóknar- fólks þar sem um 100 manns mættu árlega á kjördæmisþing. Það voru alvörusamkomur þar sem talað var umbúðalaust um þjóðfélagsmálin og svo var matur, skemmtun og ball um kvöldið. Fyrir alþingiskosningarnar 1999 leiddi Páll lista Framsóknar- flokksins en ég skipaði þá fjórða sæti framboðslistans. Páll veiktist illa í aðdraganda þeirra kosninga en dró ekki af sér í baráttunni. Að loknum kosningum hélt Páll áfram starfi sínu í félagsmála- ráðuneytinu og í desember það ár hringdi hann í mig og spurði hvort ég vildi ekki spreyta mig á því að vera aðstoðarmaður ráðherra. Það áttu ekki margir von á því þegar Páll tók sæti í ríkisstjórn að undir hans forystu yrði eitt stærsta skref í jafnréttisátt stigið en það gerðist með tilkomu laga um fæðingar- og foreldraorlof. Hann barðist fyrir þeirri löggjöf í gegnum þingið þótt töluverð and- staða væri við málið. Það var mik- ill heiður og góður skóli að vera Páli til aðstoðar. Hann var flug- greindur og framsýnn stjórnmála- maður og öll samskipti krydduð hans leiftrandi húmor. Á sam- starfsárum okkar byggðist upp vinátta og traustur strengur sem aldrei slitnaði. Síðustu árin fórum við reglulega yfir stöðuna í pólitík- inni og fylgdist hann vel með gangi mála í Kópavogi. Páll Pét- ursson var minn mesti velgjörð- armaður og verður það seint full- þakkað. Páll var lánsamur að hafa Sig- rúnu sér við hlið. Þau voru áber- andi í þjóðfélagsumræðunni enda bæði í framlínu stjórnmálanna. Það er trúlega einsdæmi í stjórn- málasögu landsins að hjón skuli bæði hafa verið formaður þing- flokks og jafnframt gegnt ráð- herraembætti. Það segir sína sögu um það traust sem samferðarfólk hefur borið til þeirra beggja. Sigrúnu og fjölskyldunni allri votta ég samúð mína. Blessuð sé minning Páls Péturssonar. Birkir Jón Jónsson. Þéttur á velli og gleiðstígur snaraðist hann inn í þingflokks- herbergið og beint að mér og spurði heldur hranalega: Hver ert SJÁ SÍÐU 42 Yndislega ástkæra eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓNA GILSDÓTTIR, Sléttuvegi 21, Reykjavík, lést á Landakoti 30. nóvember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 8. desember klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd útförina. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Landakots og öðru heilbrigðisstarfsfólki fyrir góða umönnun. Hægt er að nálgast streymi á https://youtu.be/Ns8eeQq7548. Finnur Valdimarsson Rannveig Finnsdóttir Kristján Þormar Gíslason Fjóla Finnsdóttir Sigurjón Sveinn Rannversson Áslaug Finnsdóttir Jónas Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, 2. desember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 11. desember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt frá vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is Aðstandendur vilja þakka starfsfólki Höfða fyrir einstaka umhyggju og alúð. Valgerður Ó. Bragadóttir Guðjón Heimir Sigurðsson Hólmfríður M. Bragadóttir Páll Ingvarsson Helgi Bragason Víðir Bragason Sigrún Halldórsdóttir Guðrún Bragadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, OLGA HAFBERG, lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík þriðjudaginn 1. desember. Útförin fer fram frá Garðakirkju þriðjudaginn 8. desember klukkan 13. Vegna aðstæðna verður einungis nánasta fjölskylda viðstödd, en athöfninni verður streymt á slóðinni https//www.sonik.is/olga. Aðstandendur vilja þakka starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir einstaka umhyggju og alúð. Olga Guðrún Snorradóttir Rúnar Ástvaldsson Engilbert Ó.H. Snorrason Sigrún Tómasdóttir Jón H.B. Snorrason Þóra Björnsdóttir Hlynur Hafberg Snorrason Alma Björk Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ALDA VILHJÁLMSDÓTTIR, saumakona og verkstjóri, Bárustíg 1, Sauðárkróki, lést á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki mánudaginn 30. nóvember. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 11. desember, klukkan 14, að viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá úförinni á facebook.com/saudarkrokskirkja. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Sigurlaugar Gunnarsdóttur frá Ási. Vilhjálmur Egilsson Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir Ásta Egilsdóttir Lárus Sighvatsson Bjarni Egilsson Elín Petra Guðbrandsdóttir Árni Egilsson Þórdís Sif Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.