Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 59

Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 59
MENNING 59 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Blásýra nefnist nýútkomin tíu laga breiðskífa Sálgæslunnar með tíu lög- um og textum eftir Sigurð Flosason saxófónleikara. Sálgæslan er hans sérverkefni og er þetta fyrsta platan sem Sigurður sendir frá sér með eig- in textum. Er þar komið víða við líkt og í tónlistinni þar sem heyra má djass, blús og sálartónlist. Söngvarar eru sömuleiðis úr ólíkum áttum og flestir þjóð- kunnir, þau KK, Andrea Gylfa- dóttir, Stefán Hilmarsson, Friðrik Ómar, Jógvan Hansen og Rebekka Blöndal. Hljómsveitina skipa, auk Sigurðar, Þórir Baldursson sem leikur á Hammond-orgel, Einar Scheving á trommur og Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og aðstoðar- hljóðfæraleikarar á plötunni eru Ari Bragi Kárason á trompet, Samúel J. Samúelsson á básúnu, Matthías Stefánsson á fiðlu og Bryndís Björg- vinsdóttir á selló. Hafþór „Tempó“ Karlsson sá svo um hljóðritun, hljóð- blöndun og hljómjöfnun, Sigríður Hulda Sigurðardóttir hannaði um- slagið og Dimma sá um útgáfu. Þetta er önnur breiðskífa Sálgæslunnar en níu ár eru liðin frá því sú fyrri, Dauði og djöfull, kom út. Gaman að takast á við eitthvað nýtt Textar Sigurðar eru skemmtilegir og flestir hverjir spaugilegir, um- fjöllunarefnin af ýmsu tagi og m.a. sungið um mann sem er svo blúsaður að hann íhugar að svipta sig lífi með blásýru, ástir tveggja karlmanna og kynlífsvandamál hjóna. Einnig má finna á plötunni siðblindingja, barnaníðing og andsetna konu, svo nokkrar persónur séu nefndar. „Það er gaman að takast á við eitt- hvað nýtt þegar maður er búinn að gera yfir 30 plötur með tónlist, að reyna sig við þessa hlið,“ segir Sig- urður um textagerðina. Hann hafi lítið fengist við ritlist á ferli sínum, átt nokkra texta á fyrri plötu Sál- gæslunnar en núna alla. Sigurður segist mest hafa leikið djass á ferli sínum og því sé Sálgæsl- an eins konar alter ego eða hliðar- sjálf hans og útrásarleið fyrir aðrar gerðir tónlistar. Spurður að því hvort textar eða lög komi á undan segir Sigurður allan gang á því, oft- ast verði lag og texti til samhliða. „Eiginlega man ég ekki eða veit ekki hvernig sumt af þessu varð til,“ segir hann kíminn. Að skemmta sjálfum sér Sigurður segir persónurnar í laga- textunum sumar hverjar á ein- hverjum samfélagslegum eða sið- ferðislegum mörkum. „Þetta eru einhvers konar jaðarmál, í mörgum tilfellum,“ segir hann sposkur. „Ég er líka, að einhverju leyti, að skemmta sjálfum mér með því að gera þetta, tala um eitthvað sem er bæði alvarlegt en líka pínulítið fynd- ið og skemmtilegt, einhvern veginn. Þetta segir kannski eitthvað um minn skrítna húmor.“ – Þetta eru æði skrautlegar týpur sem þú ert að lýsa þarna, þetta eru hálfgerðar skopmyndir? „Já já, þetta eru svona týpur á mörkunum, siðleysingi sem gerir alls konar ljóta hluti og landafræði- kennari sem er langt handan við mörk í öðru samhengi. Þetta er ein- hvers konar gallerí af karakterum sem gætu verið í söngleik,“ svarar Sigurður. Atvinnuskapandi styrkur Í einu lagi plötunnar, „Ég hitt’ann fyrst á Jómfrúnni“, syngja Friðrik Ómar og Jogvan Hansen um tvo karla sem verða ástfangnir og segist Sigurður ekki muna í svipinn eftir fleiri slíkum lögum íslenskum, um ást tveggja karlmanna. Lagið hafi hann samið að miklu leyti fyrir veit- ingastaðinn Jómfrúna en Sigurður hefur starfað mikið fyrir þann stað við tónleikaskipulag á sumrin. „Mig langaði að semja lag fyrir Jómfrúna og það leiddi mig á þennan stað því þar voru nú lengi vel flestir samkyn- hneigðir sem störfuðu þar,“ segir hann. Talið berst að kófinu og segist Sig- urður meðal annars hafa nýtt tímann í að semja texta og tónlist og taka upp plötuna þar sem tónleikahald hafi verið lítið sem ekkert á árinu. „Það hafa komið til styrkir sem hægt er að sækja um í þessum aðgerðum stjórnvalda sem er bara jákvætt og þetta verkefni fékk þannig styrk sem var eitt af því sem gerði útslagið um að ég fór út í þetta á þessum tíma,“ segir Sigurður. Styrkurinn hafi skapað vinnu fyrir bæði hann og aðra sem tóku þátt í gerð plötunnar sem gefin er út stafrænt og í formi geisladisks. Ljósmynd/Anna Stark Fjölhæfur „Það er gaman að takast á við eitthvað nýtt þegar maður er búinn að gera yfir 30 plötur með tónlist, að reyna sig við þessa hlið,“ segir Sigurður Flosason saxófónleikari en hann samdi texta allra laga á plötu Sálgæslunnar. Týpur á mörkunum  Sigurður Flosason er höfundur allra laga og texta á nýrri plötu Sálgæslunnar  Djass, blús og sál  Siðblindingi og andsetin kona meðal sögupersóna Bandaríska kvikmyndafyrirtækið Warner Bros. tilkynnti nú í vikunni að allar kvikmyndir þess sem frum- sýndar verða á næsta ári verði sýndar samtímis í kvikmynda- húsum og streymisveitunni HBO Max sem er í eigu Warner Media. Hefur þessi ákvörðun vakið mikla athygli í kvikmyndaheiminum og segir í frétt The New York Times að þetta sé mesta áskorun sem komið hafi fram á hina hefðbundnu viðskiptaleið Hollywood, þ.e. að sýna fyrst kvikmyndir í bíóhúsum og gera þær aðgengilegar í sjón- varpi um þremur mánuðum síðar hið fyrsta. Warner mun frumsýna 17 kvikmyndir á næsta ári og eru þar margar stórmyndir á ferð þeg- ar litið er til kostnaðar, m.a. Dune og The Matrix 4. Þykir þessi ákvörðun Warner gefa til kynna að stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki trú á því að bíóaðsókn verði með sama hætti og áður á næsta ári þótt fólk verði bólusett við Covid-19. Sandalda Úr kvikmyndinni Dune sem Warner frumsýnir á næsta ári. Allar kvikmyndir Warner í streymi Grýla og Leppa- lúði munu koma í heimsókn á Þjóð- minjasafnið á morgun, sunnu- dag, kl. 14 og mun tónlistar- konan Ragnheið- ur Gröndal flytja nokkur lög á meðan beðið er eftir þeim. Vegna fjöldatakmarkana verður viðburðinum streymt á YouTube- rás safnsins og geta því jólabörn á öllum aldri fylgst með Grýlu, Leppalúða og Ragnheiði. Grýla, Leppalúði og Ragnheiður Ragnheiður Gröndal „Gyrðir Elíasson býr yfir töluverð- um hæfileika til að lýsa kringum- stæðum í ró,“ skrifar Thomas Bredsdorff, gagnrýnandi danska dagblaðsins Politiken um Sorgar- marsinn, sem nýverið kom út í Dan- mörku í þýðingu Eriks Skyum- Nielsen. Bredsdorff gefur bókinni fjögur hjörtu af sex mögulegum. Bredsdorff lýsir prósa Gyrðis sem lágstemmdum og hvíslandi með örlitlum tilbrigðum, sem sé í mikilli andstöðu við gargið sem Jónas, aðalpersóna bókarinnar, til- einkar manneskjunni sem hann lík- ir við hávaðasama fugla á bjargi. „Hann kann til verka þegar kem- ur að því að draga upp myndir, en framvindan er ekki hans svið. Eiginkona auglýsingamannsins hringir og segir að hún sé farin að hitta annan. Það er allt og sumt sem gerist. Konan fer og eins og Jónas lýsir því sjálfur, þá er lífið stundum svona, eins og minnisbók sem hverfur og finnst aldrei aftur. Kyrrlátur Gyrðir Elíasson rithöfundur. Lágstemmdur og hvíslandi prósi Alda Music hefur gefið út safn- plötu með helstu lögum Ragnars Bjarnasonar heitins og ber hún titilinn Þannig týnist tíminn. Á plötunni eru 45 lög frá 65 ára ferli Ragnars og má af einstaka lögum nefna „Allar mínar götur“ eftir Halla Reynis sem var síðasta lagið sem Ragnar tók upp á ferl- inum en hann lést 25. febrúar síð- astliðinn. Einnig má nefna titillag plötunnar sem Ragnar söng með Lay Low, „Barn“, „Vorkvöld í Reykjavík“, „Úti í Hamborg“ og fleiri sígild dægurlög. Platan kom út á Spotify 22. september sem er fæðingardagur Ragnars og kemur nú út á tvö- földum geisladiski og tvöföldum vínyl. Myndin á framhlið plöt- unnar var tekin árið 1960 í svart- hvítu en var handlituð fyrir út- gáfu plötunnar. Minning Með tvöfaldri safnplötu er Ragga Bjarna minnst en hann lést í febrúar. Tvöföld safnplata með lögum Ragga Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Hljóðmagnarar Hljóðmagnari hentar vel þeim sem þurfa að heyra betur og er einfaldur í notkun. Þægilegt samskiptatæki. Með margmiðlunarstreymi tengist hann þráðlaust við sjónvarp og önnur tæki. Vekjaraklukka fyrir þá sem sofa fast eða heyra illa Að vakna á réttum tíma hefur aldrei verið auðveldara Vekur með ljósi, hjóði og/eða tirtingi svo að maður þarf ekki að sofa yfir sig. Verð frá kr. 19.800 Verð frá kr. 58.800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.