Morgunblaðið - 05.12.2020, Page 64
Í þrjátíu ár hefur myndlistarmaðurinn Tolli Morthens
boðið gestum og gangandi í opið hús í vinnustofu sinni
í tengslum við fullveldisdaginn 1. desember. Vegna
samkomutakmarkana gat Tolli það ekki í ár en heldur
þó í dag það sem hann kallar „fullveldisfátíð“ og verður
í streymi á Facebook-síðu hans milli kl. 15 og 16. Bubbi
bróðir Tolla og Einar Már Guðmundsson rithöfundur
hafa iðulega verið gestir og komið fram á opnum hús-
um Tolla og þeir verða með honum í streyminu í dag,
auk Kristínar Morthens listmálara. Þess má geta að
Bubbi mun kynna og sýna splunkuný málverk sín.
Tolli, Bubbi, Einar Már og Kristín á
„fullveldisfátíð“ í streymi í dag
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Snorri Einarsson skíðagöngumaður komst í hann
krappan í fyrstu umferð heimsbikarsins í skíðagöngu í
Ruka í Finnlandi um síðustu helgi. Fölsk jákvæð niður-
staða úr kórónuveiruprófi Vegard Karlstrøm, þjálfara
Snorra, átti þar eftir að draga dilk á eftir sér. Snorri gat
ekki æft í viku og var svo meinað að keppa á fyrsta degi
heimsbikarsins. Hann fékk þó undanþágu til þess að
keppa næstu tvo daga, eftir að neikvæð niðurstaða úr
öðru prófi Karlstrøm fékkst seint og síðar meir. Snorri
þurfti þá að hefja leik í neðsta sæti. »55
Mátti ekki keppa vegna falskrar
niðurstöðu úr kórónuveiruprófi
ÍÞRÓTTIR MENNING
ingum. „Velkomin á þetta hættu-
svæði. Hér býr jólakötturinn með
jólakettlingnum sínum,“ eru upp-
hafsorð sögumanns þar auk þess
sem hlusta má á jólakattarlagið.
Jólasveinninn á sinn stað sem og
Grýla og geiturnar þrjár eru á fal-
lega skreyttri brú. „Jóga tröllskessa
bætist í hópinn,“ upplýsir Hlédís.
„Hún er úr héraði, býr í Akrafjall-
inu, eins og fram kemur í bókum
Hallberu Jóhannesdóttur.“
Viðburðurinn hefur verið fastur
liður á aðventunni og á heimasíðunni
eru til dæmis leiðbeiningar, sög-
urnar, vísurnar og lögin. Hlédís
bendir á að margir hafi lagt hönd á
plóg, Akraneskaupstaður, fyrirtæki
og hollvinafélög skólanna hafi styrkt
átakið og bæjarbúar og aðrir gestir
hafi sýnt þessu mikinn áhuga. Vegna
heimsfaraldursins leggur hún
áherslu á að gestir virði takmarkanir
og forðist hópamyndanir. „Ástandið
þýðir að fólk er ekki bundið við að
mæta á ákveðnum tíma heldur getur
mætt hvenær sem er, verið með
grímu, passað upp á fjarlægðar-
takmörkin og komið eins oft og það
vill.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jólagleðin í Garðalundi á Akranesi
(jolagledi.is) fer nú fram í fimmta
sinn, en vegna heimsfaraldursins
verður hún með öðru sniði en áður. Í
stað dagskrár eina kvöldstund verð-
ur ævintýraheimurinn í skógrækt-
inni opinn í mánuð, frá 6. desember
til 6. janúar, og með aðstoð QR-kóða
á sjö stöðum má hlusta á ýmsan
fróðleik, sögur og söng.
Mæðgurnar Sara og Margrét
Blöndal eiga hugmyndina að verk-
efninu, fengu Hlédísi Sveinsdóttur
með sér í framkvæmdina og hafa
þær séð um viðburðinn frá byrjun.
„Það er ótrúlega gaman og þakkar-
vert að geta Covid-vætt verkefnið,“
segir Hlédís, en gleðin verður form-
lega opnuð á Facebook klukkan 19 í
kvöld og þá verður kveikt á ljós-
unum.
Farsími nauðsynlegur
Felix Bergsson hefur verið kynnir
frá byrjun og hann er áfram sögu-
maður, leiðir gesti og gangandi í
gegnum ævintýraheiminn með að-
stoð QR-kóða. „Við hjálpum gestum
við að búa til ævintýrið en fram-
kvæmdin er í þeirra höndum,“ segir
Hlédís. Áður hafi fólk verið beðið um
að skilja símana eftir heima en nú
þurfi þeir að vera með til að skanna
QR-kóðana. Hingað til hafi verið
hægt að fá sér kakó í boði Skagans
3X en nú verði fólk að taka með sér
nesti. „Viðburðurinn er hugsaður
fyrir þá sem vita að jólasveinninn er
til og nú verðum við að biðja þá sem
eldri eru að opna fyrir ævintýrarás-
irnar í sér, miðla fróðleiknum til
hinna yngri og strá töfrunum yfir
svæðin þar sem skiltin eru.“
Ljósin hans Gutta, sem eru til
minningar um Guðbjart Hannesson,
fyrrverandi skólastjóra, alþingis-
mann og ráðherra, hafa lýst upp
svæðið og á því verður ekki breyt-
ing. Á fyrsta skiltinu er fólk boðið
velkomið og skýrt út hvað sé í vænd-
um. Jólakötturinn er á sínum stað og
þar er annað skilti með upplýs-
Jóga tröllskessa
bætist í hópinn
Fimmta jólagleðin í Garðalundi á Akranesi og nú Covid-vædd
Ljósmynd/Jónas H. Ottósson
Í Garðalundi Jóga tröllskessa og góði risinn á Akranesi.