Lögmannablaðið - 2020, Blaðsíða 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/20 11
FEBRÚAR: ÁSA OG SANDRA SETTAR Í LANDSRÉTT
Skömmu fyrir jól 2019 auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til setningar tvö embætti dómara við Landsrétt vegna leyfa tveggja
dómara. Átta umsóknir bárust frá þeim Ásu Ólafsdóttur prófessor, Birni L. Bergssyni skrifstofustjóra og héraðsdómurunum
Ástráði Haraldssyni, Boga Hjálmtýssyni, Hildi Briem, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, Ragnheiði Snorradóttur og Söndru
Baldvinsdóttur. Þann 17. febrúar lá niðurstaða dómnefndar fyrir þar sem hún taldi Ásu Ólafsdóttur hæfasta og þau
Ástráð Haraldsson og Söndru Baldvinsdóttur næst á eftir henni, jafnsett. Í kjölfarið var Ása sett frá 25. febrúar til 30.
júní og Sandra frá 2. mars til 30. júní.
APRÍL: ÁSMUNDUR SKIPAÐUR Í LANDSRÉTT
Í byrjun árs var embætti dómara við Landsrétt auglýst laust til umsóknar og bárust alls fjórar
umsóknir; frá landsréttardómurunum Ásmundi Helgasyni og Ragnheiði Bragadóttur og
héraðsdómurunum Ástráði Haraldssyni og Söndru Baldvinsdóttur. Niðurstaða dómnefndar
var að Ásmundur væri hæfastur og í framhaldinu var hann skipaður dómari við Landsrétt
frá 17. apríl. Þar sem Ásmundur var skipaður dómari við réttinn fyrir þá losnaði eitt sæti við
dóminn.
MAÍ: SIGURÐUR TÓMAS SKIPAÐUR Í HÆSTARÉTT
Þann 28. febrúar var embætti hæstaréttardómara auglýst til umsóknar og sóttu fimm um
embættið: Landsréttar dómararnir Aðalsteinn E. Jónasson, Davíð Þór Björgvinsson, Jóhannes
Sigurðsson og Sigurður Tómas Magnússon og Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Þeir
Davíð Þór og Jóhannes drógu síðan umsóknir sínar til baka en dómnefnd skilaði umsögn til
setts dómsmálaráðherra 6. maí þar sem Sigurður Tómas var metinn hæfastur og var hann
skipaður dómari við réttinn frá 18. maí. Þar með losnaði um eitt embætti dómara í Landsrétti
sem dómnefnd fékk nú á sitt borð.
DAGATAL DÓMNEFNDAR
UM HÆFI UMSÆKJENDA UM EMBÆTTI
DÓMARA FYRIR ÁRIÐ 2020
ÁRIÐ 2020 HEFUR VERIÐ ANNASAMT HJÁ DÓMNEFND UM HÆFNI UMSÆKJENDA UM
EMBÆTTI DÓMARA OG SEGJA MÁ AÐ HÚN HAFI VERIÐ ÖNNUM KAFIN VIÐ AÐ META HÆFI
UMSÆKJENDA UM DÓMARASTÖÐUR Á ÖLLUM ÞREMUR DÓMSTIGUNUM. EKKI SÉR FYRIR
ENDANN Á ÞVÍ ÞAR SEM FRAMUNDAN ER AÐ META HÆFI UMSÆKJENDA UM TVÆR
DÓMARASTÖÐUR VIÐ HINN NÝJA ENDURUPPTÖKUDÓMSTÓL, EINA STÖÐU DÓMARA VIÐ
LANDSRÉTT, SEM VAR AUGLÝST Í NÓVEMBER, OG BIRTA NIÐURSTÖÐUR ÚR MATI Á 26
UMSÆKJENDUM UM FJÓRAR HÉRAÐSDÓMARASTÖÐUR. LÖGMANNABLAÐIÐ ÚTBJÓ DAGATAL
DÓMNEFNDAR FYRIR ÁRIÐ 2020.