Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 12

Lögmannablaðið - 2020, Qupperneq 12
12 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/20 JÚLÍ: ARNFRÍÐUR SKIPUÐ Í LANDSRÉTT Þann 17. apríl var auglýst laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt og sóttu alls fimm umsækjendur um: Landsréttardómararnir Arnfríður Einarsdóttir og Ragnheiður Bragadóttir og héraðsdómararnir Ástráður Haraldsson, Helgi Sigurðsson og Ragnheiður Snorradóttir. Dómnefnd skilaði umsögn til ráðherra 16. júní og mat Arnfríði Einarsdóttur hæfasta og var hún skipuð fá 1. júlí. Þar sem Arnfríður var skipuð dómari við Landsrétt áður þá losnaði eitt sæti við dóminn svo dómnefnd sat enn við. ÁGÚST: INGI TRYGGVASON OG HALLDÓRA ÞORSTEINSDÓTTUR SKIPUÐ Í HÉRAÐDÓM Í apríl og maí voru tvö embætti við Héraðsdóm Reykjaness auglýst laus til umsóknar. Alls bárust 15 umsóknir um embættin: Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur, Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari, lektorarnir Halldóra Þorsteinsdóttir og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, þrír aðstoðarmenn dómara: Guðfinnur Stefánsson, Ólafur Egill Jónsson og Sólveig Ingadóttir og átta lögmenn: Auður Björg Jónsdóttir, Guðmundína Ragnarsdóttir, Herdís Hallmarsdóttir, Höskuldur Þór Þórhallsson, Ingi Tryggvason, Ingólfur Vignir Guðmundsson, Sigurður Jónsson og Þórhallur Haukur Þorvaldsson. Dómnefnd mat Inga Tryggvason og Halldóru Þorsteinsdóttur hæfust og var Ingi skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjaness frá 1. ágúst og Halldóra frá 31. ágúst. SEPTEMBER: RAGNHEIÐUR OG JÓN SKIPUÐ Í LANDSRÉTT Þann 19. júní voru auglýst tvö embætti dómara við Landsrétt. Umsækjendur voru sjö talsins; Ragnheiður Bragadóttir landsréttardómari, héraðsdómararnir Ástráður Haraldsson, Hildur Briem, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Jón Höskuldsson dómstjóri auk lögmannanna Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar og Stefáns Geirs Þórissonar. Hildur og Kjartan Bjarni drógu síðan umsóknir sínar til baka en dómnefnd skilaði umsögn til dómsmálaráðherra um að Ástráður Haraldsson, Jón Höskuldsson og Ragnheiður Bragadóttir væru hæfust til starfans. Ráðherra ákvað síðan að gera tillögu um að skipa Ragnheiði Bragadóttur frá 18. september og Jón Höskuldsson frá 25. september. Þar með losnaði um eitt embætti héraðsdómara og eitt embætti landsréttardómara svo enn voru annir hjá dómnefnd en umsóknarfrestur um landsréttardómaraembætti rann út 7. desember síðastliðinn. NÓVEMBER: ÁSA OG BJÖRG SKIPAÐAR Í HÆSTARÉTT Þann 10. júlí voru tvö embætti hæstaréttardómara auglýst til umsóknar og alls voru átta umsækjendur. Landsréttardómararnir Aðalsteinn E. Jónasson, Davíð Þór Björgvinsson, Oddný Mjöll Arnardóttir og Þorgeir Ingi Njálsson sóttu um ásamt Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni lögmanni, Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara og prófessorunum Ásu Ólafsdóttur og Björgu Thorarensen. Ástríður og Jóhannes Rúnar drógu umsóknir sínar til baka en dómnefnd skilaði umsögn til ráðherra 5. nóvember sl. þar sem hún mat alla sex umsækjendurna hæfa. Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen voru skipaðar frá 23. nóvember sl.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.