Lögmannablaðið - 2020, Page 30
30 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/20
ERU LÖGMENN MEÐ
EINOKUN Á MARKAÐI FYRIR
LÖGFRÆÐILEGA ÞJÓNUSTU?
Skýrsla danska Samkeppniseftirlitsins
Í febrúar 2019 tilkynnti danska Samkeppniseftirlitið
að rannsókn væri hafin á samkeppnismarkaði danskra
lögmanna.1 Í fréttatilkynningu eftirlitsins kom fram að
rannsóknin næði yfir þjónustu allra lögmannsstofa, jafnt
stórra sem lítilla og alla þá þjónustu sem slíkar stofur
bjóða upp á. Rannsóknarskýrsla Samkeppniseftirlitsins er
væntanleg á næsta ári en eftirlitið lauk við fyrstu drög að
henni í byrjun ágúst. Þau drög voru ekki ætluð til birtingar
en engu að síður láku út fréttir af innihaldi skýrslunnar
til fjölmiðla.
Nokkur umræða hefur skapast á Íslandi síðustu misseri um samkeppni á markaði
fyrir lögfræðilega ráðgjöf. Umræðan um slík mál er þó mun háværari í Danmörku
þar sem ýmsir telja að lögmannsstofur þar hafi skapað ákveðinn einokunarmarkað
fyrir þjónustu sem aðrir þjónustuaðilar, t.d. endurskoðunarfyrirtæki, geti einnig
veitt. Sömu gagnrýnisraddir segja að þessar markaðsaðstæður hafi hækkað verð
á þjónustu lögmanna umfram eðlilega samkeppni.
Þessi umræða hefur valdið því að danska Samkeppniseftirlitið (d. Konkurrrencerådet)
hefur hafið rannsókn á málinu.
1 Sjá nánar hér: https://www.kfst.dk/pressemeddelelser/kfst/2019/20190208-konkurrenceradet-undersoger-
konkurrencen-i-advokatbranchen/
GUÐRÚN OLSEN LÖGMAÐUR OG BERGÞÓR BERGSSON LÖGFRÆÐINGUR