Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 4
MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Gríðarlegt tjón í Háskóla Íslands Gríðarlegt tjón varð í byggingum Háskóla Íslands í miklum vatnsleka aðfaranótt fimmtudags. Hurðir sprungu undan vatninu sem streymdi inn af miklum krafti, að því er talið er um 500 lítrar af vatni á sekúndu í 75 mínútur. Ástæða lekans var rof á aðalkaldavatnsæð Veitna við Suðurgötu. Á sumum stöðum náði vatn upp að hné og jafnvel í efri dyrakarma. Að sögn rektors er háskólinn ekki tryggður fyrir tjóninu sem er talið að geti hlaupið á hundruðum milljóna króna. Óánægja með flutning á skimunum Kvensjúkdómalæknar höfðu varað við því að heilsugæslan væri ekki tilbúin til að taka við skimunum vegna legháls- krabbameins um áramót. Fjöldi kvenna bíður þess að komast í skimun og ekki er víst hvenær úr því verður bætt. Krabba- meinsfélagið hætti greiningu sýna í nóvember og nú liggja 2.000 sýni kvenna í pappakössum hjá heilsugæslunni og bíða þess að vera rannsökuð. Leghálssýnin verða send úr landi til greiningar, en það fyrirkomulag hefur verið harðlega gagn- rýnt enda hafa sýni verið greind hér á landi um árabil og því ljóst að bæði tæknin og þekkingin er fyrir hendi innanlands. Alvarlegt bílslys Alvegt bílslys varð í Skötufirði á laugardag. Fjölskylda, bú- sett á Flateyri, var að snúa heim eftir ferðalag til Póllands er bifreið hennar fór út af veginum og hafnaði úti í sjó. Tvö létust í kjölfar slyssins, drengur á öðru ári og móðir hans. Faðirinn lifði af og er líðan hans eftir atvikum. Í kjölfarið var það fyrirkomulag gagnrýnt að ferðalangar frá útlöndum væru skikkaðir til að keyra beina leið heim til sín eftir komuna til landsins, jafnvel þótt þeir ættu langa leið fyrir höndum. Ágúst Ólafur hættir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, mun ekki taka sæti á lista flokks síns í komandi kosningum. Ágúst var ekki meðal fimm efstu í skoðanakönnun félagsmanna í Reykjavík en bauð uppstillingarnefnd sáttatillögu um að hann færi úr oddvitasæti yfir í annað sæti. Þeirri tillögu var hafnað. Mikil ólga er innan Samfylkingarinnar vegna þessa og þykir mörgum að Ágústi sé með vilja bolað burt vegna kynferðis- legrar áreitni sem hann var sakaður um á kjörtímabilinu. Donald Trump ekki lengur forseti Joe Biden tók við sem forseti Bandaríkjanna á miðvikudag og varð 46. forseti Bandaríkjanna. Donald Trump, fráfarandi for- seti, er því fluttur úr Hvíta húsinu og snúinn aftur til Flórída þar sem hann er búsettur. Sviss hafði betur Sviss vann Ísland, 20-18, í fyrsta leik milliriðils III á Heims- meistaramótinu í handbolta á miðvikudag. Íslenska landsliðið var í kjölfarið gagnrýnt fyrir slakan sóknarleik, en Ísland skoraði aðeins átján mörk í leiknum og tvö af þeim skoraði markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson og varð þar með næstmarkahæsti leikmaður liðsins í leiknum. 1 Jarðarför Ástu var á föstu-daginn – Lætur eftir sig fjögur börn Ásta Halldóra Styff Óladóttir varð bráðkvödd að heimili sínu þann 9. desember 2020. 2 Manstu eftir ítalska kyntröll-inu Fabio? – Svona lítur hann út í dag Ítalska fyrirsætan Fabio er 61 árs og enn í fantaformi. 3 Mæðgur naktar saman í Playboy Þýska útgáfa Playboy skartaði nöktum mæðgum á for- síðunni, þeim Claudelle og Romy Eckert. 4 Hún hvarf sporlaust í skemmtisiglingunni – Síðan kom tölvupósturinn sem fékk mjög á foreldrana Foreldrar Amy Bradlay fengu senda mynd sjö árum eftir hvarf dóttur þeirra. Á myndinni var vændiskona sem var sláandi lík Amy. 5 Jóhannes Haukur borðaði þrí-rétta máltíð með einni fræg- ustu leikkonu heims – „Við vorum tvö ein mætt“ Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson snæddi með leikkonunni Cate Blanchet. 6 35 ára kennari ákærð fyrir kynferðisbrot gegn nemanda sínum – „Hún bað hann um að hitta sig utan skóla“ Breskur kennari tældi 15 ára dreng og á nú yfir höfði sér fangelsisdóm. 7 Ásmundur fylgdi tengda-syni sínum til grafar í dag – „Við eigum góðar minningar um dugnaðar tengdason“ Ingimar Ágúst Guðmarsson, tengdasonur Ásmundar Friðrikssonar þingmanns, var borinn til grafar 16. janúar. 8 Var rekinn eftir að það fréttist af honum á djamminu í Reykjavík Frakki sem kom til KA árið 2006 var rekinn eftir að hann fór á djammið daginn fyrir leik. 9 Hafnar því að hafa haldið framhjá Litlu bauninni Sara Kohan var ásökuð um að hafa haldið framhjá Javier Hernandez sem er kallaður Litla baunin. BÍLASMIÐJURINN HF. Þú hitar bílinn með fjarstýringu og nýtur þannig þæginda og öryggis ALDREI AÐ SKAFA! MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA 4 FRÉTTIR 22. JANÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.