Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 6
6 FRÉTTIR 22. JANÚAR 2021 DV SEGJA STYTTINGU VINNUVIKUNNAR FJANDSAMLEGA FJÖLSKYLDUM Leikskólakennarar sjá ekki fyrir sér að hægt verði að stytta vinnuvikuna án þess að annaðhvort skerða þjónustu við foreldra leikskólabarna eða auka framlög til leikskóla. Borgin segir að það sé víst hægt, og það sé forsenda fyrir styttingu vinnuvikunnar. Heimir Hannesson heimir@dv.is K ergja er meðal leik-skólakennara vegna framkomu Reykjavík- urborgar gagnvart stéttinni í málum tengdum styttingu vinnuvikunnar. Samið var um styttingu vinnuvikunnar í samningum sem undirrit- aðir voru um mitt ár í fyrra en sjálf styttingin tók gildi 1. janúar. Stytting vinnuvikunnar hefur raunar lengi verið kappsmál hjá stéttarfélögum á Íslandi og fögnuðu forkólfar hreyfingarinnar ákaft þegar það lá fyrir að vinnuvika þús- unda starfsmanna hjá hinu opinbera færi úr 40 klukku- stundum niður í 36 á nýju ári. Samkvæmt samningnum skal hver vinnustaður fyrir sig útfæra hvernig að stytting- unni skuli staðið. Hópur skal skipaður innan hvers vinnu- staðar sem vinnur tillögu að útfærslu sem vinnustaðurinn kýs svo um. Ljóst hlaut að vera að tals- verður kostnaður myndi hljótast af því að borga starfs- mönnum jafn mikið fyrir minni vinnu. Í skriflegu svari mannauðs- og starfsumhverf- issviðs Reykjavíkurborgar sem lagt var fram í borgarráði í þarsíðustu viku kom fram að kostnaður Reykjavíkurborgar vegna styttingar vinnuvikunn- ar yrði 520 milljónir króna. Langstærsti hluti þess kostn- aðar hlýst á velferðarsviði borgarinnar, eða 473 milljónir. Má ekki kosta neitt Einhver hefur útreikningur- inn verið, því útreikningur mannauðs- og starfsumhverf- issviðs var svar við spurningu borgarfulltrúa Miðflokksins sem hún lagði fram í nóvem- ber, fyrir tveimur mánuðum. Fyrirspurnin var svohljóð- andi: „Hvað er áætlað að stytt- ing vinnuvikunnar muni kosta Reykjavíkurborg á árinu 2021 tæmandi talið eftir sviðum borgarinnar?“ Í ljósi tæmandi orðalags svars Reykjavíkurborgar vakti það athygli að ekkert var minnst á skóla og leikskóla borgarinnar. Mátti því ráða af svarinu að ekki væri gert ráð fyrir því að neinn kostnaður félli til þar vegna styttingar vinnuvikunnar. Fyrir því er einföld ástæða: Reykjavík ætlar ekki að eyða peningum í styttingu vinnuvikunnar í skólum borgarinnar. Í skila- boðum Skóla- og frístunda- sviðs borgarinnar til leikskóla- stjóra kom fram að styttingin mætti ekki kosta borgina neitt, og þjónustuna mætti ekki skerða heldur. Í svarinu segir jafnframt: „Forsenda styttingar hjá dag- vinnufólki er að breyting á skipulagi vinnutíma skuli ekki leiða til breytinga á launum starfsfólks eða launakostnaði starfsstaða. Að óbreyttu mun stytting vinnuskyldu vakta- vinnufólks, úr 40 í 36 virkar stundir, hafa veruleg áhrif á starfsemi starfsstaða og svo- kallað mönnunargat myndast.“ Leikskólastarfsmenn hissa á borginni Í samtali við DV orðaði leik- skólakennari það svo að tví- ræð skilaboð borgarinnar yllu leikskólastarfsmönnum „mikl- um heilabrotum“ um þessar mundir. „Borgin skrifar undir þennan samning. Síðan segir hún að forsenda hans hafi verið að hann mætti ekki kosta neitt en hún er nú samt með- vituð um að stytting vinnu- vikunnar mun hafa veruleg áhrif á starfsemi vinnustaða og „mönnunargat“ myndast. Samt koma svo skilaboð um að útfærslan megi ekki kosta neitt og ekki bitna á þjónust- unni. Maður skilur ekki neitt í þessu,“ sagði einn leikskóla- kennarinn sem DV ræddi við í vikunni. „Nú liggur það í augum uppi að þegar manneskja gengur úr starfi eftir hádegi án þess að afleysing komi á móti myndast skarð og ekki er lengur hægt að halda uppi leikskólastarfi af sömu gæðum og ef um full- mannaðan vinnustað væri að ræða,“ sagði annar. Hvorugur leikskólastarfsmaðurinn vildi koma fram undir nafni, en báðir sögðust þeir spenntir að heyra hvernig borgin ætlaði sér að útfæra þetta með þess- um hætti. Bollaleggingar borgarinnar fjandsamlegar fjölskyldum Borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins svarar þessari spurningu í aðsendri grein í Fréttablaðinu í vikunni: „Þetta er ekki hægt,“ segir Hildur Björnsdóttir. „Fram- kvæmdinni fylgdi ekkert viðbótarfjármagn og því fyrirséð að leikskólaþjónusta mun skerðast við útfærsluna,“ skrifar hún. Segir hún út- færslu borgarinnar á þessu ákvæði kjarasamnings ekki vera fyrstu „ísilagða áramóta- kveðju“ jafnaðarmanna til fjölskyldufólks, en opnunar- tími leikskólanna var styttur í haust. Hildur segir skerta þjónustu til þess fallna að auka umönnunarbyrði barna á heimilum borgarinnar, og sú aukna byrði er líklegri til þess að falla af meiri þunga á mæður en feður. „Minni at- vinnuþátttaka kvenna á vinnu- markaði hefur svo aftur áhrif á tekjuöflun þeirra, framgang í starfi og lífeyriskjör.“ Vísar Hildur til jafnréttis- mats sem unnið var fyrir borgina vegna hugmynda um styttingu opnunartíma leik- skólanna. Niðurstaða matsins var að styttingin myndi leggj- ast þyngst á einstæða foreldra, láglaunafólk, þá sem minna mega sín í samfélaginu en fyrst og fremst á konur. Engu að síður var ráðist í styttingu opnunartíma leikskólanna til áramóta 2020. Árið er nú 2021, og styttingin er enn í gildi. Á það er nú bent að verði stytting vinnuvikunnar til þess að draga enn frekar úr veittri þjónustu í leikskólum borgarinnar hljóta sömu rök að eiga við. Þjónustuskerð- ingin mun leggjast þyngst á þessa sömu hópa. Stærsta breyting á vinnumarkaði í 50 ár Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og staðgengill borgarstjóra, seg- ist hafa skilning á því að það séu skruðningar í tengslum við þetta verkefni. „Þetta er enda risa breyting, líklega stærsta breyting á vinnu- markaði í að minnsta kosti 50 ár,“ segir hún. Aðspurð hvort hún hafi ekki samúð með því að leikskólakennarar fái þau skilaboð að borgin sé tilbúin til þess að leggja hundruð milljóna á ári í önnur svið en ekkert til skólanna segir Þórdís að það sé ekki hægt að bera saman sólarhrings- vaktir á hjúkrunarheimilum borgarinnar og leikskólakenn- ara í dagvinnu. „Það var gert tilraunaverkefni árið 2015 og niðurstaðan þar var sú að þetta er hægt. Við vitum að það er hægt að ná fram stytt- ingu vinnuvikunnar án þess að skerða þjónustu og auka kostnað,“ segir Þórdís. Hún bendir jafnframt á að þegar tilraunaverkefninu 2015 lauk hafi orðið mikil óánægja. „Það var mikil ánægja með verkefnið og þegar því lauk hafði fólk haft af því miklar áhyggjur að þetta myndi ekki nást inn í kjarasamningana.“ Til þess að þetta geti gengið, útskýrir Þórdís, þarf fólk að endurskipuleggja vinnu- daginn, breyta ferlum og verkefnum. „Nágrannalöndin okkar fóru í gegnum þetta á sínum tíma og þá var ýmsu breytt á vinnustöðunum. Ég hef sjálf ekki orðið vör við óá- nægju, en ég get tekið undir það að það þurfi að spyrja gagnrýnna spurninga,“ segir hún að lokum. Leikskólakennarar taka ekki í sama streng og Þórdís. „Ef svigrúm væri fyrir aukna hagræðingu í starfi hér hjá okkur, þá hefði borgin fundið það fyrir löngu síðan og nýtt hann til að skera niður kostn- að. Á leikskólum borgarinnar hefur allt verið skorið niður við nögl síðustu ár og áratugi. Þetta endar bara á einn veg, með skertri þjónustu,“ segir heimildarmaður DV. n Leikskóla- börn á leið í ævintýraferð í Strætó. Leik- skólakennarar segja stytt- ingu vinnu- vikunnar munu skerða þjónustu við börnin. MYND/STEFÁN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.