Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Ótal margt enn ófrágengið 22. JANÚAR 2021 DV Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags Íslands, segir félagið engar skýringar hafa fengið vegna flutnings skimana frá Leitar- stöðinni til opinberra stofnana. Stuttir tíma- bundnir samningar af hálfu hins opinbera hafi haldið rekstrinum í heljargreipum undanfarin ár. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is M álefni fólks með krabbamein og að-standenda þeirra hafa lengi talað sterkt til mín,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags Íslands. „Í störf- um mínum hef ég kynnst fólki sem er að takast á við gríðar- lega erfið veikindi og ítrekað fengið staðfestingu á því hvað fólk getur ótrúlega mikið. Ég er hlaupari til margra ára, hef hlaupið maraþon og Laugaveginn en engin „ultra“ hlaup. Ég hef hins vegar lesið frásagnir fólks sem hefur jafnvel hlaupið dögum saman og hef spurt mig af hverju fólk hættir ekki, hvernig kemst það alla leið? Ég held að hér séu svipuð öfl að verki. Fólk sem glímir við krabbamein segist ekki hafa val, það verði að klára, það sé ekki í boði að gefast upp. En fólk hefur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.