Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 13
FRÉTTIR 13DV 22. JANÚAR 2021 Mín upplifun er að það skorti heildræna áætlun. Fram á vor koma konur áfram í brjósta skimun í húsnæði Krabba- meinsfélags- ins en þær eru þá í raun að koma til Landspítalans sem leigir aðstöðuna tímabundið. MYND/STEFÁN Halla segir starfsfólk Leit­ arstöðvarinnar og Krabba­ meinsfélagsins hafa verið slegið. „En auðvitað er þetta hvergi eins erfitt og hjá þeim sem fyrir þessu verður. Þetta var auðvitað hræðilegt. Í kjöl­ farið kom síðan fjölmiðlaum­ fjöllun sem var mjög óvægin á köflum og jafnvel birtar ýmsar rangfærslur, svo sem alhæfingar um að hér væri allt í molum sem er enginn fótur fyrir. Þá var því einnig haldið fram að félagið hefði misfarið með opinbert fé sem er afskaplega alvarlegt og á heldur ekki við nein rök að styðjast.“ Hún ítrekar að manneskjan sé ekki fullkomin og því verði atvik á borð við þessa röngu greiningu. „Svona gerist á rannsóknarstofum um allan heim. Sem gerir það samt ekk­ ert betra. Það eru líka gerðar rangar sjúkdómsgreiningar reglulega en ég þekki ekki til þess að það sé farið aftur í tímann og farið yfir vinnu þess starfsfólks með þeim hætti sem gert var hér. Við tókum þetta gríðarlega alvar­ lega. Það er mikilvægt að vera meðvitaður um að það eru kostir og gallar við skimun. Það er auðvelt að hugsa að maður sé öruggur eftir að hafa komið einu sinni í skim­ un en það er ekki þannig. Það þarf að koma reglulega og þess vegna eru konur boðaðar reglulega í skimun.“ Halla segir þetta hafa verið undarlegan tíma fyrir starfs­ fólk félagsins. „Á sama tíma og þetta er í gangi var hér gríðarleg aðsókn í skimanir, meðal annars því konur vissu að verkefnið væri að fara héð­ an og því mikið vinnuálag. Á þessum sama tíma var einnig verið að undirbúa flutning­ inn. Þarna upplifði ég þennan styrkleika sem fólk býr yfir og hvað fólk getur þegar á reynir. Það er ótrúlegt að starfsfólk Leitarstöðvarinnar hafi staðið vaktina alveg til enda og unnið sína vinnu með sóma. Ég er virkilega stolt og þakklát fyrir að hafa unnið með þessu fólki. Sextán þúsund velunnarar Þrátt fyrir að Leitarstöðin hafi verið lögð niður er enn fjöldi verkefna hjá Krabbameins­ félaginu. „Einn af hverjum þremur fær krabbamein á lífs­ leiðinni. Það út af fyrir sig er stór tala. Ég hef sagt að hinir tveir séu aðstandendur því þótt krabbamein sé misnærri manni þá þekkja allir fólk sem veikist af krabbameini.“ Hún segir Krabbameins­ félagið stundum vera eins og maðurinn á bak við tjöldin í Spaugstofunni. „Það er ekki allt mjög sýnilegt sem við gerum en við látum okkur allt varða sem tengist krabba­ meinum og það er okkar von að fólk upplifi að félagið er til staðar á svo mörgum víg­ stöðvum.“ Þá bendir hún á að starf fé­ lagsins sé alfarið kostað af söfnunarfé frá einstaklingum og fyrirtækjum. „Við fengum yggi sjúklinga aukið. Þarna komi krabbameinsáætlunin sterk inn. Halla vill einnig koma á framfæri að skimun er fyrir heilbrigða einstaklinga. Þeir sem hafi einkenni verði að leita sér aðstoðar. „Það er annars konar heilbrigðis­ þjónusta sem konur þurfa að hafa greiðan aðgang að, upp á það vantar sárlega í dag, allt of löng bið er eftir skoðunum vegna einkenna í brjóstum.“ Þá leggur hún áherslu á að komið verði á reglubundinni skimun fyrir ristilkrabba­ meini sem býðst öllum kynj­ um. „Krabbameinsfélagið og ráðuneytið lögðu 45 milljónir í að koma því verkefni á lagg­ irnar árið 2016. Heilbrigðis­ yfirvöld verða að svara af hverju þetta er ekki orðið að veruleika. Ristilskimun á ekki að vera á áætlun heldur koma í framkvæmd. Það deyja fleiri úr ristilkrabbameini en úr brjóstakrabbameini. Með skimunum getum við komið í veg fyrir fjölda dauðsfalla,“ segir Halla. „Við erum að sjá eftir allt of mörgum sem deyja af völdum krabbameina. Með því að breyta lífsstíl getum við komið í veg fyrir fjögur af hverjum tíu krabbameinum. Þetta er risastórt langtíma­ verkefni og við þurfum að gera betur. Það hefur náðst mikill árangur varðandi reyk­ ingar en þar kom til samstillt átak Krabbameinsfélagsins, stjórnvalda og fleiri aðila. Það sýnir okkur mjög skýrt hvers við erum megnug þegar við setjum okkur markmið sem samfélag og vinnum öll saman að því.“ n greitt frá hinu opinbera vegna Leitarstöðvarinnar og vegna reksturs krabbameinsskrár þar sem haldið er utan um allar krabbameinsgreiningar hér á landi. Annars erum við algjörlega háð styrkjum og stuðningi almennings. Við eig­ um sextán þúsund velunnara sem styðja við bakið á félag­ inu í hverjum mánuði og erum í góðu sambandi við þennan hóp fólks.“ Hún segir félagið beita sér fyrir því að þeir sem fá krabbamein njóti betri þjón­ ustu og samfellu í þjónustu, að biðtími sé styttur og ör­

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.