Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 15
fyrir að beita sambýliskonu sína ofbeldi. Var talið að gerandi ætti sér engar máls- bætur fyrir utan það að hann hafi verið samvinnuþýður og komið vel fram við meðferð fyrir dómi. Var hæfileg refsing talin fimm ára fangelsi. Hótelherbergi erlendis Í þeim tilvikum þar sem að- eins var ákært fyrir brot gegn 194. gr var algengast að fang- elsisdómur væri tvö ár eða tvö og hálft ár. Karlmaður var sakfelldur fyrir nauðgun með því að hafa í ágúst 2008 í hótelherbergi er- lendis nauðgað konu með því að beita hana ofbeldi og ólög- mætri nauðung. Var honum gert að sæta tveggja og hálfs árs fangelsi en refsingin var skilorðsbundin til tveggja ára. Við ákvörðun refsingar skipti máli hversu langt var um liðið frá brotinu og hversu langan tíma rannsókn málsins tók, en einnig var horft til þess að brotið beindist að kynfrelsi konunnar, það olli miklu tjóni, brotavilji mannsins var ein- beittur og brotið taldist stór- fellt og framið á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt. Hins vegar er ekki færð- ur rökstuðning í birtri reifun dómsins fyrir því að refsingin var alfarið skilorðsbundin, eða fyrir því hvers vegna skilorðs- tíminn er skemmri en sjálfur fangelsisdómurinn. Braut gegn vinnufélaga Karlmaður var sakfelldur fyrir nauðgun og dæmdur í fangelsi í tvö ár og sex mán- uði eftir að hann nauðgaði konu sem hann starfaði með á heimili hennar í Kópavogi. Við ákvörðun refsingar var horft til þess hversu langt var liðið frá brotinu og til þess að mað- urinn átti sér ekki sakaferil. Þó var tekið fram að hann ætti sér engar málsbætur. Brot gegn vinkonu Vægasti dómurinn var 18 mánaða fangelsi skilorðsbund- ið til fimm ára. Í því tilviki var karlmaður fundinn sekur um að hafa farið með fingur inn í leggöng náinnar vinkonu sinnar, án hennar samþykkis, á meðan hún svaf. Um ákvörð- un refsingar segir í niðurstöðu Héraðsdóms Vestfjarða: „Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að brota- þoli leit á ákærða sem trún- aðarvin, treysti honum í hví- vetna og átti sér einskis ills von þegar hún leyfði honum að gista í hjónarúmi hennar. Ákærði rauf þetta traust þegar hann notfærði sér svefndrunga brotaþola til að hafa við hana kynmök í rúm- inu. Fyrir liggur að ákærði var ölvaður, hrifinn af brota- þola og óskaði þess að sam- band þeirra yrði annað og meira en náið vinasamband. Ákærði hafði þó engan rétt til að yfirfæra eigin þrár yfir í löngun brotaþola til kynferðislegs samneytis við hann, svo sem hann gerði umrædda nótt. Af framburði brotaþola og vitna er ljóst að framferði ákærða hefur valdið henni verulegri van- líðan. Eins og málið liggur fyrir verður fallist á það með ákæruvaldinu að ákærði eigi sér engar málsbætur.“ Hins vegar lítur dómstóll einnig til áhrifa brotsins á hinn ákærða og virðist það hafa áhrif á þá ákvörðun að skilorðsbinda dóminn að fullu. „Eins og mál þetta horfir við dóminum hefur brot ákærða ekki aðeins markað djúp spor á sálarlíf brotaþola heldur og sálar- líf ákærða og valdið þeim báðum miklu áfalli. Vin- skapur þeirra virðist hafa verið náinn og þeim báðum mjög dýrmætur. Þau áttu trúnað hvors annars og litu á hvort annað sem sinn besta vin. Bæði voru ger- samlega niðurbrotin þegar þau gáfu skýrslu fyrir dómi og er það álit dómsins að eftir standi tveir laskaðir einstaklingar, sem líði enn í dag afskaplega illa og muni seint jafna sig á því sem ákærði gerði umrædda nótt. [...] Að öllu þessu gættu hefur dómurinn, eins og hér stendur sérstaklega á, veru- legar efasemdir um að af- plánun refsingar geti þjónað sérstökum hagsmunum brotaþola eða almennum hagsmunum annarra. Þykir því rétt að ákveða að fresta fullnustu refsingarinnar þannig að hún falli niður að liðnum fimm árum frá dómsbirtingu, haldi ákærði almennt skilorð.“ Blygðunarsemisbrot og nauðgun Karlmaður var sakfelldur fyr- ir að hafa nauðgað sambýlis- konu sinni og misboðið blygð- unarsemi hennar, en hann meðal annars stundaði sjálfs- fróun yfir henni og fékk sáðlát yfir höfuð hennar og í öðru til- viki nauðgað henni þegar hún gat ekki spornað við verknað- inum sökum svefndrunga. Var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi en hins vegar voru 27 mánuðir af refs- ingunni bundnir skilorði svo gerandinn mun aðeins þurfa að afplána þrjá mánuði í fangelsi. Við ákvörðun refsingar horfði Héraðsdómur til þess að mað- urinn hafði ekki komist áður í kast við lögin, játaði hluta ákæru skýlaust, samþykkti hluta bótakröfu og hafði reynt að bæta sig eftir að brot voru framin, meðal annars með því að leita sér sérfræðiaðstoðar í meðferðarúrræði fyrir ger- endur í ofbeldismálum. Brot hans voru metin gróf þar sem um brot í nánu sambandi var að ræða, ásetningur talinn ein- beittur og brotaþoli hlaut al- varlegar andlegar afleiðingar. Svo var horft til þess að miklar tafir urðu á meðferð máls sem geranda yrði ekki kennt um. Því var sú leið farin að skil- orðsbinda refsinguna, nánast að fullu. Sýknað Í þremur tilvikum á um- ræddu tímabili var sakborn- ingur sýknaður af ákæru um nauðgun. Í tveimur tilvika voru sakborningar sakfelldir fyrir önnur brot. Brot í nánu sambandi Karlmaður var ákærður fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa HEIMILD: DOMSTOLAR.IS FANGELSISDÓMAR gengið í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni og hafa við hana samræði og önnur kyn- ferðismök án hennar sam- þykkis. Hann var fundinn sekur um brot í nánu sam- bandi en sýknaður af ákæru um nauðgun, þar sem brota- þoli hafði fyrir dómi dregið til baka þá ásökun. Eins var maðurinn sakfelldur fyrir stórfellt umferðarlagabrot. Ásetningur Karlmaður var sýknaður af ákæru um grófa nauðgun þar sem dómara þótti ekki hafa verið sannað að maðurinn hefði haft ásetning til þess að nauðga brotaþola. Í niður- stöðu Héraðsdóms Reykja- víkur segir: „Eins og atvikum máls þessa er háttað telur dóm- urinn ákærða hafa haft rétt- mæta ástæðu til að túlka virka þátttöku brotaþola í kynmökunum sem sam- þykki hennar fyrir því sem fram fór.“ Áreitni Karlmaður var ákærður fyrir nauðgun fyrir að hafa stungið fingri inn í leggöng konu fyrir utan skemmtistað í Reykja- nesbæ. Dómara þótti ekki hafa verið sannað að hann hefði stungið fingri sínum inn í leggöng, en þó sannað að hann hefði áreitt konuna kyn- ferðislega. Því var sýknað af nauðgunarákæru en sakfellt fyrir kynferðislega áreitni. Ákvörðun refsinga Það er misjafnt hvernig dóm- arar færa rök fyrir ákvörðun refsinga í dómum sínum. Lögin marka þó vissa ramma, til dæmis er refsiramminn svokallaði fyrir nauðgun samkvæmt 194. gr. almennra hegningarlaga 1-16 ár, það er að lágmarki eins árs dómur og að hámarki sextán ár. Dómstólar hér á landi hafa þó haldið sig við lægri mörk þessa refsiramma, eins og sést á þessari úttekt. Ákvæði í hegningarlögum veita dómur- um ákveðna leiðbeiningu við ákvörðun refsinga og skipta þá helst máli í tilviki kynferðis- brota afleiðingar sem brotin hafa fyrir þolanda, hversu einbeittur brotaviljinn var, trúnaðarbrot, hversu gróft var ofbeldið, hvort gerandi var ungur, og hvort hann eigi sakaferil. Eins og áður hefur komið fram var sakfellt í ellefu málum af fjórtán sem gerir 78,6% sakfellingahlutfall í héraðsdómi síðasta árið. Ekki er ljóst hversu mörgum af þessum dómum verður, eða hefur verið, áfrýjað til Lands- réttar. Nokkrar umræður hafa átt sér stað undanfarið um dómaframkvæmd Landsrétt- ar í kynferðisbrotamálum, en samkvæmt greiningu Frétta- blaðsins staðfesti Landsréttur aðeins niðurstöðu héraðsdóms í fjórum tilfellum af sautján á síðasta ári. Í sjö tilvikum var refsing milduð og í sex til- vikum var sakfellingardómi héraðsdóms snúið við. n 18 mánuðir skilorðs- bundið 2 ár og 6 mánuðir skilorðsbundið 2 ár og 6 mánuðir 27 mánuðir skilorðsbundnir 3 ár og 6 mánuðir 4 ár og 6 mánuðir2 ár og 6 mánuðir Sýknur 2 ár 5 ár Alls hlutu sak- borningar 36 ár í fangelsi, þar af sex ár og þrjá mánuði í skil- orðsbundið fangelsi. MYND/GETTY Birtir héraðsdómar í nauðgunarmálum frá ársbyrjun 2020. FRÉTTIR 15DV 22. JANÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.