Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Page 20
BLÓMSTRA Ástin blómstrar hjá Svölu og Kristjáni. NÁTTÚRA Baltasar og Sunn- eva njóta í íslensku náttúrunni. JÓLALEG Eyþór og Ástríður voru jólaleg í desember. GLÆSILEG Skúli og Gríma falleg og fín saman. Þ að eru nokkur íslensk pör sem virðast ætla að sýna fram á að niður- stöður þessarar rannsóknar eigi ekki við um þau. Þessi íslensku pör hafa vakið mikla athygli og þá oft einmitt vegna aldursmunarins. Svala og Kristján Að sjálfsögðu er ofurparið Svala og Kristján efst á blaði þegar kemur að íslenskum pörum og aldursmun. Svala og Kristján hafa verið á gíf- urlegu flugi síðan þau opin- beruðu samband sitt í ágúst í fyrra. Kristján var síðan ekki lengi að fara á skeljarnar en þau Svala trúlofuðust í desember, einungis nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu saman. „Ég sagði hiklaust já. Ég elska þig endalaust ástin mín,“ skrifaði Svala, þegar hún tilkynnti um trúlofunina á Instagram-síðu sinni. Það er 21 ár á milli Svölu og Kristjáns, hún er 43 ára en hann er 22 ára. DV spurði Svölu út í þennan aldursmun þegar þau Kristján voru að stíga fyrstu skrefin í sam- bandinu. „Varðandi aldurs- mun þá finnst mér alltaf jafn fáránlegt að karlmenn mega deita eða vera með konum sem eru kannski 20-25 árum yngri og enginn segir neitt. Það er bara eðlilegt og engum finnst neitt að því,“ sagði hún. „Svo þegar við konur erum að deita yngri menn þá hefur fólk svaka sterkar skoðanir á því og það þykir tabú. Alger hræsni, segi ég bara, og mér finnst að fólk megi bara lifa sínu lífi og gera það sem gerir það hamingjusamt. Aldur er afstæður, ég á vini á öllum aldri og ég dæmi ekki fólk út frá aldri. Það er sálin þeirra sem segir allt um persónuna og ef hún er góð og falleg þá tengist ég þeim.“ Eyþór og Ástríður Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borginni, og Ástríður Jósefína Ólafsdóttir myndlistarkona, byrjuðu að rugla saman reytum snemma á síðasta ári. Það má með sanni segja að ástin blómstri hjá þeim Eyþóri og Ástríði, en aldursmunur þeirra vakti mikla athygli þegar fyrst var greint frá sambandinu. 26 ár eru á milli þeirra Eyþórs og Ástríðar, Eyþór er 56 ára gamall en Ástríður er 30 ára. Skúli og Gríma Skúli Mogensen, ferðaþjón- ustufrömuður og fyrrverandi forstjóri hins fallna flugfélags WOW air, og innanhúss- hönnuðurinn Gríma Björg Thorarensen byrjuðu saman árið 2017. Þá lék allt í lyndi hjá WOW air en Gríma var einmitt flugfreyja þar áður en hún hóf nám í innanhúss- hönnun í Bretlandi. Aldursmunur Skúla og Grímu vakti athygli þegar þau byrjuðu saman en 23 ár skilja á milli þeirra. Skúli er árgerð 1968 og er því 52 ára gamall en Gríma er 1991 árgerð og því 29 ára gömul. Skúli og Gríma hafa nú eignast barn saman, en drengurinn Jaki Mogensen fæddist í byrjun sumars á síðasta ári. Skúli á síðan þrjú börn úr fyrra hjónabandi. Baltasar og Sunneva Það vakti athygli í fjölmiðlum landsins þegar leikstjórinn knái Baltasar Kormákur og listakonan Sunneva Ása Weisshappel byrjuðu saman vorið 2019. Aldursmunurinn á Baltasar og Sunnevu vakti þá einnig athygli, en 23 ár eru á milli þeirra. Baltasar og Sunneva eru bæði algjörlega frábær á sín- um sviðum. Baltasar er auð- vitað einn frægasti leikstjóri okkar Íslendinga, bæði fyrr og síðar. Þá er Sunneva einn- ig mögnuð en hún vann til að mynda Grímuverðlaunin árið 2015 fyrir búninga í sýning- unni Njálu og hefur starfað mikið erlendis við búninga- hönnun með leikstjóranum Þorleifi Erni Arnarssyni. Þá hefur hún einnig sinnt mynd- bandagerð og kóreógrafíu fyrir leikhúsverk. n Ástin spyr ekki um aldur Samkvæmt rannsókn sem birt var í Journal of Population Economics verða pör óhamingjusam- ari þegar líður á sambandið ef aldursmunurinn er mikill. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kom fram að þegar fólk í parsambandi er nálægt hvort öðru í aldri eru minni líkur á að hamingjan renni þeim úr greipum. Máni Snær Þorláksson manisnaer@dv.is Mér finnst að fólk megi bara lifa sínu lífi og gera það sem gerir það hamingju- samt. MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM MYND/AÐSEND 20 FÓKUS 22. JANÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.