Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 27
TÍMAVÉLIN Með sérkennilegum hætti hefur einn helsti glæpamaður þjóðarinnar náð að verða ein- hver merkasti maður sinnar samtíðar. Franklín Steiner, margdæmdur eiturlyfja- sali, fær sérstaka meðferð í kerfinu, meðferð sem ekki þýðir fyrir almúgamenn að fara fram á. Þar er greini- lega ekki neinn Jón Jónsson á ferð.“ Framangreint ritaði Dagfari í DV árið 1998 í kjöl- far þess að upp komst að margdæmdur glæpamaður, Franklín Kristinn Steiner, hafði verið í upplýsingasam- bandi við fíkniefnadeild lög- reglunnar um árabil. Fæddur blaðamatur „Ég held að ég sé fæddur blaðamatur,“ sagði Franklín Steiner í samtali við DV árið 1999. „Ég var aðeins fimm daga gamall þegar ég komst á forsíðu heimspressunnar fyrir að vera yngsti maðurinn sem flogið hafði yfir Atlants- hafið.“ Franklín fæddist á sjálfan Valentínusardaginn árið 1947. Faðir hans var af indíánaættum og móðir hans var komin í beinan karllegg frá dómkirkjuprestinum í Reykjavík. Franklín bjó fyrstu sex ár lífs síns í Banda- ríkjunum, áður en hann flutti ásamt móður sinni til Íslands. Franklín hafði varla slitið barnsskónum í Reykjavík þegar hann komst fyrst í kast við lögin, en tæplega tvítugur var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi og næstu áratugi hafði Franklín bætt fleiri dómum á Íslandi í safn- ið, auk dóma í Danmörku og Svíþjóð. Allt fyrir fíkniefna- brot sem sum hver voru stór- felld. Furugrundarmálið Árið 1988 var Franklín hand- tekinn í máli sem kallað er „Furugrundarmálið“, en við það tilefni fundust yfir 100 grömm af hassi og eitt- hvað af amfetamíni á heimili hans. Hins vegar dagaði mál þetta uppi í kerfinu, frumrit rannsóknargagna hurfu og níu árum síðar gat enginn innan lögreglunnar svarað til um hvers vegna svona hefði farið fyrir málum. Til að gera málið enn vandræðalegra hafði Franklín viðurkennt að eiga fíkniefnin sem fundust að heimili hans í yfirheyrslu lögreglu. Málið var aldrei sent til ríkissaksóknara og Franklín var aldrei kærður. Þessi málalok þóttu afar tortryggileg, einkum í ljósi þess sem síðar kom fram og ekki var það eina málið þar sem hann kom við sögu sem virtist ekki hljóta hefðbundna meðferð í kerfinu. FÓKUS 27DV 22. JANÚAR 2021 Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is Fæddi blaðamaturinn Franklín Steiner ungur piltur var handtekinn með kíló af fíkniefnum eftir uppljóstrun Franklíns: Hið óeðlilega við handtökuna var að drengurinn hafði nefnilega upphaflega keypt fíkniefnin af Franklín, en hann var al- gjörlega friðhelgur.“ Blóraböggull Það var ekki fyrr en árið 1996 sem hann var hand- tekinn aftur og dæmdur í 20 mánaða fangelsi, eftir að 250 grömm af amfetamíni fund- ust á heimili hans. Furðu vakti að í málinu hafði annar maður gefið sig fram sem taldi sig eiga efnin. Hann gat hins vegar ómögulega munað nákvæmlega hvað þetta var mikið af efnum eða í hvaða ástandi. En þótti því ljóst að maðurinn hefði átt að gerast blóraböggull Franklíns. Ekki gekk sú áætlun þó eftir. Árið 1997 varð Franklín einn af umtöluðustu Íslend- ingum ársins, eftir að upp komst um samstarf hans við fíkniefnadeildina. Fengu þá um fjörutíu lögreglumenn stöðu grunaðra í rannsókn á meintum brotum í opinberu starfi og brotum gegn refsi- lögum. Rannsóknin beindist einkum að tveimur starfs- mönnum fíkniefndadeildar. Annar var sá sem hafði þrýst á dómsmálaráðherra að láta Franklín lausan til reynslu, og hins vegar lögreglumað- ur sem hafði kvittað upp á byssuleyfi Franklíns. Rann- sókn lauk þó með því að ekki þótti líklegt að sakfellingu yrði náð í málinu og það því fellt niður og ekki gefin út ákæra. Rannsókn var þó gerð á málefnum lögreglunnar og fundnir þar ýmsir annmarkar sem úr mætti bæta. Nei, ekki um jólin Franklín sjálfur átti á Þor- láksmessu 1997 að hefja af- plánun dóms síns, en tók það ekki í mál að sitja inni yfir hátíðirnar svo hann lét sig hverfa fram á nýárs- dag, þegar hann lét sjúkra- bíl sækja sig. Árið 1999 var Franklín aftur kominn heim í heiðardalinn og veitti DV viðtal í einbýlishúsi sínu. Þar greindi hann frá því að hann væri á framfæri félagsmála- yfirvalda í Hafnarfirði því hann væri hættur að selja dóp. Hvernig útskýrði hann umfram fjármagn sem hann hafði? Jú, hann hafði grætt svona svakalega á spilaköss- um og hann gat sko sannað það með kvittunum. „Ég er 52 ára og í fínu formi eins og allir geta séð, þrátt fyrir allt. Ég hef tekið út mína refsingu og nú vil ég halda áfram að lifa eins og ég á rétt á. En í guðanna bænum – látið mig í friði“ n Franklín Steiner var sagður njóta góðs af samstarfi við lögregluna. Hann lést árið 2013. MYNDIR/ TIMARIT.IS Reynslulausnin Ekki var heppnin með Frank- lín tveimur árum síðar, en þá hlaut hann 29 mánaða fang- elsisdóm fyrir fíkniefna- brot. Lögum samkvæmt áttu fangar, dæmdir fyrir fíkni- efnabrot, að sitja af sér að lágmarki tvo þriðju dómsins. Franklín hins vegar slapp eftir aðeins helminginn. Við nánari skoðun málsins kom á daginn að Franklín hafði sótt um reynslulausn, en verið neitað. Kvartaði hann yfir því við dómsmálaráðherra og fór sá fram á að erindi hans yrði aftur tekið til skoðunar. Var fallist samdægurs á reynslu- lausn án frekari rökstuðnings. Síðar var greint frá því að það hefðu verið starfsmenn fíkni- efnadeildar sem fóru þess á leit við dómsmálaráðherra að veita Franklín reynslulausn, þar sem hann hafði lofað upplýsingum í skiptum fyrir frelsið. Upplýsingarnar ollu þó vonbrigðum, en þá hafði þegar verið fallist á að frelsa Franklín. Árið 1992, þá enn á reynslulausn, var Franklín gripinn með fíkniefni í fórum sínum. Það mál dagaði líka uppi og Franklín fékk áfram um frjálst höfuð að strjúka. Dekraður fjölskylduvinur Það taldist vel þekkt stað- reynd í samfélaginu á þess- um tíma að Franklín væri umfangsmikill í eiturlyfja- sölu hér á landi. Þótti það því sæta furðu hversu lítil af- skipti fíkniefnadeildin hafði af starfsemi hans. Heim- ildarmaður Mannlífs sagði árið 1997: „Ég veit að það hafa verið fjölmörg tæki- færi til að taka Franklín með fangið fullt af fíkniefnum. Ástæðan fyrir því að þetta hefur gengið svona lengi er að hann er í beinu sambandi við lögregluna og gefur þeim upplýsingar sem þykja svo verðmætar að það sé ástæða til að láta hann í friði.“ Einn af heimildarmönnum Blaðsins, sem þekkti vel til starfsemi lögreglunnar, sagði árið 2006 að samband Frank- líns við fíkniefnadeildina hefði verið náið. „Mér ofbauð dekrið við Franklín Steiner. Það leit út eins og hann væri fjölskylduvinur. Málið sem fyllti mælinn var þegar Lögreglan átti í samstarfi við þekktan mann úr íslensku undir­ heimunum, samkvæmt gögnum sem nýlega var lekið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem svona mál kemur fram á sjónarsviðið. Í guðanna bænum – látið mig í friði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.