Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Side 28
M amma er endalaust búin að vera að tala um megrun núna á nýju ári. Hún ætlar í megr- un og vill að ég sé með. Ég er í „þykkum“ holdum en vil taka heilsuna föstum tökum á mínum eigin forsendum en ekki á forsendum mömmu. Það fer líka ótrúlega mikið í taugarnar á mér að hún sé alltaf að tala um að ég verði að fara í megrun og mér finnst þetta mjög trigger- andi. Hvernig kem ég skýr- um skilaboðum til mömmu? Megrun er tímabundið átak Hæ, hæ. Takk fyrir einlæga spurningu. Ég hélt að orðið „megrun“ væri ekki lengur í tísku en ég er svo sem enginn tískuspekúlant. Auðvitað eru orð bara orð, en mig grunar að mögulega sé það einmitt orðanotkunin, nálgunin og áherslan á líkamann sem þér finnst triggerandi. Ef svo er, þá gætu vinsamlegar ábendingar um viðeigandi orðanotkun verið góð byrjun á þessum skýru skilaboðum til mömmu þinnar. Í megrun felst tímabundið átak þar sem fólk reynir að létta líkama sinn. Rannsókn- ir hafa sýnt að tímabundið átak skilar ekki langvarandi árangri, þvert á móti getur það haft í för með sér aukna líkamsþyngd þegar til lengri tíma er litið. Breyttur lífsstíll og heilsusamlegt líferni er eitthvað allt annað, það getur skilað minni þyngd en fyrst og fremst betri líkamlegri heilsu og hún mælist ekki endilega í kílógrömmum. Tengsl líkamsímyndar dætra og mæðra Bein tengsl eru á milli líkamsímyndar dætra og líkamsí myndar mæðra. Það merkir að upplifun mæðra á sínum eigin líkama og það hvernig mæður tala um lík- amann við dætur sínar, hefur mjög mótandi áhrif á það hvernig dætur upplifa líkama sinn í framtíðinni. Í ykkar tilfelli getum við því líka verið að glíma við líkams- ímynd móður þinnar, óháð þér og þinni heilsu. Spurning þín hljómar á þann veg og kannski myndi því virka að snúa vörn í sókn og beina umræðunni að líkamsímynd móður þinnar frekar en þér? Fjölskyldufræðin leggja mikla áherslu á ólík kerfi innan fjölskyldunnar og nauðsyn þess að hafa skýr mörk milli kerfa. Mamma þín tilheyrir foreldrakerfinu og þú tilheyrir barnakerfinu, þó þú sért orðin fullorðin. Það merkir að þú munt alltaf vera barn móður þinnar og hegðun Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem er ekki alveg sáttur við mömmu sína. MYND/GETTY Sérfræðingur svarar MAMMA VILL FÁ MIG MEÐ SÉR Í MEGRUN og tengsl ykkar verða á þeim forsendum. Ef við skoðum hegðun móður þinnar, þá er klárt mál að hún er í hlut- verki mömmunnar og senni- lega að reyna að hlúa að þér, ala þig upp og segja þér hvað er þér fyrir bestu. En getur verið að hún sé komin yfir mörkin þín og inn í kerfið sem þú átt sem fullorðinn ein- staklingur og er henni óvið- komandi eftir að þú varðst sjálfráða? Skýrari rammi og mörk Það lærir engin fjölskyldu- fræði í grunnskóla. Við lærum að vera mömmur af okkar eigin mömmum og þeirri reynslu sem fylgir því að verða móðir. Þar gildir að stundum rekum við okkur á og sumt er bara erfiðara að tækla en annað. Eitt af því sem reynist mömmum erfitt er að slíta á naflastrenginn og sleppa takinu. Kannski standið þið mæðgur frammi fyrir frábærri raun, þar sem mamma þín þarf að losa um taumana og þú getur bent henni á að þú þurfir að fá að finna út úr þinni heilsu sjálf. Með því að beina samtalinu frá megrunarumræðunni yfir í skýrari ramma og mörk, gætuð þið verið að slá margar flugur í einu höggi. Af meðferðarvinnu með fjölskyldum hef ég lært að það er ekki mitt að segja fólki hvað það á að gera með sinn vanda. Ég reyni heldur að hjálpa fólki að finna sín- ar lausnir og aðferðir. Það sem hentar einni fjölskyldu hentar ekki endilega annarri fjölskyldu í sambærilegri stöðu. Það sama gildir um ykkur mæðgurnar. Mögu- lega hentar það mömmu þinni á þessum tímapunkti að fara í megrun, þú telur það ekki vera réttu leiðina fyrir þig. Þá er kannski réttast að vera sammála um að vera ósam- mála um hvað er ykkur fyrir bestu og veita hvor annarri frekar stuðning og hvatningu að þeim leiðum sem þið kunn- ið að velja sem einstaklingar. Ég treysti ykkur fullkomlega til þess að finna leiðir sem þið verðið ánægðar og hraustar með og óska ykkur góðs gengis á þeirri vegferð. n Bein tengsl eru á milli líkamsímyndar dætra og líkams­ ímyndar mæðra. 28 FÓKUS 22. JANÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.