Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Qupperneq 33
Elísabet Ormslev Vatnsberi 15. febrúar 1993 n Frumleg n Sjálfstæð n Mannvinur n Framsækin n Fjarlæg n Ósveigjanleg Sindri Þór Kárason Vog 6. október 1988 n Málamiðlari n Samstarfsfús n Örlátur n Félagsvera n Óákveðinn n Forðast deilur S unddrottningin Ragnheiður Ragnars-dóttir sýndi nýverið á sér nýja hlið sem stórkostleg leikkona þegar hún fór með stórt hlutverk í þáttunum Vikings. Ragga kem- ur fram sem Gunnhildur í seríu 5 og 6 en hægt er að horfa á þættina á Netflix. Ragga er fædd í lok október og er því Sporð- dreki. Það kemur ekki á óvart því Sporðdrekar eru þekktir fyrir að vera metnaðarfullir með mikinn drifkraft. Sporðdrekinn veit hvað hann vill og er óhræddur að sækjast eftir því. Sumir hræðast Sporðdreka því þeir eru ákveðnir og þurfa ekkert að fegra hlutina, heldur segja sína skoðun. Þeir eru afar ljúfir þegar þeir hleypa þér inn og tryggustu vinir sem fyrir finnast. Agi þeirra er aðdáunarverður en þeir þurfa að finna jafnvægi milli vinnu og heimilis. Drottning í sverðum Hugrekki | Sjálfstraust | Sjálfstæði | Félagslegt fiðrildi Drottning í sverðum er hugrökk og sjálfstæð. Hún hefur lært að setja sér mörk og standa með sjálfri sér. Mér finnst þetta mjög lýsandi fyrir þig en það hefur tekið smá tíma að komast á þennan stað sem þú ert á núna. Nú er uppskerutímabil, þér líður vel í eigin skinni, veist hvað þú vilt og hvert þú stefnir. Þú átt það til að vera of krítísk og hörð við sjálfa þig en ert samt að mestu komin yfir það og finnur fyrir mikilli ró. Riddari í sverðum Metnaðarfullur | Árangursdrifinn | Fljótur að hugsa Það er eins og prins á hvítum hesti ríði á ofsahraða í áttina til þín. Einhver jafningi hefur tekið eftir þér og það var ást við fyrstu sýn. Hvort þú hleypir honum inn eður ei er undir þér komið, en það er svigrúm fyrir mikla vináttu því þið eigið margt sameiginlegt og virðist hafa sömu gildi í lífinu. Það er sami drifkraftur í þessum ein- staklingi og í þér, mögulega eruð þið að vinna saman eða eigið eftir að gera það í nánustu framtíð. Drottning í bikurum Umhyggjusamur | Stöðugur | Innsæi | Flæði Þú sjálf kemur upp í þessu spili. Þú kafar meira inn á Skilaboð frá spákonunni Þú getur skapað rými fyrir þitt nánasta fólk og látið því líða vel en á endanum þarf það sjálft að bera ábyrgð á sjálfu sér. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Ragnheiður Ragnarsdóttir SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 22.01. – 28.01. Á hvítum hesti… Nýfundin ást MYND/VILHELM stjörnurnarSPÁÐ Í Söngkonan Elísabet Ormslev er nýlega gengin út. Sá heppni er hljóðhönnuðurinn Sindri Þór Kárason. DV lék forvitni á að vita hvernig þau eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Elísabet er Vatnsberi og Sindri er Vog. Vatnsberinn og Vogin eru bæði loftmerki og pörun þessara merkja er áreiðan- leg og sterk. Þau hafa bæði ríka tjáningarþörf og þörf fyrir að skiptast á hugmyndum og skoð- unum. Vogin elskar það þegar aðrir taka stefn- una og Vatnsberinn þrífst í leiðtogahlutverkinu. Þegar Vatnsberinn og Vogin koma saman og verða ástfangin, þá verða þau alveg virkilega ástfangin. Vogin tekur Vatnsberanum eins og hann er, sem skiptir hann miklu máli. Vatns- berinn getur hjálpað Voginni að losa um allar hömlur, sérstaklega í svefnherberginu. Þrátt fyrir að eiga margt sameiginlegt getur reynst þeim erfitt að aðlagast karakter hvort ann- ars en lykillinn er virðing. Á meðan þau bera virðingu fyrir hvort öðru er ekkert vandamál of stórt. Það er margt spennandi fram undan hjá parinu. n MYND/FACEBOOK Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. Loksins fara atvinnumál að detta í farveg og rútínu. Þú þarft aðeins að venjast því að vera meðal vinnufélaganna á ný og rifja upp hvað þau nú heita öllsömul og hvað þau gera innan fyrirtækis- ins. Þú nærð góðri einbeitingu í þessari viku. Naut 20.04. – 20.05. Persónulegur ávinningur er í kort- unum hjá Nautinu. Mikill kraftur með Nautinu þessa vikuna. Ég er leiðtogi lífs míns, er mantran þín, og þú ert spennt/ur fyrir komandi tímum. Allt upp á við og á réttri leið. Tvíburi 21.05. – 21.06. Tvíburinn er áfram smá tvístígandi og á erfitt með að taka ákvarðanir. Hvað á að vera í matinn reynist honum meira segja erfitt! Mundu bara eins og allt annað þá er þetta bara tímabil og líður hjá. Krabbi 22.06. – 22.07. Það er brjálað að gera! Og þú kannski ekki alveg nógu vel upp- lagður því þetta er óvænt og fljót breyting. Hvað getur þú gert til að hlúa að sjálfum þér og takast þar af leiðandi betur á við þessa skemmtilegu uppskeru sem er að flæða til þín? Ljón 23.07. – 22.08. Þú ferð í sleik við spegilinn – mikið lítur þú vel út beibí, frábært hár! Það er kominn tími fyrir smá sjálfsást og sjálfsöryggi. Haltu áfram að gera það sem þú ert að gera, það er að virka. Sjálfsöryggi hjálpar þér að takast á við öll önnur mál í lífinu. Meyja 23.08. – 22.09. Elsku Meyja. Þú, af öllum, ert meira segja komin með leið á því að skipuleggja og litaraða bók- unum heima hjá þér! Þér leiðist þessa vikuna og þráir eitthvað gott, nýtt og krefjandi verkefni. Prófaðu að biðja um meiri ábyrgð í vinnu og kannski bara stöðu- hækkun í leiðinni. Vog 23.09. – 22.10. Þú ert að flýta þér svo hægt inn í nýja árið að þú ferð í gegnum daginn hálfsofandi, vaknar aldrei alveg. Skelltu þér í sjósund eða plataðu vin að draga þig út að hlaupa, þig vantar smá spark í rass- inn til að koma þér betur af stað. Og mundu að taka vítamínin þín!! Sporðdreki 23.10. – 21.11. Ef þú deyrð á morgun viltu í alvöru að sellerídjús hafi verið það síðasta sem þú borðaðir? Á meðan við kunnum að meta agann þinn þá má nú líka alveg leyfa sér aðeins. Stjörnurnar hvetja þig til að lofa þér 1-2 svindldögum þú þarft á þeim að halda. Við lofum að segja engum. Bogmaður 22.11. – 21.12. Bogmaðurinn mun eiga eitt „aha„ móment á næstu dögum, hvað það verður sem mun valda því vitum við ekki nákvæmlega, en það mun hafa í för með sér jákvæðar breytingar. Stundum getur annað sjónarmið eða viska einhvers annars haft mikil áhrif á aðstæður. Steingeit 22.12. – 19.01. Okkur langar að gefa þér rafrænt „high five„ því það er eins og þú hafir verið a finna kúlið þitt aftur og þegar við meinum það þá meinum við þitt sanna sjálf og nýjan tilgang sem færir þér hamingju. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Við sjáum hér gæðastundir með vinum og fjölskyldunni, jafnvel bú- staðarferð og dagsferðir í sveitina. Áreynslulaus vika þar sem þú ert bara í flæðinu samviskulaust og nýtur hverrar mínútu. Þetta er kannski bara takturinn fyrir árið og ekki er það amalegt. Fiskur 19.02. – 20.03. Já, það er fullkomlega eðlilegt að þurfa frí eftir fríið sitt! Janúar er bara endalaus og dimmur, þú mátt eiga markmið í febrúar, í millitíðinni máttu bara vera í dýrseðlinu, borða þegar þú finnur til svengdar og sofa þegar þú þarft svefn. Netflix og chill fram undan... við og ferð inn í tímabil þar sem þú treystir innsæinu og getur stólað á það. Þú ert jarðbundnari en áður. Þessi orka laðar fólk til þín sem leitar jafnvel til þín eftir ráðum, innblæstri og stuðningi. Þegar þinn innri radar er svona virkur þá áttu auðvelt með að leyfa tilfinning- unum að ráða. Þú finnur strax innra með þér hvort þú eigir að velja eða hafna verkefnum, hvort fólk í kringum þig sé rétt fyrir þig eða ekki. Ekki efast um þessa krafta, þeir eru náðargáfa. Hér skiptir máli að rækta þessa gáfu og gefa þér tíma til þess að viðhalda henni með því að hugleiða eða jarðtengja þig á hverjum degi. FÓKUS 33DV 22. JANÚAR 2021

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.