Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2021, Síða 34
34 MATUR 22. JANÚAR 2021 DV Sjúkdómur sonarins varð kveikjan að jurtaástríðunni Sigurlaug Knudsen og Hildigunnur Einarsdóttir eru konurnar á bak við matarþjón- ustuna SONO matseljur, sem gerir hollan partímat sem minnir helst á listaverk. SONO matseljur er græn-metis- og vegan matar-þjónusta og „pop-up“ veitingastaður, nú opinn á Götumarkaðinum til 24. janúar. Kröftugu konurnar á bak við SONO matseljur eru Sigurlaug Knudsen Stefáns- dóttir og Hildigunnur Einars- dóttir. Það mætti lýsa réttum SONO matselja sem hollum partímat sem lítur út eins og listaverk. Mottó Sigurlaugar er „let food be thy medicine“ og segir hún að hugmyndin að SONO matseljum komi út frá því. „Þetta er um tólf ára gam- alt kerfi hjá mér, út frá því að sonur minn varð veikur. Svona kemur oft út frá ein- hverjum tragedíum, þar sem maður verður fyrir reynsl- unni,“ segir hún. Sonur hennar varð fárveik- ur af sjálfsofnæmissjúkdómi. „Mjög alvarlegum og var að berjast fyrir lífi sínu í langan tíma. Svo varð hann betri fyr- ir tilstilli læknisfræðinnar og hann kom heim, en allt í einu hrakaði honum svakalega, og þá fórum við að hugsa um hver orsakavaldurinn væri. Við byrjuðum á því að kíkja á matinn,“ segir Sigurlaug. Mjólkin hafði áhrif „Við höfðum ávallt borðað hollt þannig að við hugsuðum að þetta gæti verið eitthvað í matnum. Það er alltaf talað um mjólk, hveiti og sykur, og við byrjuðum að fjarlægja það fyrsta. Það reyndist vera akk- úrat málið, því þá sáum við honum strax líða betur. Þá var náttúrulega ekkert um annað að ræða en að þetta væri það. Enda ekki skrýtið því við vorum að fá mjólk beint frá bónda, ógerilsneydda. Þess vegna voru áhrifin svona áberandi,“ segir Sigurlaug og bætir við að út frá þessari reynslu hafi ástríðan fyrir hollri matargerð byrjað fyrir alvöru. „Ég fór að sjá hvaða áhrif mismunandi matur hafði á hann, hegðun hans og sjúk- dóminn. Út frá því fór ég að kafa dýpra í það sem ég hef alltaf haft áhuga á: jurtir, jurtafræði, heilsusamlegt líf- erni, ræktun og svona lagað. Ég fór að taka þetta skrefinu lengra og kanna hvaða jurtir væru góðar fyrir manneskju með sama sjúkdóm og hann. Þá kynntist ég alls konar nyt- samlegum jurtum. En þá stóð ég frammi fyrir öðru vanda- máli. Ég horfði á þessar jurtir og þetta pínulitla barn og hugsaði með mér, hvernig kem ég þessu eiginlega ofan í hann? Ekki gat ég látið hann japla á vallhumli,“ segir Sig- urlaug og hlær. „Þá voru góð ráð dýr og ég byrjaði í tilraunastarfsemi að setja jurtirnar í matinn, og það virkaði sem slíkt. Hann varð betri, en það spilaði margt inn í, eins og reglu- bundið líferni og að hugsa vel um líkamann. Í dag liggur sjúkdómurinn niðri en við vitum ekki hvort hann blossar upp aftur, en í dag er hann stálhraustur.“ Notar jurtir mikið Sigurlaug segir að jurtirnar hafi fylgt henni síðan þá í gegnum lífið. Eins og þegar hún fær kvef, er með hausverk eða eitthvað annað bjátar á. „Þá leita ég alltaf til jurtanna og alltaf geta þær hjálpað mér. Og þaðan kemur þetta. Ég hef ætíð verið heltekin af mat í öllum formum. Þetta varð bara sjálfkrafa næsta skref, að taka þessa nálgun á matinn. Að blanda lækninga- jurtum við mat.“ Matseljurnar kynnast Sigurlaug og Hildigunnur eru báðar tónlistarmenn og kynnt- ust í gegnum tónlistina. „Við vorum oft að vinna saman. Þegar maður situr á æfingum og þarf að bíða leiðist manni óskaplega, og þá hef ég oft tekið með mér einhverja matarbók eða uppskriftabók, og við Hildigunnur sátum oft hlið við hlið. Þarna kviknaði þessi sameiginlegi áhugi okkar, við fundum hvor aðra í okkur sjálfum og fórum að kafa meira í þetta. Fórum að bera saman bækur okkar og út frá þessu varð samstarf okkar til,“ segir Sigurlaug. Það er að verða komið ár síðan þær byrjuðu að vinna saman og viðbrögðin hafa farið fram úr björtustu vonum þeirra. Þær vissu að þær væru með eitthvað í höndunum eftir fyrstu „pop-up“ opnunina, sem þær voru með á Flateyri. „Þetta varð að einhverju æv- intýri sem sprakk í höndunum á okkur. Við höfðum ekki hug- mynd um að viðbrögðin yrðu svona. En það er greinilega eftirspurn eftir hollum jurta- og grænmetismat.“ Sigurlaug segir að það sé einnig meiri eftirspurn eftir grænmetis- og vegan fæði, þar sem sífellt fleiri eru farnir að minnka við sig kjötneyslu og neyslu á öðrum dýraafurðum, fyrir heilsuna, umhverfið og dýrin. n Vatnsmelónusalat Sigurlaug deilir hér einni af sínum uppáhaldsuppskriftum. „Einföld, holl og góð. Kannski eilítið sumar- leg. En stundum er sumar allt árið. Eða eins og ljóðið segir: „Sól í hjarta, sól í sinni,“ segir hún. 1 þroskuð vatnsmelóna Smá myntulauf, söxuð Nýtíndur þari (bóluþang er uppá- haldið mitt), annars ef þið nennið ekki að vaða sjóinn má stökkva út í búð og kaupa þarasnakk. Vegan fetaostur Skolið snögglega þangið svo enginn sandur eða annað lifandi fylgi með. Þurrkið bóluþangið, eða hvaða annað þang sem ykkur lystir, og setjið á ofnplötu með smá ólífuolíu yfir inn í ofn á blástur við 140 gráður í 15 mínútur. Fylgist vel með að ekki brenni. Við viljum bara þurrka þangið, ekki elda það. Skerið vatnsmelónuna í kubba og setið á fallegan disk (stundum skiptir útlitið máli). Myljið fetaostinn yfir miðjuna og skvettið sósunni yfir. Myljið þangið og hendið smá myntu yfir í lokin. Salatsósa 1 mál gott eplaedik 1 msk. myntuvatn (blómavatn, fæst í Istanbúl Market) 1 msk. hrásykur Salt og pipar eftir smekk Smá, þurrkuð birkilauf eða stein- selja Hrærið öllu saman. Vegan feta í legi 2 þurrkaðir chilli (eftir smekk) Börkur af 1 lífrænni sítrónu (ann- ars er hætta á að börkurinn sé sprautaður með eiturefnum) 4 þurrkuð lárviðarlauf Salt og pipar 2 bollar af ólífuolíu Vegan fetaostur Ristið á pönnu sítrónubörk, lár- viðarlauf og chilliflögur. Látið reykja (já, það verður hóstað) og kælið með góðri ólífuolíu. Bætið fetakubbum út í og látið standa í góða klukkustund eða jafnvel ein- hverja daga. Mér finnst Violife feta best í þetta. MYND/AÐSEN D Sigurlaug hefur ætíð haft áhuga á jurtafæði og heilsusam- flegu líferni. MYND/VALLI Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.