Víðförli - 15.11.1987, Blaðsíða 16

Víðförli - 15.11.1987, Blaðsíða 16
í fréttum Héraðsfundur í Ólafsfirði Um þrjátíu fulltrúar safnaða í Eyjafirði komu saman til héraðs- fundar í Ólafsfirði 5. sept. s.l. Fjallað var um starf innan pró- fastsdæmisins og kom fram í ræðu framsögumanns, sr. Péturs Þórar- inssonar, ósk um miklu margþætt- ara starf og fjölbreyttari starfshætti er hæfðu hverjum tíma. Gestur fundarins, sr. Bragi Frið- riksson, prófastur Kjalnesinga, greindi frá starfsháttum þar. Kirkju- þingsmenn hafa leiðarþing á miðj- um vetri og fræðslufundir eru með starfsmönnum safnaða. Fléraðs- sjóður kostar námskeiðahald innan fátækari safnaða. Verið er að móta sameiginlegar aðgerðir í prófasts- dæmunum í æskulýðsmálum. Unn- ið er að útgáfu hjálpargagna við hópstarf safnaða, sérílagi við Biblíu- lestur. Greinilegur áhugi kom fram hjá fundarmönnum að efla samstarf innan prófastsdæmisins með sem víðtækustum hætti. Mjög var rómaður viðgerningur heimamanna, og luku margir hér- aðsfundarmenn dvöl sinni þar með því að fylgjast með leik Leifturs frá Ólafsfirði og Einherja frá Vopna- firði í 2. deild, sem Ólafsfirðingar sigruðu enda nú komnir upp í fyrstu deild. Kirkjuhátíðir Þrjátíu ár eru liðin frá vígslu Hall- grímskirkju í Saurbæ. Var þess minnst með hátíðamessu 6. sept. þar sem Sigurbjörn biskup Einarsson predikaði. Tekin var og í notkun flóðlýsing í kirkjunni sem er gjöf Sigurjóns Hallsteinssonar bónda í Skorholti. Búðakirkja á Snæfellsnesi var vígð 6. sept. s.l. Þar er að kalla ný bygging, sem fylgir nákvæmlega gerð kirkjunnar sem byggð var 1848. Hafa þeir Hörður Ágústsson, mál- ari, Þór Magnússon, þjóðminja- vörður og Hjörleifur Stefánsson, arkitekt annast þá útfærslu. í söfnuðinum eru um 40 manns. Kirkjan rúmar 100 manns, en dugði þó ekki til að húsa þann mikla Búðarkirkja á Snæfellsnesi í nýrri gerð. mannfjölda er var við vígslu kirkj- unnar á einum fegursta degi sumars- ins að sögn sr. Ólafs Skúlasonar, er annaðist vígsluna. Hundruð manns tóku þátt í athöfninni bæði innan dyra og utan og vakti það athygli að nær allir gengu til altaris. En þátt- taka í kvöldmáltíðarsakramentinu hefur stóraukist upp á síðkastið hér- lendis. Safnaðarmenn hafa sýnt eftir- minnilegan kjark og dugnað við fjáröflun og byggingu kirkjunnar. Brottfluttir safnaðarmenn hafa ver- ið örlátir og fengist hafa opinberir styrkir. Sr. Rögnvaldur Finnbogason hefur veitt byggingarstarfinu forystu og samhæft krafta listafólks sem safnaðarmanna. Ný kirkja var vígð að Þóroddstöð- um í Köldukinn hinn 9. ágúst s.l. Er hún gerð eftir teikningu Þóris Bald- vinssonar arkitekts en honum entist ekki aldur til að fullgera þær og lauk Einar Fr. Jóhannesson byggingar- fulltrúi á Húsavík því verki. Að sögn Sigurðar Guðmundsson- ar, setts biskups sem vígði kirkjuna, er hún ákaflega stílhrein og falleg í einfaldleika sínum. Gamla kirkjan var rifin 1984 enda um aldargömul og illa farin. Bygging hins nýja guðs- húss hófst það sama ár. í söfnuðin- um eru um 140 manns. Myndarlegur fjárstuðningur hef- ur borist til kirkjunnar frá Elliheim- ilinu Grund í minningu Þóris Bald- vinssonar. Hafði hann annast teikni- vinnu fyrir Grund en vildi ekki þiggja laun fyrir, en gat þess að hann vildi að þess í stað yrði minnst kirkj- unnar í heimabyggð hans. 16 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.