Víðförli - 15.12.1989, Page 2

Víðförli - 15.12.1989, Page 2
Útgefandi: Útgáfan Skálholt Ritstjóri: Biskupsstofa, Suðurgata 22 Sími: 621500 Ritstjóri: Bernharður Guðmundsson Umsjón: Edda Möller Setning, umbrot, prentun: Filmur og prent Tveir nýir prestar Á kristniboðsdaginn 1989 vígði Biskup íslands, herra Ólafur Skúla- son tvo guðfræðinga til prestsþjón- ustu. Þeir eru: Bragi Ingibergsson, sem kjörinn hefur verið prestur Siglfirðinga. Hann Iauk guðfræðiprófi nú i vor. Faðir hans, sr. Ingiberg J. Hannes- son prófastur var meðal vígsluvotta. Eiríkur Jóhannsson, sem lauk guðfræðiprófi nú í haust og síðan kjörinn prestur í Skinnastað í Axar- firði, en sr. Sigurvin Elíasson sem þar hefur þjónað, hefur látið af emb- ætti vegna aldurs. Vígsluvottar auk sr. Ingibergs voru sr. Birgir Snæbjörnsson, próf- astur Eyfirðinga, sr. Örn Friðriksson prófastur Þingeyinga og sr. Vigfús Þór Árnason fyrrum prestur á Siglu- firði, nýskipaður prestur Grafar- vogssafnaðar í Reykjavík. Vígslan fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík og þjónaði sr. Jakob Ág. Hjálmarsson fyrir altari en Marteinn H. Friðriksson stýrði fjölbreyttri tónlist. Kirkjulegir starfsmenn frh. af bls. 30. hefur ekki efni á að Iáta krafta þeirra ónotaða á þessum vettvangi. Ég minntist í upphafi á, að kirkjan væri oft kölluð prestakirkja. í raun er í því fólgin mótsögn. Kirkjan er hvorki kirkja prestsins né heldur org- anistans, kórsins, sóknarnefndar- innar eða annarra hópa einstaklinga. Hún er kirkja Krists og safnaðar hans sem eiga samfélag í heilagri messu í orði og sakramenti. Þangað sækir öll þjónusta í kirkjunni styrk sinn og tilgang. Þröstur Eiríksson. Biskupinn skrifar: Hvenær hefst aðventan? Herra Ólafur Skúlason. Ákveðin mörk tímans eru okkur mjög Ijós. Áramót eru þar ofarlega á blaði. Allir vita um gamlárskvöld og ekki fer framhjá neinum, að daginn eftir er nýársdagur. Hitt hefur valdið mörgum erfiðleikum í ár að átta sig á því, hvenær aðventan hefst. Hafa margir staðið á því fastar en fótunum, að hún hœfist síðasta sunnudag í nóvember, en alls ekki3ja desember eins og rétt er. Og mér þótti gaman afþví, þegar ég var að kaupa blóm um daginn, að mér œtlaði alls ekki að ganga alltof vel að sannfœra afgreiðslu- fólkið um það, að aðfangadagur vœri fjórði sunnudagur í aðventu. Var mérsvarað með því að benda á það, að jólin hæfust jú á aðfangadag og því væri hann hluti jólanna. Enginn ber á móti því, að aðfangadagur er upphafsdagur jóíahátíðarinnar og er mikill dagur, svo hann varpar jafnvel skugga á sjálfan jóladaginn. En hann er engu að síður AÐFANGAdagur, ogsjálf jólin hefjastekkifyrren kl. 6að kveldihans. Enþá varforð- um talið, að nýr dagur hœfist en ekki á miðnætti eins og við látum skammta okkur ára- mót. Burtséðfrá ruglingi fólks varðandi upphaf aðventu, þá er ég hrœddur um, að helgi- haldfjórða sunnudags í aðventu gjaldi nálægðar messunnar að kveldi þess dags nú í ár. Minnist ég þess, að það þótti fásinna, þegar ég efndi til helgihalds klukkan ellefu að morgni aðfangadags, þegar hann bar upp ásunnudag eins og nú. Allir væru önnum kafnir, enginn mundi gefa sér tíma til að halda til kirkju. En það var nú öðru nœr. Kirkjan meira en fylltist, og húsmæður gáfu sér ekkert síður tíma en aðrir til að hefja fagnaðarsöng vegna vœntanlegrar hátíðar, enda þótt nóg biði þeirra í annríki undir- búningsins heima fyrir. Heiti ég því nú á presta og forráðamenn helgihalds að bjóða söfnuðum til guðsþjónustu fyrr en klukkan slœr sex að kveldi aðfangadags, þar sem þess er nokkur kostur, ogþað ætti að vera mögulegt íþað minnsta íþéttbýli víðast hvar. Það er ekki lítið fagnaðarefni, hve aðventan hefur fengið mikinn „kirkjusvip“ á síð- ustu árum. Fyrr minnkaði kirkjusóknin íréttu hlutfalli við nálægð jólanna. Nú flykkist fólk yfirleitt í kirkju sína flesta sunnudaga aðventu. Orsaka má víða leita, en ekki mun það síst, að kertin fjögur á kransinum telja með heimilisfólki sunnudagana og tengja kirkju. Kemur þar til sá hvati, sem virðist skorta á endranœr til að laða fólk til kirkju sinnar og helgihalds hennar. Hitt skiptir líka máli, að kirkjukórar og organistar veita ríkulegra tœkifæri en oftast endranœr til að hefjast til hæða á vængjum fagurrar tón- listar, sem aðkomufólk er oft kallað til að flytja með heimamönnum. En sjálfsagt er þriðja atriðið um kirkjusvip aðventunnarþýðingarmest. En það eru aðventuhátíðirnar eða aðventukvöldin. Víðast hvar fyrsta sunnuag í aðventu, en fleiri og fleiri í nálœgð margra safnaða hafa einnig helgað sér önnur sunnudagskvöld þessa miklu kirkjutíma í grennd jóla. Ég bið því söfnuðum öllum blessunar á þessum dýrlega aðventutíma. Vona ég, að enn sannist, að kirkjur fyllist fyrr en hringt er til jóla. Það þykir að vísu ekki fréttnœmt yfirleitt, þótt kirkjur séu vel sóttar. En enn meiri ástæða er til að rœkja þær vel núna, að við vitum, að margir henda á lofti gamla kvörtunartóninn um tómar kirkjur, enda þótt þeir tali títt hœst um slíkt, sem minnsta hafi reynsluna. En í vel ræktri aðventu er fólginn lykill sannrar jólagleði og þess friðar, sem allir viðurkenna, að einstaklingar sem þjóðirþarfnast helst. Það bjarmar víðar fyrir friði en fyrr, stuðlum að eflingu hans með bœnum okkar og sannri rœktarsemi við fyrirmæli Jesú Krists og fyrirmynd. Að- ventutíminn höfðar til okkar með kalli sínu um hann, sem kemur, sjálfur friðarhöfð- inginn. Olafur Skúlason. 2 — VÍÐFÖRLI

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.