Víðförli - 15.12.1989, Side 13

Víðförli - 15.12.1989, Side 13
hef Iært að það er meginmál hver viðhorf manns eru til starfsins. Ann- ars vegar má maður ekki verða of upptekinn af því, en hinsvegar verð- ur maður að sjá það i eðlilegu sam- hengi, og skapa sér vinnugleði út frá forsendum starfsins. Tökum blaðamennsku sem dæmi. Greinin sem ég skrifaði í gærblaðið er gömul og gleymd, maður sér þannig í raun lítið eftir sig. En um leið og lokið er þlaði dagsins, er farið að huga að blaði morgundagsins. Þetta eru forsendur blaðamennsku sem við verðum að lifa við og læra að njóta, það taka alltaf við nýir tindar, ný blöð, ný sköpun. Þetta er svipað í íþróttunum. Aðdragandi leiksins og leikurinn sjálfur fela í sér full- nægjuna, ekki sigurvíman. Hún var- ir stutt, strax í búningsklefanum fer maður að huga að næsta leik. Hvað með þá sem tapa og eru ekki í sigurvímu? Þeir huga líka að næsta leik, þar er þeirra tækifæri. Það er alltaf einhver von. Kennir trúin okkur það ekki? Þú ert nýgiftur öðru sinni og ný- orðinn afi. Hvernig fer það saman? Ætli þetta raski ekki ögn mynd- inni sem við blasir. Nýgiftur maður sem reynir að vera ungur í hlutverki afans! Nú er það fyrst að ég reyni ekki að halda í æskuna, hún er ekki eftir- sóknarverð í sjálfu sér, en ég reyni að vera ekki mjög gamall með því að halda mér við til líkama og sálar. Það er afar gaman að vera afi, mað- ur sér framvindu eigin lífs og hefur meiri tíma og þroska til að njóta og sinna fallegu barnabarni sem maður er stoltur af. Svo geturðu alltaf skil- að því til foreldranna, þegar barnið fer að gráta! í því felast forréttindin. En það er eitt af því besta við að komast á minn aldur að það er meiri tími til að sinna því sem manni er ná- komnast og þykir skemmtilegast. Fimmtugir menn eiga tuttugu ár í eftirlaun og mörgum finnst að litlu að stefna. Hvaða ráð getur þú gefið þeim af eigin reynslu? Ég á engin ráð handa öðrum, á nóg með sjálfan mig. En ég held að karlar á okkar aldri eigi ekki að láta nægjusemina drepa sig í dróma. Flest störf bjóða upp á skemmtileg verkefni ef maður ber sig eftir því, þótt það auki ekki mannvirðingar, eflir það sjálfsvirðinguna, sem er miklu mikilvægara. Ævintýri lífsins eru á næsta leiti og fjársjóðir þess allt í kring. Ég fer stundum inn í Kringlu og drekk þar morgunkaffið á laugardagsmorgnum. Þar sé ég æskuvinina ráfandi um með plast- poka, fólk sem ég hef ekki séð í ára- tug, en býr samt í sama hverfi. Það verða oftast fagnaðarfundir, en svona erum við einangruð í starfs- horninu okkar. Það þurfti félaga gamlan, sem býr nú í Ástralíu, til að ná okkur saman æskuvinunum. Við vorum eiginlega steinhissa að hafa ekki hist fyrr. Við þurfum að muna eftir því að við erum til, erum lifandi manneskj- ur sem þúum við þau forréttindi að eiga enn einn dag til að lifa. Ég vil ekki hugsa um að þessi dagur geti verið minn síðasti, heldur að hér er um tækifæri, tilboð að ræða sem ekki má kasta á glæ. Við eigum rýmri tíma flestir eftir fimmtugt. Hvernig væri að nota hann til að kynnast betur elskunni sinni og sjálfum sér og lífinu, einmitt nú þeg- ar áhyggjur af börnum, byggingum og brauðstriti eru færri. Hvernig mætir kirkjan þeim sem eru á þínu reki? Það góða við kirkjuna er að ég veit af henni. Hún er til staðar bæði í gleði og sorg. Hún er ekki uppá- þrengjandi en alltaf nálæg. Ég kann betur að meta hana eftir því sem ég eldist. Ekkert kemur í staðinn fyrir trúna. Það hefur lífsreynslan kennt mér. Hvað færa jólin fimmtugum manni? Ég hlakka til jólanna alveg eins og barnið. Það hefur ekki breyst. Það sem hefur breyst við jólin er að nú eru það ekki lengur gjafirnar eða maturinn sem er tilhlökkunin, held- ur kyrrðin, hátíðarbragurinn og boðskapurinn sjálfur. Áður lék ég aðalhlutverkið á jól- unum. Nú dreg ég mig í hlé. Ó, Drottinn, sagði dagatalið Hversu scelir eru þeir, sem hafa auga fyrir björtu hliðunum á tilverunni, eins og eigandi minn sem nú gleðst yfir því að hálf œvin hans er frarhundan í stað þess að ergja sig yfir því að bestu árin séu á bak og burt. VÍÐFÖRLI — 13

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.