Víðförli - 15.12.1989, Blaðsíða 15
það góða starf sem unnið er á áfeng-
isdeildum geðdeildanna á stóru
sjúkrahúsunum. Síst skyldi ég
gleyma samtökunum Vímulaus
æska, sem voru stofnuð 1986 að
bandarískri fyrirmynd af fulltrúum
SÁÁ og foreldrafélögum skólanna.
Markmið þeirra er að ná til foreldra,
og þar hefur Lionshreyfingin verið
mikill liðsmaður. Þeir hafa gefið út
námsefni fyrir skóla um vímuefni,
mjög myndarlegt og spennandi verk-
efni sem kallað er „Að ná tökum á
tilverunni“.
Vímulaus æska hefur síðan gefið
út námsefni fyrir foreldra þeirra
barna sem taka þátt í námsefni
Lionsmanna. Það kallast „Árið sem
kom á óvart“.
Hvernig taka foreldrar þessu?
Misjafnlega, mörgum finnst þetta
ekki koma sér við meðan allt leikur
í lyndi. En foreldrar barna í erfið-
leikum spara hins vegar hvorki tíma
né fyrirhöfn að fá okkur til hjálpar.
Það dapurlega er, að þau hefðu get-
að komið í veg fyrir vandann með
því að afla sér fræðslu fyrir fram og
bregðast við með réttum hætti, þeg-
ar vafasöm einkenni koma í ljós hjá
börnum þeirra.
Okkur hefur oft verið hugsað til
kirkjunnar, sem hefur aðgang að
nær öllum árgangnum í 7. bekk og
foreldrum þeirra við undirbúning
fermingarinnar. Nýleg könnun sýnir
að nær helmingur þeirra barna sem
eru í fermingarundirbúningi hefur
neytt áfengis, drykkjan færist æ neð-
ar. Er ekki fermingarfræðslan m.a.
tilboð safnaðarins til heimilisins að
undirbúa í sameiningu unglinginn
fyrir líf í mjög flókinni veröld. Hvað
segir það okkur að 90°7o nemenda í 9.
bekk neytir áfengis. Á að sætta sig
við það? Við vildum sjá kirkjuna og
kristnar hreyfingar eins og KFUM
sem samverkamenn til að bæta líf
fólksins, hjálpa því að losna frá
vímuefnunum. Það þarf að breyta
viðhorfi almennings, og það gerist
ekki sízt inni á heimilunum með að-
stoð skoðanamótandi aðila eins og
kirkjunnar.
Nú veit þjóðin um áfengisbölið en
fæst hún til að draga úr drykkju?
Nei, það virðist henni erfitt. Hún
hefur verið fús til að minnka reyk-
ingar mjög verulega, en áfengi er í
öðrum bás. Þó eru þar bjartar hlið-
ar.
Fyrir nokkrum árum var nær
ómögulegt að fá óáfenga drykki í
opinberum móttökum. Fólki var
næstum vísað í eldhúsið ef það bað
um slíkt. Nú eru fallegir óáfengir
drykkir oftast á boðstólum, t.d. hjá
Reykjavíkurborg, þar sem þeir eru
oftast glæsilegri ásýndum en þeir
áfengu. Nú er desemberdrykkjan sí-
fellt að færast í aukana, ekki síst með
jólaglögginu. Það er nú svo að
vinnufélagar vilja gjarnan finna
ástæður til að gleðjast saman t.d. á
aðventu, en má þá ekki bjóða upp á
óáfengt glögg, það ætti að vera sjálf-
sögð mannréttindi, sem við tölum
oft um.
Áfengisvarnarráð gaf einmitt ný-
lega út bækling með nokkrum upp-
skriftum af fallegum, bragðgóðum
óáfengum drykkjum. Má ég ekki
klykkja út með nokkrum slíkum til
nota á aðventu og jólum,. Það eflir
áreiðanlega gleði jóla, að draga úr
áfengisneyslu þá. Drukknir foreldrar
eru dapurleg andstæða við fagnað-
arerindi jólaguðspjallsins.
Tvær sögur
úr
daglegu
lífi
Á skólaárum var ég dyravörður á
Hótel Valborg á Akureyri. Það var i
eigu templara og bannað að taka
með sér áfengi þangað inn. Mér
áskotnuðust því margar áfengis-
flöskur, sem ég hellti úr. Eitt sinn lét
maður mig hafa svo fallega flösku
með sterkum glærum vökva að ég
tímdi ekki að farga henni. Félagar
mínir sem voru ekki miklir kunn-
áttumenn um áfengi leituðu eftir að
fá innihaldið, en ég sagðist sjálfur
ætla að njóta þess og skyldi bjóða
þeim til veislu. Nokkru siðar kallaði
ég á þá og sagði að nú væri tappinn
tekinn úr þeirri fögru flösku og bauð
þeim til drykkju. Það var geysi-
skemmtilegt kvöld og mikið fjör.
Þegar þeir fóru syngjandi um
miðja nótt, spurði ég þá á tröppun-
um:
„Hvernig fannst ykkur nú vatnið í
flöskunni?"
Sögumaður sr. Pálmi Matthíasson
Það var félagsmiðstöð í Noregi
þar sem aðsóknin var afar dauft Það
þótti ágætis úrræði að leyfa þar sölu
bjórs til að efla starfsemina. Það
tókst, alltaf fullt í félagsmiðstöðinni
þegar opið var og mikið fjör. Um
vorið hélt Æskulýðsráð bæjarins
uppskeruhátíð, þakkaði starfsfólki
frábær störf og ekki síst fyrir að selja
eingöngu óáfengan bjór allan vetur-
inn!
Oáfengar
uppskriftir
DRAUMUR HÆNUNNAR
10 sl appelsínusafi
3 sl Grenadine
I egg
Þeytist saman
ÓÁFENG JÓLAGLÖGG
70 sl rauðvín óáfengt KELLER
5 sl sítrónusafi
15 negulnaglar
5 kanelstangir
100 g rúsínur
30 afhýddar möndlur
sítrónubörkur af 4 sítrónum
Sjóðið við lágan hita í 20 mín.
Gott með piparkökum
Sögumaður: Ingimar Eydal
VÍÐFÖRLI — 15