Víðförli - 15.12.1989, Síða 18
Það verður að sinna
vel þeim sem syrgia
Nú þegar jólin, hátíð Ijóss og friðar eru framundan, er gleðin
og eftirvæntingin okkur flestum efst í huga. Og ósjálfrátt göng-
um við eflaust mörg út frá því að þessi gleði nái til allra og megni
að bægja burt hvers kyns raunum sem fylgja skammdegi og
myrkri.
Þegar við hugleiðum þetta nánar, vitum við þó að svo getur
aldrei orðið í Iífi allra. Sorgin knýr dyra hjá einhverjum á degi
hverjum. Og þau sár sem fylgja ástvinamissi gróa seint.
Ólöf Helga Þór hefur kynnst sorg-
inni oftar en einu sinni. Hún er 33ja
ára gömul og á hún ellefu ára gamlan
son. Hún starfar sem skólaráðgjafi í
Fellaskóla í Reykjavík.
Fyrir mann sinn missti hún fyrir
tíu árum síðan og seinni maður
hennar Iést fyrir rúmum tveimur ár-
um. Faðir hennar lést á sl. ári eftir
löng og erfið veikindi.
Hvemig skyldu jólin hennar vera?
Eftir að fyrri maðurinn minn dó,
héldum við mæðginin jól með fjöl-
skyldum okkar, foreldrum mínum
og tengdaforeldrum en saman höf-
um við haft hátíð, við tvö á heimili
okkar á Þorláksmessu. Eftir seinna
áfallið kaus ég að halda jólin á mínu
eigin heimili með syni mínum, þrátt
fyrir úrtölur fjölskyldunnar. Ég held
þau hafi verið hrædd við þá hugsun
að við værum ein á jólum með sorg
okkar.
Er hægt að gleyma sér í gleði jól-
anna, gleyma sorginni og söknuðin-
um?
Nei, þótt ég hafi reynt að bera
harm minn í hljóði þá er aldrei hægt
að gleyma sorginni, en jólaboðskap-
urinn hjálpaði mér oftast. Það má
kannski orða það svo að inn í myrk-
ur sorgarinnar kemur ljós vonarinn-
ar. Fyrstu jólin okkar einsömul voru
erfið. Eins og ég sagði þá vildi ég eiga
jólin heima. Þá stóðum við saman
og þegar gráturinn sótti að horfði
drengurinn á mig og sagði: „Gráttu
bara, mamma, það er allt í lagi.“
Gráturinn er útrás fyrir tilfinning-
arnar.
Hvernig líður þér nú þegar jólin
nálgast?
Jólin í fyrra voru betri en jólin þar
áður og nú finn ég til tilhlökkunar.
Það er ekki hægt að horfa fram hjá
jólunum. Samt fylla hugann alls
konar hugsanir, eins og það hvernig
jólaundirbúningurinn væri með
manninum mínum. Það er svo margt
í umhverfinu sem minnir á hann og
þær stundir sem við áttum saman.
Jólin eru oft kvíðvænleg vegna þess
að þá geta gamalkunnar, sársauka-
fullar tilfinningar sagt til sín.
Hvað getum við hin gert?
Það verður að sinna vel þeim sem
syrgja. Tilfinningin að vita ekki hvað
eigi að segja við syrgjendur fælir
marga frá. En orð eru oft óþörf,
faðmlög eða það að vera til staðar er
nóg. Lítil jólakveðja, stutt símtal eða
heimsókn yfir jólahátíðina gerir
mikið.
Hver er máttur bænarinnar á
sorgarstundu?
Máttur bænarinnar er mikill. Að
geta snúið sér til Guðs í sorg og ör-
vinglan er nauðsynlegt og veitir
huggun.
Ég starfa í samtökunum um sorg
og sorgarviðbrögð. Við komum
saman á þriðjudagskvöldum í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju á svo-
kölluðu opnu húsi. Við endum
kvöldin í kirkjunni á stuttri bæna-
stund fyrir þá sem vilja. Fyrir marga
er bænastundin ómissandi. Margir
sem sækja þessa fundi hjá samtök-
unum um sorg og sorgarviðbrögð
nálgast þar kirkjuna í fyrsta sinn eft-
ir útför ástvinar.
Hvernig birtist þér sorg drengsins
þíns?
Á brúðkaupsdaginn okkar var
hann níu ára gamall. Þá hafði hann
á orði að nú væri hann búinn að
eignast pabba. Þrem dögum síðar
var pabbi hans dáinn. Sorg hans var
yfirþyrmandi og kom fram á ýmsan
hátt. Honum fannst að Guð vildi
ekki að hann ætti pabba, fyrst þeir
væru báðir dánir. Það kom upp í
honum mikil hræðsta við dauðann
og hræðsla við að missa mömmu
sína líka. Hann hafnaði Guði og
hætti að fara með bænirnar sínar.
Þegar afi hans lá banaleguna fékk
hann að fylgjast með allri umönnun.
Hann sá afa sinn látinn og þá rann
upp fyrir honum að Guð gat líka ver-
ið góður og mildur. Hann linaði
þjáningar afa og tók hann til sín.
Hann sættist við Guð og fór aftur
með bænirnar sínar við kistu afa
sins.
Hver er hinn kaldi veruleiki ekkju
með barn á framfæri?
Það er margt sem mæðir á og er
áhyggjuefni sem snýr að samfélaginu
öllu. Þegar kona stendur ein uppi
með börn eftir fráfall eiginmannsins
blasa staðreyndir lífsins við.
Ekkjan á rétt á 3ja mánaða laun-
um mannsins sins. Síðan tekur vinna
við og i flestum tilfellum þarf ekkjan
18 — VÍÐFÖRLI