Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 20
að við getum frelsað okkur sjálf eða
með hugarleikfimi og sérstöku mat-
aræði náð að öðlast þann frið, sem
hann einn getur gefið.
Og þegar við höfum kynnst hon-
um persónulega, höfum ræktað trú
okkar á hann og lifum í lifandi sam-
félagi við hann þá getum við vegið og
metið hvort þau sem koma fram og
bjóða okkur betra Iíf byggja á kristn-
um grunni eður ei.
Kristur býður okkur nefnilega
besta lífið. Þegar við lifum i sátt við
hann, þurfum við ekki betra líf, þá
þurfum við ekki að leita í holan stein
til að fá fótfestu í lífi okkar.
Til að koma í veg fyrir útbreiðslu
slíkra falstrúarbragða þurfum við öll
að vera með í því að boða kristna trú.
Því berum við öil mikla ábyrgð á
boðun Guðs orðs. Ábyrgð okkar
beinist gagnvart því að vera vakandi
fyrir þeim öflum, sem leiða vilja
okkur afvega. Guð hefur kallað okk-
ur sem ráðsmenn á þessari jörðu. Öll
höfum við okkar hlutverk i lífinu, en
lífið eigum við að helga Guði og
þjónustan á að vera við Guð í hverju
sem við tökum okkur fyrir hendur.
Hann hefur gefið okkur lífið og allt
það frelsi, sem því fylgir að Iifa með
honum. En frelsi lífsins fylgir,
ábyrgð, sem hvílir á herðum okkar
ábyrgð gagnvart Guði. Ábyrgð á því
að þjóna Guði vel í öllum okkar orð-
um og gerðum og standa líka við
ábyrgð okkar gagnvart systkinum
okkar, sem búa þessa jörð með okk-
ur.
Ábyrgð gagnvart náunga okkar
kemur best fram eins og hún birtist
okkur í orðum Jesú í Matteusarguð-
spjalli, þegar hann talar um hina síð-
ustu tíma og endurkomu Mannson-
arins.
Þá segir hann: „Það allt sem þér
gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þér gjört mér.“
Þessi orð Jesú ættu að vera okkur
hvatning og mælikvarði kærleikans í
þeim heimi, sem reynir sífellt að leiða
okkur afvega, leiðir okkur í þá átt að
hugsa fyrst og fremst um okkur sjálf
og okkar eigin vellíðan, en ekki um
þarfir náunga okkar.
Stjörnuspádómur, tarotspil,
skyggnilýsingar, orkusteinar, anda-
lækningar, allt þetta sem okkur
býðst hjá þeim sem auglýsa betra líf,
það fjötrar okkur, beinir huga okkar
innávið í leit að einhverju fyrir
okkur sjálf, sem ekki er til.
Það er blekking, sem aðeins bygg-
ir á mannlegum mætti. Kirkjan og
samfélagið við Jesú Krist býður okk-
ur miklu betra líf.
Samfélagið við Jesú Krist einan
getur frelsað okkur undan fjötrum
heiðninnar, alveg eins og ekkert ann-
að getur frelsað heiðingja Afríku
undan óttanum við galdra, sjúk-
dóma og álög.
Látum því ekki aftur leggja á okk-
ur ánauðarok. Til frelsis frelsaði
Kristur oss. Og þessu frelsi höfum
við öll aðgang að, aðeins ef við vilj-
um þiggja.
Solveig Lára Guðmundsdóttir
Vandað efni byggir upp
Gefum góðar bækur í jólagjöf.
Fást í bókaverslunum um land allt.
Útgáfan
SKÁLHOLT
20 — VÍÐFÖRLI