Víðförli - 15.12.1989, Blaðsíða 22
Úr samnefndri bók eftir
dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup
Af hverju, afi?
Varstu ekki að spyrja um aðvent-
una? sagði afi.
Þeir voru búnir að drekka og
komnir í annað horn á stofunni.
— Það er skrýtið orð.
— Já, dálítið skrýtið. Þaðerheld-
ur ekki íslenska, heldur latína. Það
var málið, sem Ágústus keisari talaði
og Pílatus.
Þú manst eftir þeim?
Spurn í augum litla kúts.
— Ágústus er nefndur í jólaguð-
spjallinu og Pílatus í trúarjátning-
unni. Við skulum sleppa þeim núna.
Latína var töluð víða um lönd, þegar
Jesús fæddist, og lengi eftir það.
Rómverjar réðu yfir heiminum í
fornöld og þeir töluðu latínu. Þegar
fyrstu kristnu mennirnir fóru út í
löndin til þess að segja frá Jesú, urðu
þeir víða að tala latínu og skrifa
bækur á latínu. Og í margar aldir
urðu allir lærðir menn að kunna lat-
ínu. Eitt og eitt orð úr því gamla máli
hefur orðið íslenska. Aðventa er eitt
af þeim. Tíminn næst á undan jólun-
um heitir aðventa.
— Af hverju?
— Aðventa þýðir koma. Orðið
minnir á, að það er einhver að koma.
Hver heldurðu að það sé?
— Jólin. Eða Jesús?
— Já, Jesús. Og með honum jól-
in. Þegar hann kemur verða jól.
— En jólin eru ekki nærri komin.
— Nei, og við eigum ekki að fara
að halda þau strax. En við erum far-
in að búa okkur undir þau og hlakka
til þeirra. Nú manstu hvað aðventa
þýðir? Það þýðir: Jesús er að koma.
— Já, en er hann ekki kominn?
— Jú, einmitt. Hann er kominn
og þess vegna að koma. Nú er kvöld.
En á morgun, þegar ég vakna, lít ég
út um austurgluggann hér og sé að
það er að þirta í austrinu. Þá segi ég:
Það er kominn dagur. Og af því að ég
sé að dagurinn er kominn, veit ég að
hann er að koma. Það á eftir að birta
betur, sólin hækkar, þó að ég sjái
hana ekki. Þegar Jesús kom, þá varð
morgunn, þá var dagurinn kominn,
það birti á jörðinni. Síðan er hann að
koma með birtuna sína, daginn sinn.
Þetta vita þeir, sem trúa á hann. Þess
vegna eiga þeir aðventu. Þeir sjá
morgunbjarma á glugganum sínum.
Jesús er kominn, Jesús er að koma.
Það varð þögn. Vinur litli burraði
bílnum sínum af stað og tók sér
væna skorpu með hann á gólfinu.
— Hvað áttu marga bíla? spurði
afi.
— Ekki eins marga og Lalli.
Hann á fullt af bílum. Ég er búinn að
biðja pabba að gefa mér trukk í jóla-
gjöf. Og traktor. Ég sá líka stóra rútu
í búðinni. Kannski fæ ég svoleiðis
rútu. Lalli á ekki svo stóran bíl.
— Er ekki nóg að eiga einn bíl?
— Nei, það á enginn strákur bara
einn bíl.
22 — VÍÐFÖRLI