Víðförli - 15.12.1989, Qupperneq 25
Kirkj uþing
Kirkjuþing íslensku þjóðkirkj-
unnar var haldið í Bústaðakirkju í
Reykjavík dagana 17.—26. okt. sl.
Þetta var 20. Kirkjuþingið. Það
fyrsta var haldið í fundarsal Bind-
indishallarinnar við Fríkirkjuveg í
Reykjavík og hófst 18. okt. 1958
undir forsæti herra Ásmundar Guð-
mundssonar, biskups íslands. En
þetta 20. Kirkjuþing var það fyrsta
undir forsæti frænda hans herra Ól-
afs Skúlasonar, biskups íslands. Allt
til 1982 kom Kirkjuþing saman ann-
að hvert ár, þá voru þingfulltrúar 15,
auk þess biskup og kirkjumálaráð-
herra.
Frá 1982 hefur Kirkjuþing komið
árlega saman, þingfulltrúar eru 20,
auk þess biskup og kirkjumálaráð-
herra eða fulltrúi hans svo og vígslu-
biskupar með málfrelsi og tillögu-
rétt, en ekki atkvæðisrétt nema þeir
séu jafnframt kjörnir þingfulltrúar.
Það sem einkenndi nokkuð það
Kirkjuþing, sem nú er nýlokið, er að
kjörtímabili þess er að ljúka. Þess
vegna var nokkuð um það, að reynt
væri að þoka eldri málum áleiðis. Þá
lagði Kirkjuráð fram allmörg mál,
sum í skýrsluformi.
Alls urðu málin 34, þar af ein fyr-
irspurn. til biskups. Öll hlutu þau
þingræðislega afgreiðslu.
Helstu málaflokkar voru þessir og
fjöldi mála i hverjum flokki:
I. Skýrsla Kirkjuráðs, reikningar
og undirskýrslur alls 5.
II. Reglugerðir og frumvörp 5.
III. Mál er snerta innra starf kirkj-
unnar 14.
IV. Kirkju og siðfræðileg stefnu-
mörkun 4.
V. Hagsmunamál starfsmanna
kirkjunnar 2.
VI. Önnur mál 4.
„Það er ekkert smáræði sem hér er
til umfjöllunar í árlegu þinghaldi
Kirkjuþings, sjálfur grundvöllurinn
að andlegri velferð þjóðarinnar og
einn snarasti þátturinn í þjóðar-
menningu okkar er hér á dagskrá“,
sagði Óli Þ. Guðbjartsson, kirkju-
málaráðherra m.a. þegar hann ávarp-
aði Kirkjuþing.
Og vissulega eru það orð að
sönnu. Kirkjuþing fjallaði um merk
mál, sem vöktu athygli.
Mun ég nú reyna að gera grein fyr-
ir helstu málum en erfitt er að velja,
þó að valið verði að fara fram. Ég
mun halda mig við sömu skiptingu
málaflokka og áður eru nefndir.
I. flokkur
9. Mál. Skýrsla söngmálastjóra.
Embætti hans hefur um árin unnið
merkilegt starf, sem alþjóð þekkir
svo vel. Og nú er bætt einum þætti
við, stofnun barnakóra við kirkjurn-
ar, mikið uppeldisatriði, að því hefur
Glúmur Gylfason settur söngmála-
stjóri unnið mjög. En Haukur Guð-
laugsson söngmálastjóri þjóðkirkj-
unnar hefur verið i ársleyfi. Það
eina, sem skyggir á er skerðing, sem
fram kemur í frumvarpi til fjárlaga
1990 varðandi fjárveitingu til emb-
ættis söngmálastjóra. Er skorað á
Alþingi að hækka þessa fjárveit-
ingu.
8. Mál. Greinargerð sálmabókar-
nefndar um væntanlegt sálmahefti.
Jafnframt lagt fram fylgiskjal þar
sem m.a. er getið um hið mikla og
merkilega ritverk sr. Sigurjóns Guð-
jónssonar, fyrrv. prófasts um kann-
anir hans á sálmum í íslenskum
sálmabókum, sem hefur lengi legið
án þess að það komi fyrir sjónir al-
mennings, sem full þörf væri á.
II. flokkur
3. Mál. Drög að skipulagsskrá
Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Voru þau að mestu samþykkt þann-
ig, að nú er rýmkað svo um starfsemi
stofnunarinnar, að hún verður al-
gjörlega sjálfstæð og þarf ekki að
leita til Kirkjuráðs um ýmislegt í
daglegum rekstri sínum.
1989
7. Mál. Drög að reglugerð Jöfnun-
arsjóðs sókna.
Miklar umræður urðu um drögin
enda er Jöfnunarsjóðurinn starfi
kirkjunnar mjög mikilvægur. Rætt
var um, hvort hlutverk sjóðsins ætti
ekki í ríkara mæli að vera að styðja
við safnaðaruppbyggingu í hinum
einstöku söfnuðum landsins í stað
þess að huga mest að byggingu
kirkna og safnaðarheimila. Fram
kom að sjóðnum er settur afmark-
aður tilgangur með lögum og fram-
hjá þeim yrði ekki gengið. Samt var
niðurstaðan sú, að fullt tillit var tek-
ið til þess, að sjóðnum væri og ætlað
að styrkja safnaðaruppbyggingu
ásamt annarri kirkjulegri félags- og
menningarstarfsemi.
III. flokkur
6. Mál. Tilraunanámskrá ferming-
arstarfanna.
Fyrr á árinu samþykkti Prestastefna
íslands að námskráin yrði reynd
næstu tvö árin. Þau kjarnaatriði sem
farið verður í meðan á fermingar-
störfunum stendur eru: Kenningin,
breytnin og trúarlífið.
Þá er námskráin leiðbeinandi um
fjölda fermingarbarna í umsjá hvers
prests. Kirkjuþing samþykkti álykt-
un Prestastefnu íslands um nám-
skrána.
14. Mál. Safnaðaruppbygging.
Kirkjuþing hefur áður fjallað um
hana, 1987 og 1988. Kirkjuþing sam-
þykkti nú að safnaðaruppbygging
verði meginverkefni íslensku Þjóð-
kirkjunnar næsta áratuginn og til-
einkuð 1000 ára afmæli kristnitök-
unnar.
15. Mál. Þjóðmálanefnd.
Einnig það er mál frá fyrri þingum
— og hét þá Þjóðmálaráð kirkjunn-
ar. Nú samþykkti Kirkjuþing að fela
Kirkjuráði að skipa 5 manna Þjóð-
málanefnd, sem á að semja ítarlega
fjárhagsáætlun og greinargerð, um
hugmyndir sínar. Síðan yrði rætt um
framtíðarskipan þessara mála á
VÍÐFÖRLI — 25