Víðförli - 15.12.1989, Side 26
Þingmenn á Kirkjuþingi 1989.
Fremri röð: Margrét K. Jónsdóttir, Kristján Þorgeirsson, Gunnlaugur Finnsson, sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, Herra Ól-
afur Skúlason biskup, sr. Jónas Gíslason vígslubiskup, sr. Jón Einarsson, HaUdóra Jónsdóttir.
Aftari röð: Sr. Þórhallur Höskuldsson, Halldór Finnsson, sr. Einar Þór Þorsteinsson, Jón Guðmundsson, Ottó A. Michelsen, sr.
Þorbergur Kristjánsson, sr. Jón Bjarman, sr. Árni Sigurðsson, sr. Hreinn Hjartarson, Guðmundur Magnússon, sr. Sigurjón Einars-
son, Ingimar Einarsson, sr. Jón Ragnarsson.
Kirkjuþingi 1990. Þjóðmálanefnd er
ætlað að hafa frumkvæði að um-
ræðu um ýmis þjóðmál út frá kristn-
um forsendum bæði í söfnuðum
landsins sem á opinberum vettvangi.
16. Mál. Könnun á kirkjusókn og
óskum um messutíma.
Kirkjuráð lagði þessa könnun fram,
sem Félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands gerði að frumkvæði þess, sam-
kvæmt samþykkt Kirkjuþings 1988.
Á Kirkjuþingi kom fram, að hér
væri aðeins stigið eitt skref í viða-
miklu máli og því beint til presta
landsins og Kirkjuráðs að nýta sér
vísbendingar þær, sem könnunin
leiðir í ljós til frekari úrvinnslu.
IV. flokkur
4. Mál. Ályktun um líffæraflutning
og skilgreiningu dauðastundarinnar.
Málinu fylgdu 3 ítarlegar greinar-
gerðir eftir sr. Braga Skúlason,
sjúkrahúsprest, dr. Gunnar Krist-
jánsson, sóknarprest og sr. Ólaf Odd
Jónsson, sóknarprest.
í þessu efni samþykkti Kirkjuþing
m.a. að láta fara fram athugun á
þeim siðfræðilegu sjón-
armiðum, sem hér tengjast og samin
verði fræðileg álitsgerð um efnið.
Hér er bryddað upp á flóknu og
vandasömu efni, sem búast má fast-
lega við, að fjallað verði um á næstu
þingum og raunar í heilbrigðiskerf-
inu og meðal almennings enda er um
að ræða þær stærstu siðfræðilegu
spurningar sem menn standa frammi
fyrir um þessar mundir.
22. Mál. Hjónabandið.
Hér var hreyft við máli sem hefur
komið fram á Kirkjuþingi allt frá
1982. í umræðum kom fram, að
helst virtist sem unnið væri leynt og
ljóst gegn hjónabandinu t.d. í skatta-
málum, dagheimilismálum, lánum
til húsnæðiskaupa, námslánum, rétt
á barnabótum o.fl.
í þessum málum er verið að fara
fram á nefnd til þess að kanna ýmsa
félagslega þætti er snerta hjóna-
bandið og gera tillögur um úrbætur.
Kirkjuþing samþykkti slíka nefnda-
skipun.
27. Mál. Ofbeldi og eiturlyfja-
neyslu.
í greinargerð flutningsmanns er get-
ið um hversu geigvænlegt vandamál
er um að ræða. Hann gat þess, að í
sumar hafi verið greint fá því, að í
Reykjavík einni hefðu 2200 árásir,
þjófnaðir og spjöll verið kærð til
lögreglunnar á fyrri hluta þessa árs.
Tillagan, sem Kirkjuþing sam-
þykkti, „hvetur stjórnvöld, leiðtoga
kirkjunnar og þjóðina alla til sam-
eiginlegs átaks til að sporna gegn of-
beldi, eiturlyfjaneyslu og hvers kon-
ar ögrun við líf og hamingju
manna“. Ennfremur „að Kirkjuráð
beiti sér fyrir samstarfi kirkjunnar
26 — VÍÐFÖRLI