Fréttablaðið - 02.02.2021, Side 8

Fréttablaðið - 02.02.2021, Side 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Að stöðva nú loks birtingu myndbands, sem hann sjálfur stóð fyrir án þess að kanna sannleiks- gildi þeirra aðdróttana sem þar birtust, er ekki stór- mannlegt útspil hjá Bolla Kristins- syni. Allir voru sammála um þetta góða markmið. Vandinn er sá að þetta góða markmið hefur ekki náðst. ára Hatursorðræða hefur verið töluvert í umræðunni undanfarin misseri og þó að merking orðsins liggi svolítið í þess hljóðan, er lagaleg skilgreining þess sú að um sé að ræða orðræðu sem hvetji til ofbeldis eða saknæms athæfis gegn einstaklingi eða hópi sem nýtur verndar laganna. Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, situr nú undir ákæru fyrir að egna stuðningsmenn sína til árásar á þinghús Bandaríkjamanna. Í beinu fram- haldi af þeirri árás lokaði samfélagsmiðillinn Twitter á aðgang forsetans fyrrverandi vegna aukinnar hættu á að hann væri notaður til að kynda undir ofbeldi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rann- sóknar skotárás á bifreið Dags. B. Eggertssonar, borgar- stjóra Reykjavíkur, við heimili hans í miðbænum. Dagur sem setið hefur sem borgarstjóri frá árinu 2014 hefur þurft að þola óvægna gagnrýni á störf sín og persónu á þeim tíma en segja má að baráttan um miðbæinn hafi verið blóðugri en efni hafi staðið til. Þar fer fremst hópur sem kallar sig Björgum miðbænum sem birti myndband þar sem Óðinstorg og heimili borgarstjóra, þar við, er gert að aðalatriði. Það er borgarfulltrúinn Vigdís Hauksdóttir sem les undir myndbandinu ásakanir hópsins á hendur Degi, um valdníðslu, skuldasöfnun og bruðl, en Bolli Krist- insson, fyrrverandi verslunarmaður við Laugaveg og einn þeirra sem hæst hafa haft vegna málefna Mið- bæjarins, er einn forsvarsmanna hópsins. Þegar leitað var til forsvarsmanna hópsins undir lok síðasta árs stóðu þeir við þær ásakanir sem fram koma í myndbandinu en borgarstjóri hafði þó hrakið efnislega. En nú, þegar myndbandið hefur verið harð- lega gagnrýnt sem vopn í hatursorðræðu og fjöldi fólks hefur tíundað áhyggjur sínar af því að myndbandið gæti hafa leitt til téðrar skotárásar á einkabíl borgar- stjóra, var það loks tekið niður. Var það gert með þeim orðum Bolla Kristinssonar að hann harmaði eina rangfærslu sem þar hefði birst. Efni þeirrar rangfærslu sannreyndi Bolli ekki fyrir birtingu en segist hafa fengið heimildir í gegnum síma og verið tjáð að þær væru áreiðanlegar. Nú þegar hver sá sem býr yfir sæmilegri nettengingu getur haldið uppi efnisveitu á veraldarvefnum er næsta ómögulegt að hafa taumhald á umræðunni. Einhverjir kenna athugasemdakerfum fjölmiðla um aukna hörku, en þar grasserar á tíðum vægast sagt ómálefnaleg umræða og vilja að slökkt sá á því. En er það lausnin, að takmarka frelsið til skoðanaskipta? Þurfum við ekki frekar að sjá til þess að þeir, sem birta rangfærslur ofan í rangfærslur að hætti Trumps, axli ábyrgð á þeim? Að stöðva nú loks birtingu myndbands, sem hann sjálfur stóð fyrir án þess að kanna sannleiksgildi þeirra aðdróttana sem þar birtust, er ekki stórmannlegt útspil hjá Bolla Kristinssyni. Orðum fylgja ábyrgð og þeim sem gerast sekir um hatursfulla orðræðu skyldi gert að svara fyrir hana. Ríkislögreglustjóri hefur látið hafa eftir sér að slík slóð sé könnuð við rannsóknir glæpa og er það vel. Enda eru orð til alls fyrst. Trump er víða Hreint loft skiptir okkur öll máli. Hrein borg. Svifryk hefur ítrekað farið yfir heilsuvernd-armörk, en talið er að fjölmörg ótímabær dauðsföll eigi sér stað vegna þess. Umhverfisstofn- un Evrópu telur að allt að 60 dauðsföll megi rekja til svifryks hér á landi. Einmitt þess vegna lögðum við til og fengum samþykkt 4. september 2018 að svifryk færi ekki yfir heilsuverndarmörk. Allir voru sammála um þetta góða markmið. Vandinn er sá að þetta góða markmið hefur ekki náðst. Farið yfir strikið Endurskoðuð viðbragðsáætlun borgarinnar um loftgæði, hefur ekki tryggt að þessum markmiðum borgarstjórnar hafi verið náð heldur þvert á móti hefur magn svifryks í Reykjavík ítrekað farið yfir heilsuverndarmörk, að minnsta kosti 25 sinnum eftir einróma samþykkt borgarstjórnar frá 2018. Þetta staðfesta tölur frá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur. Svifrykið burt Við leggjum til í borgarstjórn að farið verði í aðgerðir. Í fyrsta lagi er lagt til að auka þrif á götum borgarinnar. Sem dæmi má nefna að miðborg Oslóar er þrifin sjö sinnum viku á meðan miðborg Reykjavíkur er þrifin tvisvar til þrisvar í viku. Stofnbrautir þrifnar 24 sinnum á ári í Osló á meðan í Reykjavík eru þær þrifnar tvisvar til þrisvar á ári. Í öðru lagi leggjum við til bættan viðbragðs- tíma snjómoksturs þá sérstaklega í efri byggðum. Í þriðja lagi er lagt til að þeir sem ekki notast við nagladekk fái afslátt af stöðugjöldum í gjald- skyldum stæðum borgarinnar, þannig að þeir sem eru á nagladekkjum greiði meira en þeir sem eru naglalausir. Þessar þrjár aðgerðir eru hófstilltar og algjörlega á forræði borgarinnar sjálfrar. Það er því einboðið að borgarstjórn standi jafn einhuga að þessum framförum eins og því meginmarkmiði að svifryk fari ekki yfir viðmiðunarmörk í borginni. Er ekki kominn tími til? Bætum loftið í borginni Eyþór Arnalds oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík Dagur og Gagnamagnið Íslendingum hefur fjölgað um einn Damon Albarn. Eru allir ánægðir með að það hafi verið hann en ekki Gallagher-bróðir. Það sem helst hefur velkst fyrir fólki er hvaða f lokkatenging hafi komið honum í gegn. Þótt hann sé úr austurhluta Lundúna er hann of ríkur til að vera mikill vinstrimaður, hann er þó fylgj- andi ESB og á móti stríðsrekstri. Er það þó ekki Framsókn því slíkt þekkist ekki í siðmennt- uðum löndum. Mannanafna- nefnd tók hann fyrir og heitir hann nú Dagur Aldan Ketilsson. Það er þó klausa í ríkisborgara- réttinum; að taka þátt í Eurovisi- on fyrir okkar hönd. Senjorítudúkkur og saxbauti Í nýju frumvarpi fjármálaráð- herra er ráðgert að tollverðir fái auknar heimildir til að fara í gegnum farangur ferðalanga í því skyni að takmarka hryðju- verkaógn. En heimildin á að gilda fyrir hvort tveggja þá sem koma til landsins og fara frá því. Verður heimilt að gramsa eftir senjorítudúkkum og míníat- úrum með göróttum vökva frá Magalúff, allt til að koma í veg fyrir að hryðjuverk verði framin á arinhillum og fráleggsborðum landsmanna. Þá verður einnig hægt að tryggja að hangilæri og saxbauti í dós frá KEA verði ekki f lutt á annað menningar- svæði þar sem enginn kann að meta þetta hnossgæti. 2 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.