Fréttablaðið - 02.02.2021, Page 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
Það færist í vöxt að vilja úthýsa þeim sem hafa hættulegar, rangar, óskynsamlegar eða
jafnvel bara heimskulegar skoðan-
ir. Smátt og smátt eru skoðanirnar
og fólkið sem þær hefur úthrópað,
svívirt, smánað og bannfært. Þetta
verður æ algengara og eðlilegra
með hverju árinu sem líður. Við
hættum að malda í móinn og sam-
þykkjum útskúfunina svo lengi
sem hún beinist ekki að okkur
sjálfum.
Sumt virðist saklaust. Sígaretta
er fjarlægð úr munnviki Bubba
Morthens utan á Borgarleikhúsinu.
Bjórdósir með mynd af reykinga-
manni eru fjarlægðar úr Vínbúð-
unum. Maður getur þó varla annað
en brosað yfir íroníunni í því að
ríkið banni ljósmynd af reykjandi
manni utan á áfengisdós, í ríkis-
verslun sem selur einungis áfengi
og tóbak.
En svo heldur þetta áfram og
vindur upp á sig. Fólki sem gagn-
rýnir sóttvarnareglur eru gerðar
upp annarlegar hvatir og sjálfur
forseti Bandaríkjanna er látinn
hverfa sporlaust af samfélags-
miðlum. Nú ætla alþingismenn að
setja fólk, sem talar heimskulega
um Helförina, í tveggja ára fangelsi.
Í nafni umburðarlyndis og
manngæsku stígur fram fólk, með
ríkari réttlætiskennd en aðrir,
sem vill hafa vit fyrir hinum.
Það virðist þekkja betur en aðrir
hvaða skoðanir eru rangar og
segja skerðingarnar nauðsynlegar
til verndar þeim sem eiga undir
högg að sækja. Afleiðingin er sú að
tjáningarfrelsið sjálft á undir högg
að sækja.
Ótal margir hafa óæskilegar
skoðanir, en rétt þeirra til þess að
tjá þær þarf að verja fram í rauðan
dauðann. Í tjáningarfrelsinu felst
nefnilega einnig rétturinn til þess
að hafa rangt fyrir sér. Að standa
vörð um tjáningarfrelsið, felur í sér
að standa vörð um réttinn sjálfan
en ekki skoðanirnar.
Rétt eða rangt? GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
GERÐU FRÁBÆR KAUP FYRSTUR KEMUR – FYRSTUR FÆR
30%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM VÖRUM
Í VERSLUN
OUTLET ÚTSALA
30-70%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM
30 ÁRA
AFMÆLI
SVEFNS & HEILSU
30 ár eru síðan eigendur
byrjuðu með innflutning
á heilsudýnum.
Af því tilefni bjóðum við
upp á frábæra afslætti!
Góð
hvíld
10
0%
SV
EFN – 100% HEILSA
100%
SVEFN – 100%
HE
IL
SA
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
Fáðu Fréttablaðið
sent rafrænt í
morgunsárið
Þú getur skráð þig á
frettabladid.is,
á Facebook eða bara
skannað QR kóðann
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut