Fréttablaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 10
FÓTBOLTI Á sama tíma og stuðn-
ingsmenn Barcelona njóta þess
að fylgjast með Lionel Messi leika
listir sínar inni á vellinum er félag-
ið í fjárhagsvanda. Um helgina lak
samningur Messi við Börsunga á
netið og kom þar í ljós að hann er í
sérflokki á heimsvísu þegar kemur
að launagreiðslum. Eitt ár er eftir
af samningi Messi við Börsunga
sem myndi eflaust knésetja félagið
ef hann væri mikið lengri og áhrif
kórónaveirufaraldursins á efnahag
félagsins myndu halda áfram.
Sögu Messi og Barcelona þekkja
f lestir knattspyrnuáhugamenn.
Hann kom sem pjakkur með draum
til Spánar og varð að goðsögn innan
herbúða Barcelona þar sem hann
hefur unnið alla þá titla sem eru
í boði. Einvígi hans og Cristiano
Ronaldo náði einnig út fyrir völl-
inn þar sem frammistaða þeirra
rökstuddi hærri launakröfur. Nú
síðast skrifaði Messi undir fjögurra
ára samning árið 2017 sem rennur
út næsta sumar og gæti argentínski
snillingurinn yfirgefið Barcelona
frítt í sumar. Sjálfur vildi hann yfir-
gefa Barcelona í fyrra en Börsungar
sögðu hann enn eiga eitt ár eftir
af samningi sínum. Með því varð
Barcelona skuldbundið til að greiða
Messi tæplega 140 milljónir evra á
sama tíma og skuldastaða félagsins
er rúmlega milljarður evra.
„Samningurinn sem Messi gerði
við Barcelona árið 2017 er stjarn-
fræðilegur á allan hátt. Þegar hann
er undirritaður stendur Messi á
þrítugu og er á þeim tíma besti leik-
maður heims (ásamt Ronaldo) og
er auðvitað í guðatölu í Barcelona.
Þannig Bartemou, forseti Barcelona
vildi gera allt sem í hans valdi stóð
til að halda honum ánægðum,“ segir
Jóhann Már Helgason sem hefur
rannsakað fjármál félaga og skrifaði
skýrslu um fjárhag íslenskra félaga.
„Sama tímabil voru tekjur Barce-
lona 910 milljónur evra sem á þeim
tíma var met í heimsfótboltanum.
Samkvæmt gagnalekanum á samn-
ingi Messi mun hann þéna 550 millj-
ónir evra á þessum fjórum árum
sem gera 137,5 milljónir evra á ári.
Þannig launakostnaður Messi einn
og sér var því rúmlega 15 prósent
af heildartekjum félagsins. Ef við
tökum aðra stórklúbba eins og FC
Bayern, Man. Utd eða Man. City eru
launahæstu leikmennirnir að taka á
bilinu 2-3 prósent af heildartekjum
liðanna.“
Jóhann tekur undir að þetta virð-
ist vera dæmi um óheilbrigt sam-
band milli launa og tekna.
„Samkvæmt áreiðanlegum miðl-
um er heildarlaunakostnaður Barce-
lona um 400-450 milljónir evra, en
sú tala er ekki sundurliðuð í opin-
berum gögnum félagsins. Það að
einn leikmaður skuli þéna á bilinu
30-35 prósent af heildarlaunapakka
félagsins er fáheyrt og í raun mjög
óheilbrigt fjárhagslega. Vissulega
græðir Barcelona gríðarlega miklar
fjárhæðir á Messi sjálfum en mér
finnst einstaklega erfitt að sjá þetta
dæmi ganga upp nema tekjunar
vaxi meira en þær hafa gert.“ – kpt
Óheilbrigt að einn maður sé með þriðjung heildarlaunanna
Messi skoraði
650. mark sitt
fyrir Börsunga
um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Árslaun Messi hjá
Barcelona duga til að stað-
greiða eina Hörpu og ætti
Messi þá milljarð aflögu.
Hann virðist oft
vera kominn á
beinu brautina en þá er
aldrei langt í
næsta atvik.
Úlfar Jónsson,
PGA-kennari
2 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
GOLF Stimpill illmennisins virðist
fastur við kylfinginn Patrick Reed.
Hinn þrítugi Reed vann sitt níunda
mót á ferlinum um helgina þegar
hann vann nokkuð öruggan sigur á
Farmers Insurance mótinu á PGA-
mótaröðinni. Umtalið snýst hins
vegar ekki um fimm högga forskot
og góða spilamennsku Reed.
Á laugardeginum sást hann taka
upp boltann áður en dómari mætti
á svæðið þegar meta átti hvort bolt-
inn væri sokkinn undir yfirborð
jarðar. Atvikið sást greinilega í sjón-
varpsútsendingum og sást boltinn
klárlega skoppa en vallarstarfsmað-
ur sem Reed ræddi við sagðist ekki
hafa séð boltann skoppa. Dómarinn
mat sem svo að boltinn hefði sokkið
niður og gaf Reed heimild til að færa
boltann en ákvörðun Reed um að
fjarlægja boltann áður en dómari
kom á svæðið hefur vakið mikla
reiði.
Í yfirlýsingu frá mótaröðinni kom
fram að Reed hefði ekki gerst sekur
um að brjóta reglurnar en keppi-
nautarnir eru f lestir ósáttir. Xan-
der Schauffele sem lenti í öðru sæti
sagði í viðtölum eftir mót að móta-
röðin héldi hlífiskildi yfir Reed og
sagði aðra spilara ekki sátta. Fyrir
tveimur árum var Reed tvisvar
gripinn við að hrófla við sandinum
í sandgryfju til að auðvelda næsta
högg og dómnefnd ákvað að ávíta
hann með vítahöggum. Þá steig
Brooks Koepka fram og gagnrýndi
Reed fyrir að svindla.
„Það má alveg taka undir það að
þetta orðspor Patricks er ekki að
hjálpa honum. Hann hefur alveg
ótrúlega oft lent í einhverju svona
og þessar aðstæður virðast leita
hann uppi. Á sama tíma er merki-
legt hvað hann virðist ef last við
mótlætið,“ segir Úlfar Jónsson,
margfaldur Íslandsmeistari í golfi
og PGA-kennari, aðspurður hvort
orðsporið væri að hafa áhrif á
umræðuna til samanburðar við
Írann Rory sem gerðist sekur um
sömu mistök.
„Það er augljóst að boltinn hjá
Reed hoppar eftir lendingu, sem
gerir það nánast ómögulegt að hann
geti grafist niður það mikið að kalli
á fría lausn. Hann tekur boltann
upp og samkvæmt golfreglunum
er það klárt brot og hann ætti að fá
víti. Dómarinn hins vegar sleppir
honum við vítið, sem er óskiljan-
legt og ekki til framdráttar fyrir
PGA-mótaröðina.“
Slíkar sögur hafa einkennt feril
Reed sem var sakaður um að fara á
mis við reglurnar á sambærilegan
hátt í háskóla þegar hann lék fyrir
University of Georgia. Liðsfélagar
hans sáu hann reyna að skipta um
bolta og síðar var hann sakaður um
að hafa stolið af liðsfélögum sínum
en Reed hefur alltaf neitað þessu.
Hann skipti um skóla og leiddi
Augusta State til sigurs í banda-
ríska háskólagolfmótinu tvö ár í
röð áður en hann gerðist atvinnu-
maður. Hann hefur átt nokkuð far-
sælan feril sem atvinnukylfingur
en hegðun hans utan vallar hefur
iðulega veitt honum greiða leið að
forsíðum fjölmiðlanna. Í miðjum
Ryderbikar árið 2018 fór Reed í
viðtal þar sem hann gagnrýndi val
fyrirliða bandaríska landsliðsins
og sagði augljóst að kylfingar vildu
ekki spila með honum, sama ár og
hann húðskammaði sjónvarps-
tökumann á miðjum hring.
Þá var foreldrum hans vísað af
vellinum á Opna bandaríska meist-
aramótinu árið 2014 en hann hefur
ekki rætt við neinn innan fjölskyldu
sinnar í rúm átta ár. Innan vallar er
hann meðal bestu kylfinga heims.
„Það er á margan hátt erfitt að
halda með honum þótt hann sé frá-
bær kylfingur. Hann spilar leikinn
á mjög fágaðan og fallegan hátt,
hvernig hann slær boltann og stýrir
honum. Hann er ekki að negla bolt-
anum eins og sumir á mótaröðinni.
Það er fallega hliðin á honum en svo
kemur þessi hlið. Það er gerð krafa
um heiðursmennsku í öllum íþrótt-
um og sérstaklega golfi og hann
virðist nokkuð reglulega vera að
dansa alveg við línuna. Hann virðist
oft vera kominn á beinu brautina en
þá er aldrei langt í næsta atvik.“
Aðspurður sagðist Úlfar ekki vera
viss hvort einhverjar af leiðingar
yrðu af málinu.
„Ég er hissa á því að það virðist
ekkert bíta á hann og hann virðist
vera með mikið svigrúm. Fyrirtæki
og styrktaraðilar halda í hann þrátt
fyrir þetta orðspor.“
Fyrir vikið er hann ekki allra eins
og sást bersýnilega árið 2018 þegar
Reed vann sinn fyrsta risatitil í bak-
garði æskuheimilis síns.
„Ég man eftir að ég var að lýsa
Mastersmótinu árið 2018, þegar
hann vinnur fyrsti risatitilinn og
það í nágrenni við æskuheimili sitt.
Hann átti frábært innáhögg til að
vinna mótið á átjándu og það mátti
heyra saumnál detta, með tíu þús-
und áhorfendur. Þetta var ótrúlegt.“
kristinnpall@frettabladid.is
SPORT
Óþokki íþróttarinnar í sviðsljósinu
Kylfingurinn Patrick Reed vann sitt níunda mót á PGA-mótaröðinni um helgina en hegðun hans á vellinum er enn og aftur til um-
ræðu. Upptaka náðist af Reed þar sem hann tók boltann upp án aðkomu dómara en slíkt þykir á afar gráu svæði í golfíþróttinni.
Það fer vel á með Patrick Reed og meðreiðarsveinum hans en aðrir eiga ekki jafn vel upp á pallborðið hjá kylfingnum umdeilda. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY