Fréttablaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 32
Til stóð að þessi bíll yrði frum-
sýndur um þetta leyti í fyrra en
vegna COVID-19 faraldursins
hefur frumsýning hans dregist
mikið. Hann er nú loksins
kominn til landsins og þó að
breytingar á ytra byrði séu ekki
miklar er óhætt að segja að hann
er allt annar bíll undir niðri.
Renault Captur er nú tengiltvinn-
bíll með tækni sem kemur beint úr
Formúlu 1. Sú tækni kallast E-Tech
og byggir á tveimur rafmótorum
sem hjálpa 1,6 lítra bensínvél í
gegnum sex gíra sjálfskiptingu.
Sjálfskiptingin er nokkuð sér-
stök því að tveir gírar hennar eru
tengdir rafmótor en fjórir bensín-
vélinni. Í raun og veru eru fyrstu
tveir gírarnir ekki lengur til staðar
við bensínvélina þar sem þeirra
gerist ekki lengur þörf. Bíllinn fer
alltaf af stað á raforkunni einni
saman og nær nægum hraða til að
fá bensínvélina inn þegar komið er
á meiri hraða.
Hugmyndin hjá Renault var að
koma með tvinnbíl sem hagaði
sér eins og raf bíll, án þess að
vélin sé að snuða eins og gerist í
tvinnbílum við mikið átak. Það
virðist hafa tekist hjá Renault
en það sem gerist í staðinn er að
bílinn er lengi í gírunum þegar
honum er gefið vel inn í staðinn.
Er það vegna þess að skiptingin
er framkvæmd með því að láta
rafmótorinn jafna hraða vélarinn-
ar við hraða bílsins til að mýkja
skiptingarnar. Þarf því að slá
aðeins af til að bíllinn skipti sér
fyrr. Þegar maður er búinn að
venjast þessu er bíllinn skemmti-
legur í upptaki, en þetta er sem
sagt ekki bíll sem er f ljótari upp
með því að ökumaður setur
bensíngjöfina í botn, heldur þarf
hann að spila aðeins á hana.
Bakkgírinn er ekki til staðar því
að rafmótorinn sér algerlega um
það. Hægt er að stilla bílinn í fjórar
akstursstillingar og er MySense sú
skynsamlegasta og krefst minnst
af ökumanni. Sport-stillingin nær
mestu út úr samspili rafmótors og
vélar en í Pure-stillingunni ekur
hann aðeins á rafmagninu. Með
því að nota E-Save-stillinguna er
bensínvélin eingöngu notuð til
að spara rafmagn þegar geyma
þarf notkun þess fyrir akstur
innan borgarmarka til að mynda.
Kosturinn er 65 km drægi rafhlöð-
unnar sem ætti að duga flestum í
hefðbundnum borgarakstri til að
keyra nær eingöngu á rafmagninu,
allavega að sumri til.
Gott pláss í sætum
Að innan er bíllinn svipaður
öðrum Renault-bílum með lóð-
réttum 9,3 tommu miðjuskjá í
Intens+ útgáfunni. Uppsetning
hans er notendavæn og auðvelt
fyrir hvern sem er að nota hann en
hann líður aðeins fyrir að bregðast
seint við fingri notandans.
Í mælaborðinu er svo 10 tommu
skjár fyrir hraðamæli og þess
háttar og komin er þráðlaus síma-
hleðsla í miðjustokkinn. Miðað við
stærð er pláss fyrir farþega með
ágætis móti og þokkalega fer um
fullorðna í aftursætum sem er plús.
Plássið í farangursrými er aðeins
265 lítrar sem er með minnsta
móti en hólf fyrir hleðslusnúru og
þess háttar taka sitt pláss til við-
bótar við rafhlöðuna.
Það sem undirritaður fann helst
að bílnum í akstri var hversu lítið
útsýni er úr honum og þá sérstak-
lega aftur í. Afturrúðan er lítil og
hliðarrúður að aftan líka vegna
afturhallandi þaksins. Auk þess er
aftursæti það aftarlega að sá sem
situr þar og horfir til hliðar horfir
beint í C-bita bílsins. Ekki er hægt
að slökkva á fjarlægðarskynjara
öðruvísi en með því að setja í hlut-
lausan.
Fáir samkeppnisaðilar
En hvaða samkeppni er til staðar
fyrir smærri gerð jepplings í tengil-
tvinnútgáfu?
Þeir sem komast næst honum
eru Kia Niro PHEV og Mini
Countryman SE. Mini-bíllinn er
talsvert dýrari eða frá 6.990.000
kr. svo að hann er ekki sam-
keppnishæfur en Kia Niro PHEV
er það hins vegar með verðið frá
4.890.777 kr. Verðið á Captur
PHEV byrjar í 4.690.000 kr. og vel
búin Intens+ útgáfa með BOSE-
hljómkerfi, íslensku leiðsögukerfi
og 360 gráðu myndavél kostar
4.990.000 kr. Renault Captur
verður aðeins í boði hérlendis í
tengiltvinnútgáfunni svo ekki er
hægt að sjá hversu dýrari hann
er miðað við hefðbundna útgáfu.
Eftir stendur að hér er boðlegur,
framhjóladrifinn jepplingur í
tengiltvinnútgáfu vel undir fimm
milljónum sem er góð formúla til
vinsælda hérlendis.
Vinningsformúla Renault
Nýr Renault Captur PHEV er snarpur af stað og lipur í akstri. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Með rafmótorinn og 1,6 lítra bensínvélina fram í er sléttfullt í vélarsalnum.
Undir gólfinu eru hólf fyrir hleðslu-
snúru og fleira og því er gólfið slétt
miðað við opnun skottloksins en
plássið er aðeins 265 lítrar.
Fullorðinn farþegi í aftursæti sér ekki mikið þegar hann lítur til hliðar en
fótarými er með ágætum.
Rúmtak: 1.598 cc
Hestöfl: 160
Tog: 348 newtonmetrar
Upptak 0-100 km: 10,1 sek.
Hámarkshraði: 172 km/klst.
Eyðsla bl. ak.: 1,5 l/100 km
CO2: 34 g/km
Drægi rafhlöðu: 65 km
L/B/H: 4.227/1.797/1.576 mm
Hjólhaf: 2.639 mm
Farangursrými: 265 l
Eigin þyngd: 1.564 kg
Renault Captur PHEV 4.690.000 kr.
KOSTIR
n Eyðsla
n Drægi rafhlöðu
GALLAR
n Útsýni aftur í
n Farangursrými
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Reynsluakstur
Grunnverð:
2. febrúar 2021 ÞRIÐJUDAGUR10 BÍLABLAÐIÐ