Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2017, Side 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2017, Side 26
25GENGIÐ Á REKA – FORNLEIFAFRÆÐI MANNALDAR Þá drífur að úr ókunnum áttum og þeir vitna ekki um menningarlegar aðstæður á fundarstað. Hugtök eins og uppruni, tegund, og gerðfræði, verða því beinlínis fjarstæðukennd andspænis stöðugu reki, niðurbroti, volki, og nýsköpun þessara hluta. Þeir neita því að láta fella sig við eina skilgreiningu eða tjóðra sig við einn uppruna. Hreyfanleiki, dreifing, árekstrar og samblöndun menningarstrauma hafa reyndar lengi verið viðfangsefni fornleifarannsókna, ekki síst undir áhrifum kenningaramma síðnýlendustefnu (e. post-colonialism). Slíkur hreyfanleiki orsakast hins vegar iðulega fyrir beint tilstilli manna. Hann getur vissulega verið valinn eða þvingaður, en hann má engu síður rekja til vísvitandi gjörða og athafna manna, og það er þangað sem við sækjum merkingu. Með öðrum orðum, hlutir ferðast ekki á eigin vegum. Ef þeir gera það, líkt og í tilviki hafreks, er það gjarnan álitið vera fyrir mistök, og ferðir þeirra breytast í glötun, afvegaleiðingu, mengun o.s.frv. Þetta á raunar ekki bara við um hluti. Ferðir fólks í nútímasamfélagi eiga helst að falla að ákveðnum reglum, þar sem uppruni og áfangastaður eru skýrt skilgreindir.44 Að vera á f lakki er beinlínis neikvætt og tortryggilegt að f lestu leyti, en þess verður ekki síst vart í umræðu um Sígauna og Rómafólk. Það má vera að söluskrifstofur slái um sig með slagorðum á borð við, „it’s the journey, not the destination“ – en raunin er önnur. Að vera á stöðugu f lakki, hvorki að koma eða fara, án uppruna eða áfangastaðar, er litið hornauga, ef það er ekki benlínis ólíðandi, í nútímasamfélagi. Flakk og rek, tilviljunakenndir árekstrar og samblöndun, óljós uppruni og óræðir áfangastaðir eru „vandamál“ sem hlutgerast í rekafjörunni og áskoranir sem fornleifafræði mannaldar þarf að takast á við. Ekki þó einungis í þeim tilgangi að leysa úr þeim, leiðrétta „afvegaleiðingu“, rekja uppruna og koma hlutum á réttar brautir, heldur einmitt til þess að leita á nýjar brautir þar sem rek og f lakk hafa tilgang og merkingu. Með því að taka alvarlega hvernig hlutir ferðast á eigin vegum, með fulltingi hafstrauma, sólarjóss og vinda, annarra hluta og dýra, má leitast við að skilja hvernig ómennsk sambönd, eru mikilvæg og merkingarbær í sjálfu sér. Og í kjölfar þess fylgir líka að skoða hvernig snyrtileg og skipulögð framvinda tímans er kannski sjónarspil fremur en púsluspil. Það er, að óreiða rekafjörunnar sé ef til vill ekki aðeins til vitnis um afvegaleiðingu og glötun, heldur um upplifun og framvindu tímans á öllum tímum.45 44 Þetta á raunar ekki bara við um nútímann, samanber viðhorf til utangarðsfólks og flakkara fyrr á tímum. 45 Þ.e. þótt þetta verði svo bersýnilegt í efnisheimi fjörunnar eru tímaflakk og rek fyrirbæri sem geta ekki síður átt við um önnur og hefðbundnari fornleifafræðileg samhengi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.