Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2017, Page 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 2017, Page 27
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS26 Menning, náttúra og litir fjörunnar Síðasta áskorunin sem mig langar að nefna varðar samband manns/ menningar og náttúru. Umfangsmikil þekking innan fornleifafræðinnar á því hvernig þessu sambandi hefur verið háttað og hvernig það hefur þróast í gegnum aldirnar er gjarnan nefnt í umræðunni um fornleifafræði mannaldar.46 Vísbendingar um beislun náttúrunnar og áhrif mannsins á umhverfi sitt í fortíð, veita mikilvæga þekkingu sem nýtist til aðgerða í samtíð og framtíð, en varpar einnig ljósi á skilgreiningu mannaldar, hvar eigi að setja upphaf hennar o.s.frv. Eins og umfjöllunin hér að framan bar með sér má hins vegar halda því fram að „tími mannaldar“ geri einmitt uppreisn gegn slíkum tímasetningum, gegn skýrum línum um upphaf og uppruna. Í raun má segja að, þrátt fyrir hina sjálf lægu nafngift setji mannöldin spurningarmerki við það öndvegi sem mannskepnunni er skipað, við hið sjálf læga sjónarhorn mannsins og mikilvægi mannmiðaðrar menningarsögu. Mannöldin er ekki síður ómennsk og hún er mennsk. Sé litið til hafreks er greinilegt að það verður ekki nema að mjög takmörkuðu leyti skýrt með vísan til beinna aðgerða eða vísvitandi ákvarðana manna. Eigi að nálgast reka og rekafjörur er óhjákvæmilegt annað en að horfa til atbeina hlutanna sjálfra, og tengsla milli ómennskra fyrirbæra; milli plastpoka, netadræsa og rekaviðar, niðurfalla, máva, strauma, hafíss, hitastigs, útfjólublárrar geislunar, og aðdráttaraf ls tunglsins. Það er mikilvægt að undirstrika að það að færa mannskepnuna úr öndvegi þýðir ekki að fría hana ábyrgð með nokkrum hætti. Sé það ekki gert er hins vegar hætt við að allar tilraunir til þess að grípa til aðgerða verði grundvallaðar á sömu sjálf lægu hugmyndinni um mannskepnuna sem ýmist tortímanda eða verndara umhverfis síns og náttúru. Það er, að náttúra og menning séu skýrt aðgreind svið47, og náttúran því eitthvað sem býr þarna úti, handan menningar, og er í eðli sínu náttúrulegt og ómengað, líkt og ímyndin um Surtsey. Bandaríski umhverfis-heimspekingurinn Tim Morton48 kallar þessa ímynd náttúrunnar „Náttúru“, með stórum staf, og segir hana einn stærsta fjötur umhverfisstefnu og -pólitíkur samtímans. Við þurfum umhverfisvitund og vistfræði án „Náttúru“, segir hann.49 Félags- og mannfræðingurinn Bruno Latour hefur einnig fjallað um það hvernig nútíma-umhverfisvitund hefur krísuvæðst vegna þess að við búum 46 Sjá t.d. Guttmann-Bond 2010, Van de Noort 2011, Hudson o.fl. 2012, Rockman 2012. 47 Sjá t.d. Solli o.fl. 2011, LeCain 2015. 48 Morton 2007, 2010. 49 Morton 2007.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.