Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 48
Efnisútboð
Faxaflóahafni óska eftir tilboðum í eftirfarandi
verkefni:
Faxaflóhafnir
Verbúðabryggja
Harðviður 2021
Tilboð felur í sér efnisútboð á söguðum harðvið og
staurum fyrir endurgerð Verbúðabryggju í Reykjavík.
Magntölur:
Sagað Azobe: 88 m3
Sagað Azobe, rásað: 30 m³
Greenheart staurar,
14 and 15 m: 81 m3
Afhending skal vera DAP (skv. Incoterms 2010) og
afhendist fyrir lok maí 2021 eða eigi síðar en 12
vikum eftir staðfestingu tilboðs.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðs vefsíðunni,
AjourSystem, mánudaginn 8. febrúar 2021 kl. 10:00.
Hlekkur á vefsíðuna má finna á vefsíðu
Faxaflóahafna:
http://www.faxafloahafnir.is/utbodsverk/
Tilboðum skal skilað inn á sömu útboðssíðu eigi
síðar en 1. mars, 2021, kl. 10:00. Auglýsing
efnisútboðsins er auglýst innan EES auk þess að
vera auglýst innanlands.
Enginn formlegur opnunarfundur verður haldinn, en
niðurstöður verða sendar til bjóðenda þegar opnun
tilboða er lokið.
Almennt útboð
Utanhússframkvæmdir við
Dalbæ á Dalvík
Dalbær heimili aldraðra á Dalvík Dalvíkurbyggð óskar
hérmeð eftir tilboðum vegna ýmissa utanhússframkvæmda
við Dalbæ. Framkvæmdirnar eru þessar helstar:
1. Allir útveggir eldri bygginga heimilisins eru einangraðir
með 50 mm einangrun og klæddir með múrkerfi og
málaðir – magn 700 m².
2. Öllum gluggum og nokkrum útihurðum eldri bygginga
heimilisins er skipt út fyrir áltimbur glugga og útihurðir.
3. Klæðning á þakköntum eldri bygginga heimilisins er
endurnýjuð - magn 200 m².
4. Ný 45 m² steinsteypt viðbygging á tveimur hæðum á milli
setustofu og matsalar.
5. Hlaðið er uppí nokkra glugga og gönguhurðir í eldra húsi.
6. Nýtt 6 m² timburþakskyggni yfir suðurinngangi efri hæðar
á milli austur- og vesturálmu.
7. Svalir stækkaðar um 15 m² til suðurs. Svalastækkunin er
úr timbri.
8. Viðgerð og málun útveggja, glugga og útihurða utanhúss
í starfsmannaaðstöðu og matsal, veggflötur 400 m².
Bjóðendum er boðið til kynningarfundar í húsnæði
Dalbæjar við Kirkjuveg á Dalvík Dalvíkurbyggð, þriðjudaginn
9. febrúar 2021, kl. 13:00 og verða þar fulltrúar verkkaupa og
hönnuður. Í framhaldi af fundinum gefst bjóðendum kostur á
að skoða aðstæður á væntanlegum verkstað.
Nálgast má útboðsgögn frá og með föstudeginum 5. febrúar
2021 með því að senda fyrirspurn á agust@formradgjof.is
og óska eftir gögnum á rafrænu formi. Gefa þarf upp net-
fang, símanúmer og kennitölu bjóðanda.
Tilboðum skal skila í afgreiðslu Ráðhúss Dalvíkur á 1. hæð
fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 23. febrúar 2021 og verða
tilboðin opnuð í fundarsal á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
kl. 11.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Til þess að tilboð séu gild skulu bjóðendur vera í skilum með
lífeyrissjóðs- og stéttarfélagsgjöld, öll opinber gjöld ásamt
öðru því sem tilgreint er í útboðslýsingu útboðsins.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
Dalbær heimili aldraðra
Kirkjuvegi
640 Dalvík
ÚTBOÐ
Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum
í framkvæmdina:
STEKKJASKÓLI, NÝR GRUNNSKÓLI Í ÁRBORG -
HÚSBYGGING, Útboð nr. U2006052.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í byggingu fyrsta áfanga nýs skóla í Björkur-
stykki á Selfossi. Byggingin er í nýju hverfi sem er í
uppbyggingu sunnan við núverandi byggð á Selfossi.
Byggingin er steypt, tvær hæðir auk kjallara/lagnagangs
og er fyrsti áfangi 2500m² að grunnfleti. Mannvirkið er
klætt að utan, með steyptri loftaplötu og viðsnúnu þaki.
Verkið felst í uppsteypu og fullnaðarfrágangi hússins
bæði úti og inni.
Þegar verkið hefst verður búið að framkvæma stóran
hluta jarðvinnu (gröftur fyrir húsi og frágangur
jarðvegspúða undir undirstöður) en nánar er um það
fjallað í útboðsgögnum. Þá hefur verið lokið við
að afmarka vinnusvæðið með girðingu.
Helstu stærðir og magntölur eru:
• Birt flatarmál 4.560 m²
• Heildar rúmmál 14.110 m3
• Malarfylling 4.900m3
• Steypumót 11.000 m²
• Steinsteypa 2.300 m3
• Bendistál 245.000 kg
• Utanhúss klæðning 2.040 m²
• Þakfrágangur 2.330m²
• Gólfdúkur 3.260m²
• Frárennsli 1.400m
• Neysluvatn 1.600m
• Vatnsúði 2.600m
Upphaf framkvæmda: Framkvæmd hefst þegar verkkaupi
hefur með formlegum hætti tekið tilboði
bjóðanda.
Lok framkvæmda: Verkinu skal skila í þremur áföngum
eins og þeim er lýst í útboðsgögnum, en loka
skiladagur verksins er 30. Júní 2022.
Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem
bjóðendur geta sótt gögn frá og með þriðjudeginum
9. febrúar 2021. Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða
niður gögnum:
https://arborg.ajoursystem.is/Tender/DirectLink/
32551479-46e8-4769-a3cc-7392b82bd278
Notkunarleiðbeiningar um kerfið má sjá hér
https://help.ajoursystem.com/astopic/tender/
Gögnum þátttakenda skal skila inn rafrænt í útboð-
kerfinu Ajour fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 17. mars 2021.
Fyrirmælum varðandi skil gagna er nánar lýst í útboðs-
gögnum.
Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í
útboðskerfinu og í samræmi við skilmála
útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.
Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað
tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki
tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour
þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð
berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega
vinnu við að skila þeim inn.
Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Múrverk 2021 í hverfum 1,2,3,4 og 5 í
fasteignum Reykjavíkurbogar, útboð nr. 15084.
• Dúkalagnir 2021 í hverfum 1,2,3,4 og 5 í
fasteignum Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15085.
• Málning 2021 í hverfum 4 og 5 í fasteignum
Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15086.
• Málning 2021 í hverfum 1, 2 og 3 í fasteignum
Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15087.
• Íþróttamiðstöð Fram – Grasæfingarvöllur.
Jarðvinna og lagnir útboð nr. 15101.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Einstakt tækifæri á námi til
stúdentsprófs í alþjóðlegu umhverfi
(uwcrcn.no)
Mennta- og menningarmálamála -
ráðuneytið auglýsir eftir umsóknum
um skólavist við Alþjóðlega
menntaskólann, Red Cross Nordic
United World College (RCNUWC) í
Flekke, Noregi, skólaárið 2021 - 2022.
Umsækjendur skulu hafa lokið sem
svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa
gott vald á ensku og vera á aldrinum
16-18 ára.
Nánari upplýsingar og
umsóknareyðublöð er að finna á
vef ráðuneytisins mrn.is/flekke
Umsóknir berist mennta- og
menningarmálaráðuneytinu á
netfangið mrn@mrn.is í síðasta lagi
mánudaginn 1. mars 2021
Nám í alþjóðlegum
menntaskóla
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is